Morgunblaðið - 10.10.2015, Qupperneq 57
MENNING 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2015
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Menningarhátíð Seltjarnarness nýt-
ur liðsinnis um tvö hundruð manna
sem munu leggja sitt af mörkum við
að skora á skilningarvit gesta á fjög-
urra daga hátíð sem fer fram dagana
15.-18. október.
Sérstakur gaumur verður gefinn
að verkum Helga Hrafns Jónssonar
sem hefur átt mikilli velgengni að
fagna í hinu alþjóðlega tónlistar-
umhverfi auk þess sem rithöfund-
urinn Jenna Jensdóttir verður
heiðruð ásamt fjölda viðburða. Há-
punktur hátíðarinnar verða tón-
leikar með Helga og dönsku söng-
konunni Tinu Dickow auk félaga,
sem nýlega fóru í tónleikaferðalag
um Evrópu. Tónleikarnir verða í Fé-
lagsheimili Seltjarnarness á laugar-
dag, 17. október, og er uppselt á þá.
Aukatónleikar verða haldnir á
sunnudeginum en einnig er uppselt
á þá. Meðal viðburða má nefna að
Tónlistarhátíð Nesbúa verður haldin
á laugardeginum, 17. október, í Sel-
tjarnarneskirkju. Þar mun klassísk
tónlist fá að njóta sín bæði í hljóð-
færaleik og söng. Aðgangseyrir er
1.500 kr.
Þá býður ungmennaráð Seltjarn-
arness öllum í lauflétt „pop quiz“
föstudaginn 16. október á veit-
ingastaðnum Rauða ljóninu. Spurn-
ingahöfundur og spyrill er sjón-
varpsmaðurinn Björn Bragi
Arnarsson.
Jenna heiðruð
Sérstök heiðursdagskrá verður
um hinn ástsæla rithöfund Jennu
Jensdóttur (f. 1918). Sem rithöf-
undur og persóna hefur Jenna verið
áhrifavaldur í lífi margra þjóð-
þekktra einstaklinga, sem nú stíga
fram og varpa ljósi á líf og verk
Jennu. Fram koma Ásgerður Hall-
dórsdóttir, Egill Eðvarðsson, Jenna
Jensdóttir, Jón Gnarr, Katrín Jak-
obsdóttir, Styrmir Gunnarsson og
Þorgrímur Þráinsson. Ótaldir eru
margir viðburðir sem hægt er að
kynna sér á heimasíðu Seltjarnar-
nesbæjar.
Morgunblaðið/Kristinn
Heiðruð Jenna Jensdóttir rithöf-
undur verður heiðruð á hátíðinni.
Skorað á skilningar-
vitin á Seltjarnarnesi
Myndlistarmað-
urinn Joris
Rademaker opn-
ar sýningu í
Mjólkurbúðinni í
Listagilinu á Ak-
ureyri í dag kl.
14. Á henni sýn-
ir hann ný verk
eftir sig og eru
þau bæði í tví-
vídd og þrívídd.
Sýningin stendur til 18. október
og er opin frá kl. 14-17 helgarnar
10. og 11. október og 17. og 18.
október.
Rademaker í
Mjólkurbúðinni
Joris
Rademaker
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Maður er alltaf að leita eftirtónlist. Alltaf. Eitthvaðnýtt, eitthvað spennandi,
eitthvað sem passar vel við hjartað
og sáluna. Maður er drifinn áfram
af hálfgerðum ótta, ótta við að
maður sé mögulega að missa af
„uppáhalds“ plötunni sinni sé mað-
ur með eyrun í skauti. Hvað ef ég
hefði ekki keypt þetta Melody Ma-
ker þarna árið 1991 og ekki lesið
viðtalið við Mark Hollis um nýút-
komna plötu Talk Talk, Laughing
Stock? Það er því betra að vera á
verði og með alla anga úti (OK,
þetta er farið að hljóma hálf geð-
veikislega en þetta er skrifað undir
miðnætti í enda langs dags. Stund-
um eru það reyndar bestu pistl-
arnir. Stundum ekki).
Smá
Einu sinni rambaði ég á plötu
sem heitir Silver Bell eftir söng-
konuna Patty Griffin. Ég kannaðist
við nafnið en hún fyllir flokk amer-
ískra söngkvenna sem syngja tón-
list sem er á mörkum þjóðlaga-
tónlistar, kántrís, blús og allra
handa tónlistar sem liggur í rótum
Ameríkunnar. Lucinda Williams,
Sarah Harmer, Tift Merrit eru
nöfn sem falla öll undir þennan
hatt og andleg systir er líka Em-
mylou Harris sem kemur reyndar
við sögu á nefndri plötu. Ég smellti
plötunni á og bjó mig undir þetta
vanabundna, þekkilega róta-rokk;
eitthvað hugljúft og þægilegt og
var því í raun að leita eftir ein-
hverju kunnuglegu fremur en ein-
hverju nýju eins og ég lýsti að of-
an. Það var samt eitthvað við
umslagið sem vakti forvitni mína,
mér rann sá grunur í hug að það
væri mögulega eitthvað óvanalegt
þarna líka. Og svo var, fyrsta lagið,
„Little God“, var óvenjumyrkt,
snúið og skælt og með því var tónn
Í þjónustu ástarinnar
Beintengd Hin bandaríska Patty Griffin er hljómlistarkona af Guðs náð.
plötunnar settur. Ég varð hugfang-
inn. Komst svo að því að þessi plata
átti að koma út sem þriðja plata
Griffin árið 2000 en var sett í
skúffu af útgáfunni hennar. Kom
svo út 2013 loksins eftir að Glyn
Johns hafði endurhljóðblandað
upptökurnar sem sjálfur Daniel
Lanois hafði gert (en hann tók ein-
mitt upp hina glæstu Wrecking
Ball sem Emmylou Harris gaf út
1995).
Kvöldúlfur
Það sem fram hefur komið er
upptaktur að nýrri plötu Griffin,
Servant of Love, sem kom út í end-
aðan september. Í þetta sinnið er
ekki um þrettán ára gamlar upp-
tökur að ræða heldur spánnýjar og
hér fer Griffin – að vanda – þær
leiðir sem hana fýsir að fara.
Áferðin hér er mjög athyglisverð.
Þung, án þess að vera þunglynd-
isleg. Lögin taka sér tíma og það er
krossað yfir í hina og þessa stíla og
þeim óhikað blandað saman. Fyrsta
lagið er nokkurs konar jaðardjass
en svo er þarna þjóðlagatónlist,
blús, rokk og honkítonk. Allt er
þetta þó framreitt í höfgi bundinni
leiðslu nánast, draumkenndur blær
liggur yfir öllu hérna. Hljómar frá
Austurlöndum fjær læðast meira
að segja inn og manni verður þá
óneitanlega hugsað til Roberts
gamla Plants sem hefur dýft tám í
þá strauma einnig. Griffin og Plant
voru par lengi vel en skildu um það
leyti sem Silver Bell kom út. Úr því
er og unnið í nokkrum lögum hér.
Griffin á nú að baki ansi til-
komumikinn feril, listamenn eins
og Joan Baez og Dixie Chicks hafa
t.a.m. breitt yfir lög hennar, og
hún nýtur óskoraðrar virðingar.
Þessi plata færir heim sanninn um
af hverju svo er.
» Allt er þetta þóframreitt í höfgi
bundinni leiðslu nánast,
draumkenndur blær
liggur yfir öllu hérna.
Patty Griffin er með merkari söngvaskáldum Bandaríkjanna Servant of
Love er níunda breiðskífa hennar Fer þær leiðir sem hana fýsir að fara
KLOVN FOREVER 2,5:50,8,10:10
THE MARTIAN 3D 7,10
EVEREST 3D 2,5,8
SICARIO 10:30
PAN 2D ÍSL - FORSÝNING 4:30
HÓTEL TRANSYLV. 2D ÍSL 1:50
HÓTEL TRANSYLV. 2D ENS 3:50 (ótextuð)
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
TILBOÐ KL 2
TILBOÐ KL 2
TILBOÐ KL 1:50
FORSÝND UMHELGINA