Morgunblaðið - 10.10.2015, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 1 0. O K T Ó B E R 2 0 1 5
Stofnað 1913 238. tölublað 103. árgangur
ÓÐINN VALDI-
MARSSON Í
SVIÐSLJÓSINU
VARP MEÐ
VERKUM
SIGURÐAR
HVERFISGALLERÍ 55ÉG ER KOMINN HEIM 18
Morgunblaðið/Ómar
Eldhugi Baltasar Kormákur kvikmynda-
leikstjóri er með mörg járn í eldinum.
Undirbúningur er vel á veg kom-
inn að kvikmyndinni Víkingr í leik-
stjórn Baltasars Kormáks.
Hann segist í samtali við Morgun-
blaðið dreyma um að gera þrjár
kvikmyndir í þríleik sem verði að
langmestu leyti tekinn upp á Ís-
landi. Áætlaður kostnaður við að
framleiða fyrstu myndina sam-
svarar 7,5-12,5 milljörðum króna.
Kostnaðurinn fari svo stighækk-
andi í annarri og þriðju myndinni ef
verkefnið verður að veruleika.
Baltasar benti á það í fyrirlestri í
Reykjavík í gær að kvikmyndagerð
ætti umtalsverðan þátt í fjölgun er-
lendra ferðamanna á Íslandi.
Við það tilefni minnti Robert C.
Barber, sendiherra Bandaríkjanna
á Íslandi, á norskar rannsóknir sem
bentu til verulegra áhrifa kvik-
myndagerðar á vinsældir Noregs
sem áfangastaðar. »4
Verkefni Baltasars
gæti fært tugi millj-
arða inn í landið
Gengið nærri réttindum
» Skv. heimildum blaðsins var
nöfnum sakborninga í Aserta-
málinu lekið til fjölmiðla.
» Hæstiréttur taldi gengið
nærri mannréttindum þeirra.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Þorsteinn Már Baldvinsson, for-
stjóri Samherja, boðar aðgerðir
vegna rannsóknar á hendur Sam-
herja sem ákæruvaldið felldi niður í
september. Fyrirtækið muni þó ekki
reyna að sækja fjárhagslegar bætur.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins eru aðrir aðilar sem verið
hafa til rannsóknar vegna meintra
brota á reglunum að íhuga skaða-
bótamál vegna rannsóknarinnar.
Fram kemur í Morgunblaðinu í
dag að innan Seðlabankans var ekki
fullvissa um hvort lögáskilið sam-
þykki ráðherra væri fyrir hendi á
reglum um gjaldeyrismál. Í ljós kom
að svo var ekki og veittu reglurnar
því ekki gildar refsiheimildir.
Hefur umboðsmaður Alþingis
gagnrýnt bankann fyrir að veita sér
ekki réttar upplýsingar um málið áð-
ur en ákærur voru gefnar út.
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur
saksóknari, segir aðspurður að ef
menn telja á sig hallað í tengslum við
rannsóknir eða saksókn eigi þeir
þess kost að gera kröfu um bætur,
hafi þeir orðið fyrir tjóni.
Undirbúa skaðabótamál
Sakborningar í gjaldeyrismálum kanna réttarstöðu sína vegna rannsókna SÍ
Forstjóri Samherja boðar aðgerðir Sérstakur saksóknari bendir á bótarétt
MSeðlabankinn var … »16
Morgunblaðið/Eggert
Geðhvörf Drengurinn fer hátt upp
og langt niður, segir Helga.
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
„Hann var bara átta ára þegar hann
greindist og sjúkdómurinn veldur því
að hann gerir margt öðruvísi og
skrýtið. En það má aldrei gleyma því
að hann er bara eðlilegur strákur.
Hann er ekki sjúkdómurinn, hann er
ekki geðhvörfin.“
Þetta segir Helga Björg Dag-
bjartsdóttir, móðir 13 ára gamals
drengs, sem greindist með geðhvörf
átta ára gamall. „Hann fer hátt upp
og langt niður. Þess vegna kalla ég
hann rússíbanann.“ Helga segist
aldrei hafa orðið vör við fordóma
vegna veikinda sonar síns, en viðhorf
til geðsjúkra barna sé annað en til
barna með aðra sjúkdóma. Í því sam-
bandi nefnir hún að eitt sinn hafi hún
fengið þau svör varðandi sérhæft úr-
ræði fyrir drenginn að það kostaði of
mikið.
„Hefði honum verið neitað um að
leggjast inn á Landspítalann í
krabbameinsmeðferð vegna þess að
hún er svo dýr? Af hverju eru líkam-
legir og andlegir sjúkdómar ekki
lagðir að jöfnu?“ spyr Helga. »20-21
Hann er ekki sjúkdómurinn
Sonur Helgu greindist átta ára gamall með geðhvörf
Friðarsúlan í Viðey var tendruð í gærkvöldi í
níunda sinn. Í gær voru 75 ár liðin frá fæðingu
Bítilsins Johns Lennons en hann féll fyrir morð-
ingjahendi í New York hinn 8. desember 1980.
Yoko Ono, ekkja Lennons, bauð upp á fría sigl-
ingu yfir Viðeyjarsund og Strætó ók fólki ókeyp-
is milli Skarfabakka og Hlemms. Fjölbreytt dag-
skrá var í Viðey í tilefni dagsins og voru um
1.500 manns við athöfnina.
Ljóssúlan teygði sig til himins frá Viðey
Morgunblaðið/Golli
Friðarsúlan var tendruð í gær þegar 75 ár voru liðin frá fæðingu Bítilsins Johns Lennons
Vikulegur út-
flutningur á
senegalflúru frá
eldisstöð Stolt
Sea Farm Ice-
land ehf. í Höfn-
um í Reykjanes-
bæ hefst í mars á
næsta ári. Mest
verður selt til
Evrópu en um
fimmtungur til
Bandaríkjanna. Í stöðinni á Reykja-
nesi stendur til að framleiða alls
550 tonn af flúru á næsta ári, í
fyrsta áfanga stöðvarinnar. Stækk-
un er í undirbúningi. »19
Munu flytja sene-
galflúru út vikulega
Fiskur Flúran er
ekki beint frýnileg.
Lögreglumaður
með yfir þriggja
áratuga reynslu
segir í Sunnu-
dagsblaði Morg-
unblaðsins að álag
í starfi hafi marg-
faldast og hættan
á að lögreglu-
menn brenni út
aukist.
„Það sem var
ekki þá en er nú er bæði útbreidd
neysla harðra fíkniefna og öll þau
ljótu mál er tengjast þeim. Á níunda
áratugnum voru dópgrenin örfá og
helst í miðborginni. … Nú skipta
grenin, og þá þar með talin „heimili“,
hundruðum og eru dreifð um allt og
ekkert hverfi undanskilið. Eymdin er
oft ólýsanleg og börn allt of oft fórn-
arlömbin. … Ofbeldið í dag er meira,
það er grimmara. Hér áður þekkti
hver lögreglumaður þessa fáu virku
brotamenn með nafni og þeir okkur
með nafni, þeir voru fæstir mikil ógn
við okkur og í þeim tilfellum þegar
okkur var ógnað eða á okkur ráðist
höfðum við mannaflann til að bregð-
ast við, oftast,“ segir hann.
Ofbeldið grimmara
og álagið meira
Bjarni Ólafur
Magnússon