Morgunblaðið - 10.10.2015, Blaðsíða 42
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2015
vELFERÐARRÁÐUNEYTIÐ
Embætti skrifstofustjóra á
skrifstofu gæða og forvarna
Velferðarráðuneytið auglýsir laust til umsóknar
embætti skrifstofustjóra á skrifstofu gæða og
forvarna. Um er að ræða aðra af tveimur fag-
skrifstofum á heilbrigðissviði ráðuneytisins.
Skrifstofa gæða og forvarna annast verkefni
sem varða m.a. öryggi, gæði og eftirlit í
heilbrigðisþjónustu, lyf og lækningatæki,
lýðheilsu og forvarnir, þar með taldar sóttvarnir
og geislavarnir, lífvísindi og lífsiðfræði, einnig
vísindarannsóknir á heilbrigðissviði, starfsrétt-
indi, sjúkraskrár og gagnasöfn í heilbrigðis-
þjónustu.
Skrifstofustjóri stýrir og ber ábyrgð á
málaflokkum sem heyra undir skrifstofuna sem
og á verkefnum annarra starfsmanna skrif-
stofunnar og útdeilingu þeirra. Í því felst
stjórnun og rekstur skrifstofunnar, skipulagn-
ing, áætlanagerð, stefnumótun, markmiðs-
setning, samhæfing verkefna við stefnu ráðu-
neytisins og mat og ábyrgð á árangri. Jafnframt
ber hann fjárhagslega ábyrgð eftir atvikum.
Um er að ræða áhugavert og fjölbreytt starf í
krefjandi starfsumhverfi þar sem reynir á öguð
vinnubrögð, ábyrgð og sjálfstæði. Heilbrigðis-
ráðherra skipar í embættið til fimm ára frá
1. janúar 2016.
Menntunar- og hæfniskröfur:
•Víðtæk háskólamenntun sem nýtist í starfi.
•Yfirgripsmikil þekking og reynsla af þeim
málaflokkum sem heyra undir skrifstofuna.
•Stjórnunarreynsla og þekking á sviði
verkstjórnunar.
•Leiðtogahæfileikar.
•Metnaður og vilji til að ná árangri.
•Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og
skipulagshæfni.
•Gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í
ræðu og riti.
•Góð kunnátta í ensku og a.m.k. einu
Norðurlandamáli.
•Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum.
•Æskilegt er að umsækjendur hafi góða
þekkingu eða reynslu á sviði stjórnsýslu.
Sérstök hæfnisnefnd, skipuð þremur einstak-
lingum, mun meta hæfni umsækjenda og skila
greinargerð til heilbrigðisráðherra sem ræður í
starfið. Nefndin starfar skv. reglum nr.
393/2012 um ráðgefandi nefndir er meta hæfni
umsækjenda um embætti við Stjórnarráð
Íslands. Um embættið gilda lög nr. 115/2011
um Stjórnarráð Íslands og lög nr. 70/1996 um
réttindi og skyldur ríkisstarfsmanna. Kjararáð
ákvarðar laun skrifstofustjóra, sbr. lög nr.
47/2006.
Upplýsingar um starfið veita Vilborg Ingólfs-
dóttir skrifstofustjóri og Anna Lilja Gunnars-
dóttir ráðuneytisstjóri í síma 545 8100.
Ráðuneytið hvetur karla jafnt sem konur til að
sækja um embættið.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf skulu berast velferðarráðuneytinu,
Hafnarhúsinu við Tryggvagötu, 101 Reykjavík
eða í tölvupósti á póstfangið postur@vel.is eigi
síðar en 2. nóvember 2015. Tekið skal fram að
umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að
umsóknarfrestur rennur út, sbr. reglur nr.
464/1996 um auglýsingar á lausum störfum,
með síðari breytingum.
Öllum umsóknum verður svarað þegar
ákvörðun um skipun í embættið liggur fyrir.
Velferðarráðuneytinu, 10. október 2015.
Smáauglýsingar 569 1100
Geymslur
Bílageymsla
Húsnæði undir húsbíla, fellihýsi,
hjólhýsi eða tjaldvagninn í vetur.
Bjóðum upp á gott húsnæði í Sveitar-
félaginu Garði.
Leiguverð per meter:
Húsbílar og hjólhýsi = 11.500
Tjaldvagnar og fellihýsi = 9.500 kr.
Vinsamlegast sendu okkur tölvupóst
á guesthousegardur@simnet.is
eða hringdu í síma 660-7890 eða
660-7891.
Sumarhús
Viðhaldslítil
ferðaþjónustuhús
og sumarhús til sölu
halliparket@gmail.com
sími 894 0048
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Iðnaðarmenn
FASTEIGNA-
VIÐHALD
Við þjónustum þig með
lítil sem stór verk.
Tímavinna eða tilboð.
johann@jaidnadarmenn.is
S. 544-4444/777-3600
www.jáiðnaðarmenn.is
Málverk
Tilboð óskast í
málverk eftir
Kristínu Jónsdóttur.
Áhugasamir hafi samband á
box@mbl.is merkt: ,,M-25965”
Óska eftir
Staðgreiðum gull, demanta og úr
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl.
Hringdu núna og fáðu tilboð þér að
kostnaðarlausu!
www.kaupumgull.is
Opið alla daga 11–18.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 661 7000.
Þjónusta
! " #$ %&& ' ''
((()*)
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
Hitaveituskel 1850 L.
Hitaveituskel 1650 L.
margar stærðir.
Þægilegir herrainniskór á góðu
verði
Teg: 808 Stærðir: 41 - 46
Verð: 3.990.-
Teg: 852 Stærðir: 41 - 46
Verð: 4.990.-
Teg: 824 Stærðir: 41 - 46 Verð:
4.685.-
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Opið mán.-fös. 10–18,
laugardaga 10–14.
Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf.
Sendum um allt land
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Kíktu á heimasíðuna
lifstykkjabudin.is
Mikið úrval
Póstsendum
Ullar- og
silkinær-
fatnaður
Ný sending
í svörtu og hvítu
Veiði
20 ára
1995-2015
• Reynsla
• Þekking
• Gæði
Grásleppunet
Skötuselsnet
Silunganet
Þorskanet
Kola- og Flundrunet
Ála- og Bleikjugildrur
Felligarn
Flot og Blýteinar
Vinnuvettlingar o.m.fl.
Höfðabakka 1 | 110 Rvk
S. 892 8655
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD .
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
Bílaleiga
HÓPFERÐABÍLAR TIL LEIGU
með eða án bílstjóra.
--------16 manna--------
--------9 manna---------
Fast verð eða tilboð.
CC.BÍLALEIGA S. 861 2319.
Húsviðhald
Hreinsa þakrennur
fyrir veturinn og tek
að mér ýmis smærri
verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com