Fréttabréf - 01.07.1984, Page 10
10
FRÁ UMHVERFISMÁLAHÓPI KVENNALISTANS
Urahverfismála- og stóriðjuhópur Kvennalistans hefur
starfaö allt frá því fyrir kosningar með meiri eða minni krafti.
Að öörum ólöstuðum má segja að Bryndís Brandsdóttir hafi
verið driffjöðurin í starfinu. Fundirnir voru lengi framan
af haldnir heima hjá henni og leikur grunur á að kaffi-
sjóðurinn hafi ekki alls kostar staðió undir öllum þeim
kræsingum sem hópurinn sporðrenndi á milli umræðnanna um
stóriðju, mengun, uppblástur og annan ódám i samfélaginu.
Um 8-10 konur komu við sögu, þ.á.m. Sigrún Helgadóttir sem
miðlaði af miklu örlæti af þekkingu sinni á náttúruvernd
og náttúrufriðun og lýsti verkefnum sem brýnt er að snúa
sér að. Hólmfríður Árnadóttir lá heldur ekki á liði
sínu og aflaði ýmissa gagna um meðferð eiturefna, sem ekki
virðist alltaf vera til fyrirmyndar i þessu landi. Þrátt
fyrir það skilaði starfið ekki áþreifanlegum árangri i
hlutfalli vió lengd og fjölda funda og umræðuefna.
Til þess að koma málunum á traustari grunn tók Bryndis
til sinna ráða. Hún fékk afnot af sumarhúsi Háskóla íslands
1 Herdisarvik vikuna 29. júni - 6. júli og lét það boó út
ganga aó allar konur sem hefðu áhuga á að ræða um umhverfismál
væru velkomnar til skrafs og ráðagerða.
Með öll frumvörp sem nú liggja fyrir á Alþingi og
snerta umhverfismál og Alþingistiðindi frá siðastliónu
þingi i pússi sinu,ók Bryndis beint af hátið Kvennalistans
á Þingvöllum til Herdisarvikur ásamt syni sinum, Brandi,
2 1/2 árs, og sló allar dyr upp á gátt. Inn um þær dyr
gengu eftirfarandi konur til lengri eða skemmri dvalar:
Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir og Guðrún ólafsdóttir tvisvar,
Guórún Jónsdóttir, Guðný Gerður Gunnarsdóttir, Hólmfriður
Árnadóttir, ina og Dista Gissurardætur, Helga Jóhannsdóttir.
Auk þess komu dætur Sigurbjargar og frænka þeirra, dætur
Hólmfrióar og Helgu og undu hag sinu hið besta.
í Herdisarvik var gert allt i senn, að njóta ánægjulegra
samvista, útivistar og náttúrunnar bæði i glampandi sólskini
og hita og i ausandi rigningu og að ræða um og kynna sér
umhverfismál. Einn eftirmiddag sagði Dista Gissurardóttir
frá reynslu sinni af starfi sinu sem efnafræóingur við
hreinsistöð við frárennsliskerfi i Suður-Englandi og við
ræddum um aðstæður hér á höfuðborgarsvæðinu og hvað brýnast
væri að gera til þess að kippa holræsamálum i lag.
Flett var i gegnum frumvörpin og þau skoðuð og rædd
og gerðar athugasemdir um atriöi sem vert væri að kanna
og ræða betur. Stóriðjumál voru mjög til umræöu og þá
einkum hættan á álveri við Eyjafjörð og voru uppi háværar
raddir um að hópurinn skrifaöi grein þá á stundinni.
Greinin er óskrifuð enn enda erfiðleikar i Herdisarvik með
upplýsingaöflun fjarri simum, skýrslum og sérfræðingum.