Fréttabréf - 01.07.1984, Blaðsíða 4

Fréttabréf - 01.07.1984, Blaðsíða 4
4 DETTUR ÞÉR EITTHVAÐ SNJALLT 1 HUG ??? Kvennalistanum barst eftirfarandi bréf frá framkvæindastióra JafnréttisráðsT Undirbúningsnefnd kvennaáratugsráðstefnu SÞ 1985 hafði frumkvæði að þvi að kalla saman fulltrúa frá áhuga- samtökum um jafnréttis- og kvennamál i april s.l. Tilgangur fundarins var að kanna vilja til aðgerða á íslandi i tilefni loka kvennaáratugarins, og tók nefndin að sér að safna hugmyndum sem fram hafa komið um þær aógerðir, sbr. meðfylgjandi fundargerð. Undirbúningsnefndin boóar nú annan fund um málefnið, þriðjudaginn 14. ágúst, kl. 17.oo að Borgartúni 6, Reykjavik. Á fundinum er ætlunin að myndaður verði starfshópur, og komi fulltrúar samtaka og félaga með tillögur um sinn fulltrúa á fundinn. Gert er siðan ráð fyrir að valið verói úr þessum starfshópi i framkvæmdanefnd, sem sjái um framkvæmd aðgerðanna. Starfshópurinn mun siðar bera alla ábyrgð á undirbúningi aðgerða á Islandi árið 1985. Enn er hægt að koma með nýjar hugmyndir, bæði til undirritaðrar og á fundinn. Með kveðju, f.h. Undirbúningsnefndar, Elin Pálsdóttir Flygenring, framkvæmdastjóri Jafnréttisráðs. Ritnefnd: Anna 0]. Björnsson Gyða Gunnarsdóttir Ina Gissurardóttir_ Jóhanna Valdemarsdóttir Margrét Sæmundsdóttir FUNDIR FUNDIR FUNDIR Félagsfundur i Reykjavikuranga verður fimmtudaginn 23. ágúst kl. 8.30 á Vikinni. Mætum allar hressar og kátar eftir sumarleyfin.

x

Fréttabréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf
https://timarit.is/publication/1209

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.