Fréttabréf - 01.07.1984, Blaðsíða 9
VERA
MÁLGAGN KVENFRELSISBARÁTTU
VERA
„bréf’
Hótel Vik
Reykjavík
Nú er samningur Kvennalistans og Kvennaframboðsins um
VERU genginn i gildi og fyrsta blaðið er komið út.
Við hyggjumst halda fundi um VERU á næstunni, um það
hvernig við viljum hafa blaðið, hvað við getum gert til
að hvetja konur til skrifta, hvernig auka megi útbreiðslu
þess o.fl. Fylgist meó og segið ykkar álit.
VERA er okkar blaó og okkar hagur að hún sjáist sem viðast
og sé sem best.
ÚTIMARKAÐUR
Kvennalistinn hélt útimarkað á Lækjartorgi dagana 30/7 - 3/8.
Pað tókst með ágætum enda lék við okkur veðrið.
Kvennaframboðið var með markað nokkra daga i júni. Þeim
gekk alveg ljómandi vel.
Vió vonum að Samtökum Kvenna á Vinnumarkaðnum gangi ekki
siður.
NEFND UM NAUÐGUNARMÁL
Svo sem kunngt er kom Kvennalistinn einu máli i gegnum
þingið, tillögu um könnun á meðferð nauögunarmála.
Nefnd sem kannar málið er þegar tekin til starfa. 1
henni sitja Jónatan Þórmundsson prófessor (formaður),
Ásdis Rafnar lögfræðingur, Sigrún Júliusdóttir félags-
ráögjafi, Hildigunnur ólafsdóttir afbrotafræðingur og
Guðrún Agnarsdóttir læknir og alþingiskona.
v, jSv-» }«vf j'vv -r'."; fV. ;'V'. .>v\ .
v^ V V V V* v/sv V »./sv’ *../ V
LANDSFUNDUR I HAUST
Lög Kvennalistans kveða á um landsfund á hverju hausti
til stefnumótunar og umræðna.
Ekki hefur enn verið ákveðin dagsetning fundarins i haust
eða hvar hann verður haldinn, en bæði Reykjanesangi og
Reykjavík hafa kosið fulltrúa i undirbúningsnefnd.
Við viljum benda ykkur á að lagabreytingar og tillögur
fyrir landsfundinn þurfa að berast í tima, þannig að best
er aó fara að leggja heilann i bleyti strax og koma tillögum
á framfæri við skrifstofuna sem fyrst.