Morgunblaðið - 10.10.2015, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2015
YOUR TIME IS NOW.
MAKE A STATEMENT WITH EVERY SECOND.
Pontos Day/Date
Sígild en engu að síður nútímaleg
hönnun sem sýnir það allra nauðsynlegasta.
Áreiðanlegt sjálfvindu úrverk sem sýnir
vikudaga og dagsetningu. Einfalt
og stílhreint úr sem sendir skýr skilaboð.
jonogoskar.is Sími 5524910 Laugavegi 6 1 Kringlan Smáralind
Sundkortin hækka ekki,“ er fyr-irsögn fréttar á vef Reykjavík-
urborgar um hækkun sem borgarráð
samþykkti um að hækka aðgang að
sundlaugum borgarinnar úr 650
krónum í 900 krónur.
Fyrirsögnin„Sundkortin
hækka ekki“ við
frétt um hækkun á
aðgangi er gott
dæmi um ávinning-
inn af því fyrir borg-
ina að reka stóra
áróðursdeild – afsak-
ið upplýsingadeild –
til að halda borgar-
búum rétt upplýstum
um starfsemi borg-
arinnar.
Þetta dæmi um upplýsingagjöfborgaryfirvalda er auðvitað til-
tölulega saklaust, en þau eru það
ekki öll og borgarstjóri gengur
býsna langt í að nota stjórnkerfið og
stöðu sína í eigin pólitíska þágu.
Eitt dæmi um það eru pólitískirfréttapóstar hans sjálfs, sem
Kjartan Magnússon borgarfulltrúi
gagnrýndi nýlega. Kjartan benti á að
í vikulegum pistlum sem borgarstjóri
sendir öllum borgarstarfsmönnum
og fjölda borgarbúa sem borgin hafi
safnað póstföngum hjá stundi hann
pólitíska baráttu og ráðist til að
mynda á pólitíska andstæðinga.
Borgarfulltrúinn Dagur B. Egg-ertsson getur að sjálfsögðu
staðið í slíkri pólitískri baráttu, en
borgarstjórinn Dagur B. Eggertsson
getur ekki notað embættið og það
sem því fylgir með þessum hætti.
Æskilegt væri að borgarstjóriáttaði sig á þessu sjálfur, en
ef ekki væri æskilegt að einhverjir
félaga hans í meirihlutanum út-
skýrðu þetta fyrir honum.
Dagur B.
Eggertsson
Upplýsingaveita
Dags B.
STAKSTEINAR
Kjartan
Magnússon
Veður víða um heim 9.10., kl. 18.00
Reykjavík 6 skýjað
Bolungarvík 3 rigning
Akureyri 9 skýjað
Nuuk 3 skýjað
Þórshöfn 10 heiðskírt
Ósló 7 skýjað
Kaupmannahöfn 10 skýjað
Stokkhólmur 7 heiðskírt
Helsinki 2 léttskýjað
Lúxemborg 12 léttskýjað
Brussel 15 heiðskírt
Dublin 15 skýjað
Glasgow 15 léttskýjað
London 16 léttskýjað
París 13 alskýjað
Amsterdam 15 léttskýjað
Hamborg 11 skýjað
Berlín 11 heiðskírt
Vín 14 þoka
Moskva -1 heiðskírt
Algarve 21 léttskýjað
Madríd 22 léttskýjað
Barcelona 20 léttskýjað
Mallorca 22 léttskýjað
Róm 21 léttskýjað
Aþena 21 léttskýjað
Winnipeg 8 alskýjað
Montreal 6 súld
New York 22 léttskýjað
Chicago 14 alskýjað
Orlando 28 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
10. október Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:03 18:28
ÍSAFJÖRÐUR 8:13 18:28
SIGLUFJÖRÐUR 7:56 18:11
DJÚPIVOGUR 7:34 17:56
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Árni Páll Árnason, formaður Sam-
fylkingarinnar, hefur sætt gagnrýni
úr eigin röðum að undanförnu, nú síð-
ast í væntanlegri heimildarmynd; Jó-
hanna: Síðasta orrustan. Þar er þátt-
ur Árna Páls í
stjórnarskrármál-
inu gagnrýndur
og haft eftir Jó-
hönnu að hann
hafi brugðið fæti
fyrir framgang
málsins. Hefur
stiklu úr mynd-
inni verið dreift á
netinu.
Segist Árni Páll
ekki ætla að tjá sig um málið fyrr en
eftir að myndin hefur verið sýnd.
Fram kemur í fréttaskýringu um
myndina á Eyjunni, að Jóhanna láti
þau orð falla í henni að Árni Páll hafi
sagt ósatt um umboð sitt til að leggja
frumvarp um nýja stjórnarskrá til
hliðar. „Hann sagði sjálfur að hann
hefði haft umboð þingflokksins, sem
hann hafði ekki,“ sagði Jóhanna orð-
rétt, að því er fram kemur í áður-
nefndri stiklu úr myndinni.
Kosning gæti farið fram 2016
Árni Páll var endurkörinn formað-
ur á fundi landsfundarfulltrúa Sam-
fylkingar 20. mars sl. Kjörið var um-
deilt en Árni Páll fékk einu atkvæði
meira en mótframbjóðandi hans, Sig-
ríður Ingibjörg Ingadóttir. Greidd
voru 487 atkvæði í formannskjörinu á
landsfundinum.
Næsti landsfundur Samfylkingar
er áformaður snemma árs 2017. Skv.
lögum flokksins gefst færi á
allsherjaratkvæðagreiðslu undir lok
árs 2016, ef fleiri en eitt framboð ber-
ast. Árni Páll hefur lýst sig fylgjandi
því fyrirkomulagi. Hann vildi ekki tjá
sig um stöðu flokksins.
Tjáir sig
ekki um
gagnrýni
Undiralda í
Samfylkingunni
Árni Páll
Árnason