Morgunblaðið - 28.10.2015, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 28.10.2015, Blaðsíða 18
FRÉTTASKÝRING Kristján Jónsson kjon@mbl.is Fyrirhuguð er stórfelldframleiðsla á sólarkíslihér á landi, en hann ernotaður í sólarsellur sem marga dreymir um að verði lausnin á orkuþörf mannkynsins. Einn af þeim er viðskiptajöfurinn og uppfinningamaðurinn Elon Musk, sem spáir því að sólarorka verði helsta orkulindin árið 2031. Í sólinni á nær öll orka á jörðinni uppruna sinn, með beinum eða óbeinum hætti, og lindin er í raun ótæmandi. Endurnýjanleg. En þótt hægt sé að beisla sólargeislana er nýtnin yf- irleitt ekki mikil, um 15% í venjuleg- um sólarsellum. Aðeins um 0,39% af allri framleiddri orku í Bandaríkj- unum eru nú úr sólarsellum. Margir hafa furðað sig á þeirri ofuráherslu sem Þjóðverjar hafa lagt á að nýta sólarsellur; varla get- ur Þýskaland talist sólríkt land. En þarlendir ráðamenn vilja fórna miklu til að gera þjóðina síður háða jarðefnaeldsneyti og hunsa þá hik- laust lögmál viðskiptalífsins um arð- semi. Reyndar eru vindorka og kjarnorka einnig háð margvíslegum niðurgreiðslum og styrkjum, ella væru þessar orkulindir ónothæfar. En í suðlægum löndum er augljóst að sólarorka hlýtur að geta í það minnsta orðið góð búbót í heimi sem enn er að langmestu leyti háður kol- um, gasi og olíu varðandi orku- neyslu. Ísland er undantekningin sem sannar regluna; við notum mikið af vatnsafli og jarðhita. Ekki alveg gagnsæjar rúður Sums staðar vestanhafs hafa menn getað framleitt orku með sól- arsellum í gluggum háhýsa. Vandinn er að þá verða rúðurnar svo dökkar eða lítt gagnsæjar að útsýnið er lé- legt. Orkunýtnin er einnig lítil, um sjö prósent, og sumum finnst sell- urnar lýta húsin. Markmiðið með gluggarúðum er einmitt að hleypa birtunni inn svo að hún geti end- urkastast af sjónhimnunni og gert okkur kleift að sjá hlutina, hvort sem er inni eða utan við gluggann. Við viljum sjá almennilega út, ekki enda- lausa þoku. Séu notaðar hefðbundnar, ljós- næmar sellur við gluggarammana geta þær ekki verið gagnsæjar vegna þess að þær framleiða orkuna með því að taka í sig svonefndar ljós- eindir og umbreyta þeim í elek- trónur, segja fræðimenn. Ef sellan væri alveg gagnsæ færu ljóseind- irnar óhindraðar í gegnum efnið og gætu því ekki framleitt neina orku, segir í vefritinu Digital Trends. En í fyrra var skýrt frá því að vísindamenn við Ríkisháskólann í Michigan hefðu unnið afrek. Þeim hafði tekist að búa til nýja gerð af sólarsellu, TLSC, sem nýtti orkuna í umbreyttum, ósýnilegum inn- rauðum og útfjólubláum sólar- geislum. Sellan er nær alveg gagnsæ en samt fær um að safna saman sólarorku. Glerið sjálft er þó ekki sólarsella heldur gagnsætt efni, gert úr lífrænum söltum sem nýta bylgjulengdir umræddra geisla, safna þeim saman, segir í vefritinu ZME Science. Enn sem komið er nýtnin þó allt of lítil, innan við 1%. Því fer því fjarri að nýja tæknin sé hagkvæm, hvað þá á færi venju- legs fólks. Ekki enn. Menn eru samt bjartsýnir og segja að frekari til- raunir geti skilað miklu betri nýtingu. Reynist það rétt gætu snillingarnir hjá Michigan-ríkisháskól- anum jafnvel búið til sellur af þessum toga í smátæki á borð við far- síma. Þá gæti fólk hlaðið gemsann úti á götu. Mun sólin hlaða batt- erí háhýsa og gemsa? Orkuvinnsla Víða nýta menn nú sólarsellur og beisla þannig hreina og óþrjótandi orkulind. Hér eru sellur festar á húsþak í Bandaríkjunum. 18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 2015 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Peking-stjórnin hef-ur ausið skömmum yfir Bandaríkin eftir að bandaríski tund- urspillirinn USS Lassen sigldi á mánudaginn innan 12 mílna frá manngerðri eyju í Spratly-eyjaklasanum í Suður-Kínahafi. Kínverjar hafa verið duglegir að byggja upp slíkar eyjar á síðustu miss- erum, með því að taka sand af hafsbotni og fylla upp land á kóralrifum. Slík landfylling er bæði kostnaðarsöm og umdeild, en talið er að Kínverjar vilji með henni renna styrkari stoðum undir víðtækar kröfur sínar um yfirráð yfir Suður-Kínahafinu, þar sem eru sumar af mik- ilvægustu skipaflutningaleið- um Kyrrahafsins. Gallinn er þó sá að kröfur Kínverja ná nán- ast upp að ströndum ríkjanna sem einnig eiga kröfur; Fil- ippseyja, Malasíu og Víetnam. Þá hafa Kínverjar jafnframt hafnað öllum hugmyndum um að láta alþjóðlega aðila skera úr um réttmæti krafnanna. Aðgerð Bandaríkjamanna var að sjálfsögðu ætlað að ögra Kínverjum og láta þá vita að þeir gætu ekki ætlast til þess að aðrar þjóðir létu undan yfir- gangi þeirra svo glatt. Á hitt ber að líta að fara verður var- lega í allar slíkar aðgerðir og tryggja að sem fæst geti farið úrskeiðis. Kínverjar segja sig vera í fullum rétti til þess að búa eyjarnar til og eflaust er það rétt í ein- hverjum tilfellum. Engu að síður verður að ítreka að ekki er hægt að ætlast til þess að aðrar þjóðir sem eiga land að Suður-Kínahafi sætti sig við óskoruð yfirráð Kínverja yfir landgrunninu möglunarlaust. Mikilvægi þessa helgast ekki síst af því að um þessi sund fara árlega vörur upp á marga milljarða Bandaríkja- dala, og mikið af þeim tengist bandarískum viðskiptahags- munum. Það skiptir því Banda- ríkin miklu máli að ekkert ríki geti einhliða helgað sér þetta hafsvæði og jafnvel meinað flutningaskipum að komast leiðar sinnar. Á það ekki bara við um Kínverja, heldur einnig Víetnama, Taívani, Malasíubúa og Filippseyinga, sem allir hafa fetað í sömu fótspor og byggt upp eyjar á kóralrifjum til þess að undirbyggja kröfur sínar. Ólíkt Kínverjum hafa þessi ríki hins vegar fagnað að- gerð Bandaríkjanna á mánu- daginn. Kínversk stjórnvöld máttu gera ráð fyrir þessum við- brögðum Bandaríkjanna og annarra og geta búist við áframhaldandi siglingum af sama tagi. Mikilvægt er að ástandið á svæðinu fari ekki úr böndum og að samkomulag ná- ist um lögsögu einstakra ríkja. Það samkomulag getur þó ekki byggst á því að önnur ríki láti undan yfirgangi Kínverja. Ríki geta ekki fært út landamæri sín með bygginga- starfsemi á hafi úti} Tekist á um landakröfur Þegar Kanada-menn boðuðu til kosninga í ágúst áttu ekki margir von á öðru en að Stephen Harper forsætisráðherra myndi ná að tryggja sér fjórða kjörtímabilið. Talið var að hin tiltölulega langa kosningabar- átta, sem stóð í 78 daga, myndi nægja til þess að sannfæra kanadíska kjósendur um það að efnahagur landsins væri best geymdur í höndum íhalds- manna, þar sem hann hefur verið síðustu níu árin. Annað kom á daginn, þar sem Frjálslyndi flokkurinn undir forystu Justin Trudeau náði að auka fylgi sitt um 20 prósentustig og bæta þannig fyrir hið mikla afhroð sem flokkurinn beið fyrir fjórum ár- um, þegar hann fékk einungis 36 þingmenn af 338. Fyrir vikið náði Trudeau óvænt hreinum meirihluta. Í kosningabaráttunni stóð hinn 44 ára gamli Trudeau af sér ýmsar árásir andstæðinganna, sem sögðu hann vera of ungan og reynslulausan til þess að geta stýrt landinu. Í efna- hagsmálum boðaði Trudeau hærri skatta á efnafólk en skattalækkanir á millistéttina, auk þess sem hann hefur opnað á þann möguleika að Kanada hætti þátttöku í loftárásum á Ríki íslams en beiti sér frekar með öðrum hætti í flótta- mannamálum Mið-Austur- landa. Ljóst er að með Trudeau munu áherslur í kanadískum stjórnmálum og samfélagi breytast nokkuð. Hugsanlega verður helsta áskorun hans þó stöðugur samanburður við föð- urinn, Pierre Trudeau, einn eftirminnilegasta og áhrifa- mesta forsætisráðherra Kan- ada fyrr og síðar. Hyggi Tru- deau hinn yngri á farsælan stjórnmálaferil verður hann að komast út úr skugga föður síns. Annar Trudeau tekur við stjórninni í Kan- ada og boðar ýmsar breytingar } Óvæntur sigurvegari í Kanada É g var staddur við setningu á listahátíð í haust (ekki Listahá- tíð), þar sem ráðherra flutti fjör- lega ræðu. Þegar talið barst að íslenskri menningu og mik- ilvægi hennar varðandi tiltekið listform fannst ráðherra greinilega hann hafa farið á of mikið flug í þjóðernismetnaði, þagnaði stundarkorn og sagði svo afsakandi: „Ég er farinn að tala eins og Útvarp Saga.“ Salurinn sprakk af hlátri. Nokkru síðar var ég staddur á leiksýningu í atvinnuleikhúsi þar sem meðal annars kom við sögu það er Lydia Kamaka’eha Lili’uokalani, krónprinsessu Hawaii, var boðið til fimmtíu ára krýningarafmælis Viktoríu Bretadrottn- ingar. Eins og aðalleikarinn rakti söguna vildi Leópold II. Belgíukonungur, annálaður hrotti, ekki leiða Lili’uokalani til veislu þar sem hún væri þeldökk. Síðan staldraði leikarinn við og sagði svo: „Hann hefur hlustað of mikið á Útvarp Sögu.“ Salurinn sprakk af hlátri. Svo gerðist það í vikunni að tveir dánumenn úr Sjálf- stæðisflokknum tóku til máls undir lok landsfundar flokksins. Annar fékk gott hljóð, eins og hann lýsir því sjálfur (ég var ekki viðstaddur), en hinum var ekki eins vel tekið, því „lýðurinn“ ærðist, stappaði í gólfið og baulaði að sögn ræðumannsins sem varð að hætta máli sínu vegna óánægju viðstaddra. Þetta kemur nokkuð á óvart í ljósi þess að hann var aðeins að bergmála Útvarp Sögu og því hefði ég búist við því að salurinn hefði sprungið af hlátri, hlegið viðkomandi uppistandara niður úr ræðu- púltinu frekar en að baula á hann. Í útvarpsviðtali eftir þessa uppákomu ræddi viðkomandi þessa landsfundaruppákomu og sagðist hafa orðið fyrir aðkasti vegna þess að hann hefði kjark til að tjá skoðun sem væri sumu fólki ekki þóknanleg. Nú er það rétt hjá viðkomandi ræðumanni að hver á að hafa rétt til að taka til máls en þeir eiga ekki síður rétt til að tjá sig sem eru ósam- mála honum. Þeir mega líka segja skoðanir hans galnar og rasískar ef þeim sýnist svo – málfrelsi er fyrir alla. Svo á maður ekki að bera virðingu fyrir öllum skoðunum, sumar skoðanir eru nefnilega svo galnar að ekki er hægt annað en hafna þeim án umræðu. Á það til að mynda að vera viðurkennd skoðun að samkynhneigð sé viðurstyggð fyrir augliti drottins og rétt sé að lífláta homma? Viðurkennum við það sem skoð- un að svertingjar séu verr gefnir en hvítir, frekar apar en menn? Hvað með þá skoðun að konur séu karlinum óæðri og síðri að visku, dygð og hugrekki? En að múslímar séu upp til hópa blóðþyrstir villimenn – eigum við að við- urkenna það sem skoðun? Nú eða þá skoðun að gulir menn séu lævísir hrottar, á að bera virðingu fyrir þeirri skoðun? Nei, kæri lesandi. Að mínu viti eru slíkar og þvílíkar skoðanir í raun birtingarmynd á afhrakshugsunarhætti og þeir sem þær flytja eiga ekki heima í almennri umræðu. Og þó það sé vissulega hægt að hlæja að þeim, finn ég frekar til meðaumkvunar. arnim@mbl.is Árni Matthíasson Pistill Uppistand á landsfundi STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Reiknað hefur verið út að ef reynt yrði að fullnægja allri orkuþörf manna með bestu gerð af nútíma sólarsellum myndu þær þekja alls tæplega 600 þúsund ferkílómetra. Það er nærri sexföld stærð Íslands. En að sjálfsögðu myndu sell- urnar dreifast um allt þurrlendi jarðar og jafnvel hafið. Stór hluti þeirra yrði á húsþökum. Og ljóst er að ef enn fullkomnari tækni yrði hagnýtt myndi flatar- mál sellnanna geta orðið minna. Sólin er í reynd kjarnorku- knúin, þar fer fram stöðugur kjarnasamruni, endalaus vetn- issprenging. Orkan sem sólin varpar á jörðina á einni klukku- stund á dag samsvarar orku- þörf alls mannkynsins í tæpt ár, að sögn vísindamanna. Óþrjótandi kjarnorka SÓLIN ER STÓR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.