Víkurfréttir - 23.05.1985, Blaðsíða 16
16 Fimmtudagur 23. maí 1985
VÍKUR-fréttir
ÚTVEGSMENN,
SUÐURNESJUM
Athugið breytt símanúmer.
Útvegsmannafélagi hefur fengið ný
símanúmer:
Keflavíkurradíó .............. sími 4277
Skrifstofa ................... sími 4780
Halldór Ibsen heima .......... sími 4270
ÚTVEGSMANNAFÉLAG SUÐURNESJA
Legsteinar
granít - marmari
Opið alla daga, GRANIT sf.
einnig kvöld Unnarbraut 19, Seltjarnarnesi
og helgar. Símar 620809 og 72818
Snyrtifræðingur
óskast á Snyrtistofuna Dönu, Hafnargötu
49, sími 3617.
Sjóefnavinnslan hf.
Vantar menn til afleysinga strax.
Upplysingar veittar á skrifstofunni að
Vatnsnesvegi 14, III. hæð.
Orðsending frá
VÍKUR-fréttum
Framvegis rennur skilafrestur fyrir auglýs-
ingar út kl. 14 næsta þriðjudag fyrir út-
komudag.
ATH: Afgreiðslan er opin í hádeginu á
þriðjudögum.
V/KUft
pitUí
- auglýsingamiðill Suðurnesjamanna -
Starfsmaður óskast
Undirritaður óskar eftir því að ráða starfs-
mann á lögmannsskrifstofu sína. Starfið er
fólgið í færslu bókhalds, vélritun og öðrum
almennum skrifstofustörfum.
Umsækjandi þarf að geta unnið sjálfstætt
og þarf að hafa reynslu í skrifstofustörfum.
Skriflegum umsóknum skal skilað á skrif-
stofu mína fyrir 1. júní n.k. f umsókn þarf að
geta um menntun, aldur og fyrri störf, svo
og hvenær umsækjandi getur komið til
starfa.
JÓN G. BRIEM, héraðsdómslögmaður
Hafnargötu 37a - Keflavík - Sími 3566
Svæðisskíptilag á Suðumesjum
Samkomulag er á milli
Sambands sveitarfélaga á
Suðurnesjum, Skipulags
ríkisins og Keflavíkurflug-
vallar um að láta vinna
svæðisskipulag á Suður-
nesjum. Kostnaði vegna
verkefnisins verður skipt til
helminga milli Skipulags
ríkisins annars vegar og
hins vegar á milli sveitarfé-
laganna á Suðurnesjum og
Keflavíkurflugvallar, eftir
höfðatölureglunni svo-
nefndu. Gert er ráð fyrir að
verja í verkefnið sem nemur
tveimur mannárum.
Svæðisskipulag nær yfir
heildarsvæði, eins og í
þessu tilviki til alls Suður-
nesjasvæðisins, en slíkt
skipulag hefur ekki verið
gert áður. Svæðisskipulag
nær til margra þátta, t.d.
nýtingu orkuforða,
skipulagningu vatnstöku,
iðnaðaruppbyggingu o.fl.
Þá er til aðalskipulag og
deiliskipulag fyrir hvert
byggðarlag fyrir sig.
Búast má við að vinna við
verkefnið hefjist á næst-
unni. - eg.
Skurðstofu Sjúkrahússins umbylt
Miklar breytingafram-
kvæmdir eru hafnar við
Sjúkrahús Keflavíkurlækn-
ishéraðs. Eru þær aðallega
fólgnar í breytingum á
skurðstofuaðstöðu, þ.e.
færa hana í nútímalegra
horf og samkvæmt nútíma
kröfum, en skurðstofu-
deildin hefur verið óbreytt
nú í um 30 ár.
Hófust framkvæmdirn-
ar 2. maí sl. og er stefnt að
því að ljúka þeim fyrir 15.
ágúst n.k. Þrátt fyrir breyt-
ingarnar er þannig gengið
frá málum að skurðstofu-
deildin verður áfram starf-
hæf meðan breytingarnar
standa yfir. Hefur því verið
byggður bráðabirgðainn-
gangur upp á 2. hæð í
gömlu álmunni.
Verður nánar greint frá
framkvæmdum þessum hér
í blaðinu síðar. - epj.
Frá framkvxmdum við bráðabirgðainngang á skurðstofu.
Jöklafaramir í bandarísku blaði
Those guys are tough!
fcimlgbl icttí liiie :n Oiíf ’UlQM Stwfc':
yVl.í(ittímt Off-fíaoá M«a«ín* w»<t»/s«iy "
tCSdta Oiiwan oi kdw.á. aunrig
«« víwtóy fce *W u.’ M íiwdtea «t líebnd
A»hotQ*. tfx 1» a&l n tlw tuiwnœ 'J-i'* llvoug: .
%«»«, O'-ífW's ♦i'Oti ww« iak«f.'« wmftt,
Ibom net hnítor wvh kttend w:fl I fii t; fovotw) ón «
wcilií «Sofc* botiMMBi *rai Scnifafit I- tí.t. \otv-
Minie CX«a:: Aimutlí« »a« ef V»a«í» (39,702
n-.íiwl, kmbnd a !»t«é «s áuwt-yititm «ntM
»»á OnHrKnnsj d«*i> «»* &«*■»!*. « iles«tt,
twmxmvQkMK** «11 i W«S. «# tv> nwdkm morsefcus
tei trr.ngi. Souroás 6k<* perfect ipvt te m.
Wt'tt nrt wtn hrn* r.isíi, m.<* niwii
SC.OOC-pius privat* v«i*.ie» «« 4MS>, txtt fof rftrw
<M«t, í-,t lun uí s/T-RMRÍtKa k never fai tmtp. «s4 títiQ-
iflj írofli ðwM ptiolus, envtinw •» « gcoó tinw f«r »tlv«n.
wew tn.i ehttinj i»
Byttwwty.CSjlWtten...........*
Keflvísku jepparnir sem
óku yfir Vatnajökul ný-
lega, prýddu eina opnu í
bandaríska bílablaðinu
„OFF ROAD“ í apríl-hefti
blaðsins. Myndirnar eru að
vísu ekki frá ferðinni yfir
Vatnajökul, heldur teknar
fyrr í vetur annars staðar.
Textinn með myndunum
segir m.a. að halda mætti að
þær væru frá keppni um
verst „festu“ bílana -
„Worst Stuck“, eins og
kaninn kallar það. Svo væri
nú ekki, heldur væru þær
teknar á hálendi Islands.
Flestir kannast eflaust við
þessa jeppa, en fyrir þá sem
ekki vita það, þá er^sá lengst
til. vinstri bíll Omars í
Víkurbæ, tveir ,ystu eru
bílar Þorgríms Arnasonar
og Óla Eyþórs Ólasonar.
Bíllinn fyrir miðju veit blm.
því miður ekki hver eig-
andi er nú að. - pket.
ÖKUKENNSLA
Hef hafið ökukennslu á ný.
Jón P. Guðmundsson, sími 1635, eftir kl. 19.