Morgunblaðið - 28.10.2015, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 2015
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
BOZZ
sturtuklefi
80x80cm
41.990
Fást einnig í 90x90cm á
kr. 43.990. Einnig eru til
rúnnaðir 90x90 klefar
á kr. 43.990
Sturtustöng og -brúsa fylgja.
GÆÐAVARA
Vatnslás og botnventill frá
McAlpine seldur sér á kr. 1.290
Guoren-BO Hitastýrt
tæki með niðurstút
kr.13.990
Þing BSRB hefst í dag með setning-
arathöfn á Hótel Nordica kl. 10. Elín
Björg Jónsdóttir, formaður BSRB,
mun flytja setningarræðu sína og að
því loknu mun Bjarni Benediktsson
fjármálaráðherra ávarpa þingið, sem
stendur fram á föstudag.
Á vef BSRB er vakin athygli á því
að þingið fari fram þrátt fyrir óvissu
um stöðu kjaraviðræðna þriggja fjöl-
mennustu aðildarfélaganna, sem
semja við ríkið, þ.e. SFR, sjúkraliða
og lögreglumanna. Að óbreyttu hefj-
ist tveggja sólarhringa allsherjar-
verkfall á miðnætti í kvöld, hafi
samningar ekki tekist.
Meðal þess sem BSRB-félagar
munu ræða eru tillögur stjórnar að
stefnu bandalagsins, til umræðu í
málaefnahópnum. Elín Björg Jóns-
dóttir, formaður BSRB, segir þessar
tillögur að langmestu leyti vera
byggðar á stefnu BSRB sem sam-
þykkt var á síðasta þingi, 2013. Mörg
þessi mál hafi verið til umræðu árum
saman. Meðal tillagna er að lögfest
verði að vinnuvikan sé ekki lengri en
36 stundir. Þá krefst BSRB þess að
sérstök launaþróunartrygging verði
lögfest í kjarasamninga opinberra
starfsmanna. Tryggja þurfi sam-
ræmi í launaþróun á milli almenna
og opinbera vinnumarkaðarins.
Í tillögu um lífeyrismál segir m.a.:
„Ríkissjóður verður að standa við
skuldbindingar sínar við lífeyrissjóði
opinberra starfsmanna. Ekki má
hrófla við þegar áunnum réttindum
opinberra starfsmanna og allar
breytingar á lífeyrismálum verða að
vera unnar í fullu samráði við sam-
tök þeirra.“ Þá er tekið fram að ný-
skipan í lífeyrismálum kalli á heild-
arendurskoðun launa opinberra
starfsmanna. Launakannanir hafi
sýnt fram á að munurinn á launum
starfsmanna á almenna og opinbera
markaðnum sé um 17%.
„Komi til samræmingar á lífeyr-
isréttindum milli hins almenna og
opinbera vinnumarkaðar verður að
bæta opinberum starfsmönnum það
upp með leiðréttingu launa,“ segir í
tillögum stjórnar BSRB, sem hefur
átt aðild að viðræðum SALEK-
hópsins, sem kynnti samkomulag
sitt í gær. bjb@mbl.is
Vilja tryggja launaþróun
opinberra starfsmanna
Morgunblaðið/Ómar
BSBR Elín Björg Jónsdóttir, for-
maður, á síðasta þingi bandalagsins.
Þing BSRB hefst í dag þrátt fyrir annir í kjaraviðræðum
SVIÐSLJÓS
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Fyrirtæki sem framleiða vöru og
þjónustu til útflutnings eða í sam-
keppni við innflutning móta svigrúm
til launabreytinga á Íslandi og svig-
rúm til launabreytinga verður skil-
greint út frá samkeppnisstöðu gagn-
vart helstu viðskiptalöndum. Þetta
er meðal þess sem er að finna í
drögum að nýju samningalíkani sem
aðilar vinnumarkaðarins hyggjast
þróa fyrir árslok 2017.
Aðilar vinnumarkarins hafa
fundað stíft að undanförnu undir
formerkjum SALEK-hópsins með
það fyrir augum að koma á sátt á
vinnumarkaði.
Hópurinn boðaði til blaðamanna-
fundar í Iðnó í gær þar sem sam-
komulag þeirra á milli var undirrit-
að og breytt vinnubrögð við gerð
kjarasamninga voru kynnt.
Markmið samkomulagsins er að
tryggja varanlega kaupmáttaraukn-
ingu launafólks á grundvelli lágrar
verðbólgu, stöðugs gengis krónunn-
ar og lægri vaxta.
Stofnað verði Þjóðhagsráð
Með samkomulaginu er lagður
grunnur að meiri sátt á vinnumark-
aði og félagslegur stöðugleiki
tryggður. Aðilar samkomulagsins
gera sér grein fyrir því að vinnu-
markaðurinn spilar stórt hlutverk í
samspili við stjórn opinberra fjár-
mála og peningamála við það að
tryggja stöðugleikann.
Samkomulagið kveður á um að
svokölluðu Þjóðhagsráði verði kom-
ið á, en slíkt ráð hefði það hlutverk
að greina efnahagslega stöðu Ís-
lands og ræða samhengi ríkisfjár-
mála, peningastefnu og vinnumark-
aðar í tengslum við helstu
viðfangsefni hagstjórnar hverju
sinni.
Sameiginleg launastefna
Með samkomulaginu er fallist á
sameiginlega launastefnu á opin-
berum og almennum vinnumarkaði
til ársloka 2018, en tíminn fram að
því yrði nýttur til að þróa nýtt
samningalíkan við gerð kjarasamn-
inga að norrænni fyrirmynd. Nið-
urstaða úr þeirri vinnu á að liggja
fyrir eigi síðar en í árslok 2017.
Með sameiginlegu launastefnunni
er átt við að launastefnan verði sam-
ræmd í sameiginlegri kostnaðarvísi-
tölu þar sem vísitalan stendur í 100 í
nóvember 2013.
Út frá þessum sameiginlega
kostnaðarramma mega kostnaðar-
áhrif kjarasamninga, að meðtöldum
kostnaði vegna jöfnunar lífeyrisrétt-
inda, ekki leiða til meiri hækkana en
sem nemur því að vísitalan standi í
132 í árslok 2018. Má vísitöluhækk-
un kostnaðar kjarasamninga því
ekki hækka meira en 32 prósent á
samningstímanum.
Tryggja fyrir launaskriði
Þeim opinberu starfsmönnum
sem aðilar eru að samkomulaginu
verður á næstu þremur árum tryggt
það launaskrið sem verður á al-
mennum vinnumarkaði umfram
launaskrið á opinberum vinnumark-
aði.
Launaskriðstryggingin verður
metin og framkvæmd miðað við árs-
lok hvert ár en samningsaðilar þurfa
fyrst að hafa lokið gerð kjarasamn-
ings á forsendum sameiginlegrar
launastefnu til 2018. Atvinnurekend-
ur á bæði almenna og opinbera
markaðnum skuldbinda sig til þess
að framfylgja launastefnunni gagn-
vart þeim hópum sem standa utan
samkomulagsins sem kynnt var í
gær.
Einnig er það sett sem skilyrði
fyrir launaskriðstryggingunni að
samkomulag um jöfnun lífeyrisrétt-
inda á opinberum og almennum
markaði liggi fyrir og eins að samn-
ingsaðilar hafi náð samkomulagi um
forsenduákvæði í núgildandi kjara-
samningum en forsenduákvæði eru í
fjölmennum kjarasamningum sem
kveða á um tengingu við launaþróun
annarra hópa og kaupmáttarvið-
miðun.
Þá segir í samkomulaginu að
verði kostnaðarhækkun á
tímabilinu meiri en sam-
kvæmt fyrrgreindum
kostnaðarramma, þ.e.
yfir 32%, verði sú
hækkun dregin frá
launaauka vegna
launaskriðstryggingar
uns jöfnuði er náð.
Til þess að sáttin
fram til 2018 nái
fram að
ganga þarf
samkomulag að nást við stjórnvöld
fyrir 1. febrúar á næsta ári um
mótvægisaðgerðir til að stuðla að
efnahagslegum stöðugleika á tíma-
bilinu.
Enn fremur er tilgreint að sam-
eiginlegur skilningur þurfi að nást
á milli aðila vinnumarkaðarins og
stjórnvalda um fjármögnun, stöðu
og stjórnun lykilstofnana vinnu-
markaðarins; Atvinnuleysistrygg-
ingasjóðs, Ábyrgðasjóðs launa og
Fæðingarorlofssjóðs, við þróun nýs
vinnumarkaðskerfis. Efla þarf
samstarf aðila vinnumarkaðarins
og stjórnvalda á hverjum tíma, með
því að virkt samráð sé þar á milli og
unnið sé sameiginlega að því að
tryggja félagslegan stöðugleika og
víðtæka sátt um forgangsröðun í
velferðarmálum.
Loks skal peningastefnan endur-
skoðuð í samhengi við nýtt samn-
ingalíkan á vinnumarkaði og ljúka
skal við innleiðingu laga um opin-
ber fjármál til þess að stuðla að
efnahagslegum stöðugleika.
Að samkomulaginu komu ASÍ,
BSRB, SA, SÍS, Reykjavíkurborg
og Samninganefnd ríkisins.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Táknrænt Mikill samhugur sveif yfir vötnum þegar forystumenn aðila vinnumarkaðarins tóku höndum saman í Iðnó í gær. Skapa á sátt á vinnumarkaði.
Horft til framtíðar á vinnumarkaði
SALEK-hópurinn lagði drög að breyttu samningalíkani með undirritun samkomulags í Iðnó í gær
Lítil verðbólga og stöðugt gengi grunnur kaupmáttaraukningar Sameiginleg launastefna til 2018
Þórunn Sveinbjarnardóttir,
formaður BHM, segir að kraf-
an um tengingu við lífeyris-
réttindi opinberra starfs-
manna hafi ráðið úrslitum um
að BHM hafi ákveðið að
standa ekki að samkomulag-
inu sem kynnt var í gær. BHM
og KÍ komu að vinnu SALEK-
hópsins á fyrri stigum en
drógu sig út úr samkomu-
laginu áður en það var
kynnt. Þórunn sagði BHM
vilja og ætla að taka þátt
í því að smíða nýtt ís-
lenskt samningslíkan. BHM
telji vel hægt að samræma
launastefnur en ekki eigi að
blanda þar lífeyris-
málum inn í.
Ekki sátt um
lífeyrismálin
BHM VAR EKKI MEÐ
Þórunn
Sveinbjarnardóttir