Morgunblaðið - 10.10.2015, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 10.10.2015, Qupperneq 27
27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2015 Kattalíf Sú var tíð að kettir gátu elst við mýs á Skólavörðustígnum daginn út og daginn inn en með auknum fjölda ferðamanna þurfa þeir að eyða æ meiri tíma í fyrirsætustörf. Árni Sæberg Undanfarin misseri hefur verið mikil um- ræða, oft á tíðum hörð og óvægin, um upp- byggingu flutnings- kerfis raforku á Íslandi og hvaða leiðir eigi að velja í þeim efnum. Fyrir liggur að meg- influtningskerfi raf- orku er komið að þol- mörkum ef undan er skilið suðvesturhorn landsins, þar sem notendur búa að flutningsmann- virkjum sem reist hafa verið í tengslum við uppbyggingu orku- freks iðnaðar. Byggðalínan í kring- um landið, sem lokið var að reisa fyr- ir 30 árum og átti að tryggja öllum landsmönnum jafnan og öruggan að- gang að raforku, er hins vegar full- lestuð í dag sem teflir í tvísýnu af- hendingaröryggi meginflutningskerfisins. Því er orðið mjög brýnt að styrkja flutnings- kerfið, þannig að áfram verði hægt að mæta aukinni eftirspurn eftir öruggri raforku um allt land. Tak- markanir á orkuafhendingu og af- hendingaröryggi er farið að standa í vegi fyrir almennri atvinnuuppbygg- ingu víða á landinu og þar með byggðaþróun. Raforka er ein af grunnstoðum nútíma þjóðfélags, heimili og fram- leiðslufyrirtæki þurfa raforku í auknum mæli. Ef við ætlum að minnka útblástur mengandi efna, hvort það er frá fiskimjölsverk- smiðjum eða bílum, þá þurfum við raforku; ný hótel þurfa raforku og þannig mætti lengi telja. Lagning flutningslína fyrir raforku, hvort sem það eru loftlínur eða jarð- strengur, veldur vissulega umhverf- isáhrifum, hjá því verður ekki kom- ist. Við þurfum að vega og meta þá kosti sem til greina koma og ákveða hvaða kost við veljum til að mæta þessum auknu þörfum og veld- ur minnstri röskun. Lögum samkvæmt ber Landsneti að byggja upp flutnings- kerfi raforku á hag- kvæman hátt að teknu tilliti til öryggis, skil- virkni og áreiðanleika afhendingar. Félagið hefur kappkostað að sinna þeim lagalegu skyldum allt frá stofnun þess fyrir 10 árum en andstaða á undanförnum árum við uppbygging- aráform á afmörkuðum svæðum hef- ur sett þar strik í reikninginn. Það er von Landsnets að breytingar á regluverki raforkulaga sem tóku gildi í vor, þar sem kerfisáætlun fé- lagsins hlaut lagalegan sess, og sam- þykkt þingsályktunar um stefnu stjórnvalda um lagningu raflína geti leitt til samfélagslegrar sáttar um framtíðaruppbyggingu raforkukerf- isins, landi og þjóð til heilla. Tveir meginvalkostir Í kerfisáætlun Landsnets, sem samkvæmt lagabreytingunni skal nú leggja fram árlega og hljóta sam- þykki Orkustofnunar, er sett fram langtímaáætlun félagsins um upp- byggingu kerfisins tíu ár fram í tím- ann. Jafnframt fylgir nú umhverf- isskýrsla kerfisáætluninni þar sem lagt er mat á valkosti út frá um- hverfislegum sjónvarmiðum sem taldir eru koma til greina við upp- byggingu kerfisins. Í kerfisáætlun 2015-2024, sem bú- in er að vera í kynningar- og um- sagnarferli undanfarnar vikur, eru settir fram tveir meginvalkostir um uppbyggingu raforkuflutningskerf- isins á næstu árum. Þeir fela annars vegar í sér lagningu háspennulínu yfir miðhálendið eða hins vegar end- urbyggingu núverandi byggðalínu. Undir þessum tveimur aðal- valkostum eru svo lagðar til mis- munandi útfærslur með blöndu af nýjum línum og spennuhækkun á eldri línum, þar sem nýjar línur geta ýmist verið loftlínur eða jarð- strengir, allt eftir aðstæðum. Allt er þetta vandlega tíundað í Kerfisáætl- uninni og fylgigögnum hennar sem hægt er að nálgast á vef Landsnets og hjá Skipulagsstofnun. Sérstaða raforkukerfisins takmarkar notkun jarðstrengja Deilt hefur verið á Landsnet fyrir að miða uppbyggingu kerfisins um of við þarfir stóriðju þótt stað- reyndin sé sú að núverandi þörf á styrkingu flutningskerfisins sé fyrst og fremst vegna almennrar aukinn- ar raforkunotkunar. Efast hefur verið um þörf fyrir nýjar línur og krafan um jarðstrengi í stað loftlína hefur verið áberandi. Í umræðunni um val milli jarðstrengja og loftlína hefur oft gleymst að Landsneti voru til skamms tíma settar mjög skýrar hagkvæmniforsendur í raf- orkulögum um uppbyggingu flutn- ingskerfisins en stefnumörkun stjórnvalda frá í vor hefur nú rýmk- að þær forsendur. Oft er gefið í skyn að þær tölur sem Landsnet birtir um mun á kostnaði við lagningu loftlínu og jarðstrengs séu rangar, verð á jarð- strengjum hafi lækkað mikið á und- anförnu og ekki sé tekið tillit til þess. Af því tilefni hefur Landsnet nýlega látið gera ýtarlega úttekt á mismun á kostnaði við annars vegar bygg- ingu loftlínu og hins vegar lagningu jarðstrengja, miðað við nýjustu upp- lýsingar um verð jafnframt því að tekið er tillit til aðstæðna í náttúru landsins og eiginleika íslenska flutn- ingskerfisins. Þróun í framleiðslu á jarð- strengjum hefur vissulega verið hröð á undanförnum árum. Hún endurspeglast í lækkun fram- leiðslukostnaðar og jafnframt hefur samkeppni framleiðenda leitt til lækkunar á verði. Þannig eru kostn- aðartölur í dag allt aðrar en fyrir bara hálfum áratug eða svo. En auk verðsins á strengnum þarf einnig að taka tillit til kostnaðar við lagningu strengjanna og taka þá mið af ís- lenskum aðstæðum sem oft á tíðum eru verulega frábrugðnar aðstæðum erlendis. Til þess að úttekt Landsnets væri byggð á sem trúverðugustum upp- lýsingum var hún unnin í samvinnu og samráði við aðila bæði í Dan- mörku og Frakklandi með mikla reynslu í jarðstrengjamálum. Nið- urstöður úttektarinnar sýna að mið- að við íslenskar aðstæður og sér- stöðu íslenska flutningskerfisins eru því miður verulegar takmarkanir á því hve langa jarðstrengi er hægt að leggja á einstökum hlutum flutn- ingskerfisins. Einnig er þar að finna mat á því við hvaða aðstæður í ís- lenskri náttúru lagning jarðstrengja fer vel og hvar ekki. Það er von okk- ar að þessi vinna nýtist við und- irbúning að frekari uppbyggingu og styrkingu íslenska flutningskerf- isins. Hvet ég alla sem vilja fjalla um málið á málefnalegum grunni að kynna sér efni og niðurstöðu þess- arar skýrslu. Ræðum málin á grunni stað- reynda Það er von okkar að allt þetta muni skili sér í málefnalegri umræðu en áður um val á milli loftlína og jarðstrengja. Við hvetjum sem flesta til að kynna sér kerfisáætlun Lands- nets og fylgigögn hennar þannig að umræðan um uppbyggingu raf- orkukerfisins geti farið fram á grunni staðreynda en ekki órök- studdra fullyrðinga eins og því mið- ur hefur viljað brenna við. Í hita leiksins hafa fallið stór orð um starfsmenn og stjórnendur Lands- nets. Hafa þeir meðal annars verið sakaðir um að ganga erinda stórfyr- irtækja á kostnað almennings og að setja fram villandi upplýsingar um þá kosti sem til greina koma. Slíkur málflutningur er engum til sóma og stuðlar ekki að farsælli lausn þeirra verkefna sem sátt þarf að nást um. Ég leyfi mér að fullyrða að starfs- menn og stjórnendur Landsnets vinna bæði faglega og af miklum heilindum að þeim mikilvægu verk- efnum sem fyrirtækið sinnir í þágu allra landsmanna. Hvet ég alla sem þannig hafa talað til að láta nú af slíkum málflutningi og taka frekar þátt í faglegri og mál- efnalegri vinnu byggðri á bestu fá- anlegum upplýsingum um þetta mik- ilvæga málefni. Landsnet vill leggja sitt af mörkum til að umræða á slík- um grunni eigi sér stað enda er það einlægur vilji fyrirtækisins að sem víðtækust samfélagssátt skapist um framtíðarfyrirkomulag raforkuflutn- inga og uppbyggingu meginflutn- ingskerfisins. Eftir Geir A. Gunnlaugsson » Takmarkanir á orku- afhendingu og af- hendingaröryggi er far- ið að standa í vegi fyrir almennri atvinnu- uppbyggingu víða á landinu og þar með byggðaþróun. Geir A. Gunnlaugsson Höfundur er stjórnarformaður Landsnets. Þörf á víðtækri sátt um framtíð flutnings raforku

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.