Fréttabréf - 01.07.1984, Síða 1
FRÉTTABRÉF
7.tbl. 2.árg. 1984.
Ötg. Kvennalistinn
Ábm. Ina Gissurardóttir
Landsbókasafn Isl
Safnahúsinu
Hverflsgötu
lol Reykjavík
KVENNARÓTAN
ÞANKAR KRISTÍNAR HALLDÓRSDÓTTUR
"Ég stend alveg með ykkur. Gangi ykkur bara vel i
þvi, sem þið eruð að gera, stelpur", sagði kotroskinn
unglingur vió okkur kvennarútukonur á ísafirði.
Þessi skemmtilega kveðja er táknraen fyrir hringferð
okkar um landið, sem tókst svo makalaust vel.
Þeim, sem tóku þátt i ferðinni lengri eða skemmri
leið eftir ástæðum, verður hún ógleymanleg fyrir margra
hluta sakir. Eins og veðurguðirnir virtust mótfallnir
framboðsbrölti okkar fyrir siðustu kosningar, var rétt
eins og þeir vaeru orðnir okkar dyggustu stuðnings"menn",
þvi þeir léku viö okkur allan hringinn með óverulegum
undantekningum, og "stelpur, er þetta ekki fallegt,
þvilikt land", heyrðist andvarpað oft á dag, meðan Sigga
bilstjóri skilaði okkur af öryggi um heiðar og dali,
sléttur og brekkur.
En þótt landið okkar hafi sannað fegurð sina og
sérstöðu og veðurguðirnir keppst um að baeta fyrir gömul
brot i okkar garð, er þó viðmót fólksins og höfðinglegar
móttökur það, sem hæst ber, þegar ferðin er rifjuð upp.
Á hverjum viðkomustað af öðrum var okkur tekið opnum
örmum, svo að ólýsanlegt er. Hver var að segja, að
gestrisnin vaeri dvinandi á íslandi?
Sú, sem þetta ritar, var meó fyrstu tvo daga hring-
ferðarinnar, varð svo að sinna öðru um hrið, en hoppaöi
aftur um borð á Norðurlandi vestra. Þá var komið ákveðió
snið á reisuna og algjört aevintýri að koma i fyrsta sinn
meó rútunni inn á Blönduós undir dynjandi baráttusöngvum
og köllum um hátalarakerfið og sjá viðbrögð fólksins,
sem veifaði og hló við okkur. Kennarahjón á staðnum
opnuðu heimili sitt upp á gátt, og með aðstoð nágrannakvenna
var okkur borin hin ljúfasta máltið. Um kvöldið var vel
sóttur fundur á Hótel Blönduósi, einn af þessum "bestu
fundum", sem urðu býsna margir i ferðinni.