Morgunblaðið - 10.10.2015, Side 60
LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 283. DAGUR ÁRSINS 2015
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 838 ÁSKRIFT 5295 HELGARÁSKRIFT 3307 PDF Á MBL.IS 4696 I-PAD ÁSKRIFT 4696
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Lokaði sig inni í sex daga
2. Sá eini sem ekki var boðið
3. Nafn mannsins sem lést
4. Magnús í 18 mánaða fangelsi
Skúli Sverrisson bassaleikari og
Kjartan Sveinsson hljómborðsleikari
efna til tónleika í Mengi á Óðinsgötu
2 í kvöld kl. 21. Flutt verður tónlist
sem upphaflega var samin fyrir
Tectonics-tónlistarhátíðina.
Morgunblaðið/Golli
Tónleikar Skúla og
Kjartans í Mengi
Eftir að hafa
neyðst til að
fresta tónleikum
sínum í vor eru
norðlensku ten-
órarnir Óskar Pét-
ursson, Árni Geir
Sigurbjörnsson
og Kristján Jó-
hannsson komnir
aftur af stað. Þeir munu syngja í Mið-
garði í kvöld kl. 20 og bjóða upp á
fjölbreytta efnisskrá þar sem helstu
tenórsmellir Íslendinga fá að hljóma,
skv. tilkynningu.
Norðlensku tenórarn-
ir syngja í Miðgarði
Listmálararnir Tolli Morthens og
Finnbogi Kristinsson, keramikerinn
Lana Matusa, Karl Gústaf Dav-
íðsson gullsmiður, Gilbert úrsmiður,
Karin Esther glerlistakona og Jón
Adólf Steinólfsson mynd-
höggvari opnuðu list-
sýningu í galleríinu
Arti Legi í hollensku
ostaborginni Gouda
í fyrradag, 8.
október. Sýn-
ingin stendur
til 1. nóv-
ember.
Opnuðu listsýningu í
ostaborginni Gouda
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg suðaustlæg átt með morgninum og bjart að mestu N-lands,
en skýjað með köflum fyrir sunnan. Bætir í vind og úrkomu syðst í kvöld. Hiti 2 til 8 stig.
Á sunnudag Vestlæg átt 5-10 m/s, en norðaustan 5-13 norðantil. Rigning með köflum,
en rigning eða slydda fyrir norðan. Hiti 1 til 8 stig.
Á mánudag Fremur hæg suðlæg eða breytileg átt, skýjað með köflum, en stöku él fyrir
norðan. Gengur í sunnan 8-13 með rigningu vestantil síðdegis. Hiti 1 til 9 stig.
„Þetta er mesti heiður sem ég get
hugsað mér, eitt stærsta félag í
heiminum. Þetta er ekki eitthvert
venjulegt knattspyrnufélag, þetta er
einstakt félag. Þetta er auðvitað al-
veg óraunverulegt en ég verð að taka
því. Ég vaknaði í morgun og er knatt-
spyrnustjóri Liverpool. Ég er tilbú-
inn,“ sagði Jürgen Klopp meðal ann-
ars á blaðamannafundi í gær. »4
Klopp heillaði alla
á blaðamannafundi
„Það breytti ekki miklu
hvort Janus spilaði á miðj-
unni eða sem hægri skytta;
hann skoraði bara eða kom
með frábæra línusendingu.
Það sama má segja um
Tjörva. Það var unun að
horfa á þá spila og eru þeir
báðir með mikla hand-
boltahæfileika,“ segir
meðal annars í umfjöllun
um leik Hauka og ÍR sem
Haukar unnu 38:23. »2
Unun að horfa á
Janus og Tjörva
Verðum að spila
betri sóknarleik
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
„Ég ætlaði ekki að þora þetta en
Andri hvatti mig áfram. Ég er mjög
lofthrædd að eðlisfari og þorði því
ekki að horfa mikið niður,“ segir
Ása Steinarsdóttir sem kleif nýver-
ið fjallið Huashan í Kína ásamt
kærasta sínum, Andra Wilberg
Orrasyni. Huashan, sem er 2.100
metra hátt, er þekkt fyrir eina
hættulegustu gönguleið heims, en
stígarnir eru þröngir og þverhípt
niður. Áður fyrr var talið að um
hundrað manns létust í fjallinu á
hverju ári. Fjallið er eitt af fimm
heilögum fjöllum Kína og víða á því
má finna musteri sem tilheyra kín-
verskri þjóðtrú (taóismi). Gangan
hefur því trúarlega merkingu fyrir
marga.
Á köflum er gönguleiðin afar
háskaleg þar sem grannir tré-
plankar eru festir við bergið með
nöglum, sem eru sumstaðar vel
ryðgaðir, að sögn Ásu. Öryggisbún-
aði með línum hefur nýlega verið
komið fyrir þar sem fjallgöngugarp-
ar geta fest sig við línu.
Ekki fyrir lofthrædda
Ása og Andri lögðu af stað í fjall-
gönguna að nóttu til og voru komin
upp á toppinn við sólarupprás.
„Þetta er ekki fyrir lofthrædda,“
segir Ása. Hún þorði varla að horfa
niður en Andra fannst þetta bara
gaman. Þau sögðust bæði hafa verið
ánægð með gönguna, sem var nokk-
uð strembin, en veðrið var einstak-
lega gott þennan dag.
Parið hefur flakkað um heiminn
frá byrjun árs. Í mars, þegar Morg-
unblaðið hafði síðast samband við
þau, voru þau nýkomin frá Íran og
höfðu ferðast víða um Mið-Austur-
lönd. Síðan þá hafa m.a. Indland,
Srí Lanka, Kína, Japan og Mongólía
bæst við. „Það var mjög gaman í
Mongólíu og fróðlegt að sjá hversu
frumstætt landið er. Lítið er um
vestræn áhrif og margir ferðast enn
að mestu um á hestum, ekki ósvipað
og á Íslandi fyrir 150 árum,“ segir
Andri.
Norður-Kórea næst
Ferðalagið hefur gengið mjög vel,
að þeirra sögn. Þau voru í litlum bæ
við landamæri Kína og Norður-
Kóreu þegar haft var samband við
þau. Í dag eru þau í Norður-Kóreu
þar sem þau dvelja í þrjá daga, en
þangað komast þau ekki án þess að
hafa leiðsögumann með sér. Á þess-
um þremur dögum verða þau vitni
að 70 ára afmæli kóreska verkalýðs-
flokksins. „Þetta er einn af fáum
dögum sem Norður-Kóreubúar geta
dansað að vild úti á götum höfuð-
borgarinnar, Pyongyang,“ segir
Andri. Næstu áfangastaðir eru m.a.
Filippseyjar og Nepal, en þau
stefna á að enda aftur í Mið-
Austurlöndum. Þau ætla ekki að
koma heim fyrr en snemma á næsta
ári eða þegar „fjármagnið klárast“.
Hægt er fylgjast með þeim á
ferðabloggsíðunni:fromiceto-
spice.com.
Þorði ekki að horfa niður
Fóru í eina
hættulegustu
fjallgöngu heims
Brosað fyrir myndavélina Ása er lofthrædd en lét slag standa og kleif fjallið Huashan í Kína sem er 2.100 metra hátt.
Ekki lofthræddur Andri naut fjallgöngunnar og leit iðulega niður.
„Fyrst og fremst verðum við að leika
betri sóknarleik gegn Þjóðverjum en
við gerðum gegn Frökkum. Við verð-
um að skora fleiri mörk,“ sagði Ágúst
Þór Jóhannsson landsliðsþjálfari. Ís-
lenska kvennalandsliðið mætir Þjóð-
verjum í undankeppni EM í Vodafone-
höllinni á morgun. »3