Fréttabréf - 01.07.1984, Blaðsíða 14

Fréttabréf - 01.07.1984, Blaðsíða 14
14 FRIDARMÁL 1984 er ár friðarbúða. í Þýskalandi, Italiu, Frakklandi, Englandi, Ungverjalandi, Bandarikjunura, Canada, á Norðurlöndum og vióar hittust friðarsinnar til að fræðast hver af öðrum og leggja á ráðin um áframhaldandi friðarstarf. Undanfarin ár hefur verið gengið, hjólað og talaó fyrir friði. Á þann hátt hafa friðarhreyfingar reynt að vekja fólk til meðvitundar um þá ógn sem mannkyninu stafar af kjarnorkuvopnum og um leið mótmælt þvi að ráðamenn þjóöa fari með mál sem varða mannkynið allt eins og sin einkamál. Þessi barátta hefur þó ekki haft áhrif á vigbúnaðar- kapphlaupið eins og kunnugt er en hins vegar eru þeir æ fleiri sem láta til sin heyra um friðarmál. Aldrei fyrr i sögu mannkynsins hefur jafnmargt fólk sameinast um eittmarkmið. Þvert á pólitiskt litróf, ólik þjóðskipulög og lifsviðhorf hafa konur og karlar um viða veröld oróið sammála um að reka þann vágest sem kjarnorkuvopn eru, af höndum okkar. Eins og lesendur fréttabréfsins vita þá hafa norrænar konur gengið þrjú undanfarin ár fyrir friði - i Evrópu, Sovétrikjunum og Bandarikjunum. Siðastlióinn vetur stofnuðu þær frumkvæðishóp norrænna kvenna. 1 þessum samtökum eru konur úr 40 friðarhreyfingum á Norðurlöndum og er þessum samtökum ætlað aó þróa áfram og vinna úr þeirri reynslu sem hefur fengist úr göngunum þremur. Kvennalistakonur hafa tekið þátt i þessu samstarfi og i sumar dvöldum viö nokkrar i friðarbúðum fyrir utan Stokkhólm sem frumkvæðishópurinn boðaði til. Þangað var boóið konum úr hinum ýmsu friðarhreyfingum sem við höfum kynnst á göngunum okkar - auk þess komu konur sem hafa látið þessi mál til sin taka á undanförnum árum. Fyrstu tvær vikurnar i búðunum voru margar konurnar með fjölskyldur sinar með sér. Daglega var farið inn i borgina, vakin athygli á friðarstarfi meö ýmsu móti og fulltrúum afvopnunarráðstefnunnar i Stokkhólmi gert ljóst að fólk fylgist með þeim og ætlast til árangurs af starfi þeirra. Seinni tvær vikurnar ræddum viö um kvenna- og frióarbaráttu og þann tima dvöldum viö mestmegnis i búðunum án karla og barna. Hundruðir kvenna frá 16 þjóðum dvöldust lengri eða skemmri tima i búðunum - báru saman bækur sinar, ræddu árangur, markmið og framhald friðarstarfs. Fulltrúar austurs og vesturs töluðu opinskátt um þær óvinaimyndir sem stórveldin ala á - konur frá friðarbúðunum i Greenham Common i Englandi, Seneca Falls i Bandarikjunum og Comiso á Italiu miðluðu okkur af reynslu sinni - konur úr ólikum heimum með ólika lifsreynslu að baki. Það er þvi óhætt aó segja að friðarvefurinn hafi verið ofinn i búðunum með hinum ótrúlegustu litbrigöum.

x

Fréttabréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf
https://timarit.is/publication/1209

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.