Morgunblaðið - 28.10.2015, Síða 23

Morgunblaðið - 28.10.2015, Síða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 2015 Kannski var það sterka byggt yf- ir það smáa, mjúka, brothætta til að vernda, hlúa að? Kannski kom þetta með okkur, í okkur, inn í líf- ið. Listhneigðar prjónakerlingar, bókaormar, slarkfærar í frönsku eftir dvöl á yngri árum í Frakk- landi sem au-pair. Eftir tíu ára vináttu komust við að því að við höfðum verið hjá sömu fjölskyld- unni! Sofið í sama herbergi í sveitinni. Tínt ber af sömu runn- um og baðaðst í sömu á, með rúmlega áratugar millibili. Elskuðum sama réttinn á sama veitingahúsi, Horninu, heimilislegt, hlýtt og vinalegt. Þú gaukar að mér skissubók, heimt- ar mynd af Horninu í hverri heimsókn. Ég klára hana á tíu sekúndum. Vinkill og ör sem bendir á hornið. Áhugamanneskjur um betra líf með heilt höfuð. Þekkja brest- ina sína, elska þá, forðast þá og umfram allt, leggja þá ekki á aðra, sem er ekki hægt í raun og sann. En það sem við þekkjum berum við líka kennsl á og getum sagt, þetta á ég, tekið ábyrgð, beðist afsökunar. Líf okkar snertist á skringi- legan hátt og á skringilegum stöðum. Líkar en ólíkar. Þú haltraðir undan hnjánum og höfðinu, ég undan bakinu og hjartanu. Eitt af síðustu símtölunum okkar; ég að keyra heim úr vinnu tárvot með brákað hjarta. Hringi í þig úr bílasímanum. Þú svarar og ég græt og hrópa, ég er svo vanmáttug í þessum aðstæðum. Þú tekur fræðilega afstöðu ráð- gjafa sem ég stoppa og hvísla, ekki núna, því núna þarf ég bara hlýju og vin. Ég veit, ég veit, tautar þú. Þegjum saman í þögn sem er ekki trufluð af snökti á öðrum endanum. Hún er góð þessi þögn, hún er einlæg, hún er nærvera. Á 13 árum hringdi ég jafn oft í þig með gangtruflanir í hjartanu og þú í mig með höfuðið á harða- spretti. Þú settir hjartað í samhengi fyrir mig þegar ég þurfti á því að halda. Mældir aldrei upp í mér vitleysuna. Dæmdir mig aldrei. Og gott betur, dæmdir aldrei þá sem settu á mig sár. Fólk í sárum særir annað fólk. Kenndir mér að hugsa fallega til þeirra. Fyrir mig. Í fallegum hugsunum býr frelsi. Ég gerði það sama fyrir þig, leiddi höfuðið niður á jörðina. Rétti þér tauminn. Benti þér á að leiðin á milli A og B er alltaf leið- in á milli A og B! Sú stutta, langa, framan eða aftanverða er samt sem áður leiðin á sama áfanga- stað. Ef þú vilt fara þangað, farðu þangað. Þú verður að velja fyrir þig. En það verður ekki heitt á norðurpólnum þótt þú mætir í bikiníi, svo klæddu þig eftir veðri. Það var gott að vera í kringum þig. Gott að faðma þig. Feimnin mín sem fæddist með mér og er með mér alltaf, eins og nýkreist sítróna á ostru, náði ekki þangað inn. Með þér átti ég vinskap sem óx fyrir þá staðreynd að í honum bjó ekkert annað en heiðarleiki, traust og stuðningur. Tvö meingölluð Guðsbörn leidd saman af lífinu og þrá um að lifa því betur, njóta þess betur, breyta því sem við gátum og sleppa tökum á því sem við gát- um ekki. Þú áttir sannarlega þína galla og ég mína. Það komu stundir sem við fundum báðar fyrir þeim. Eins og einu fölsku hljóðfæri í stórhljómsveit. Ekki yfirgnæf- andi en undirliggjandi. En gall- arnir mínir og gallarnir þínir voru þeir sömu og færðu okkur saman. Þess vegna héngu engar væntingar við vinskap okkar, sem gerði hann að sönnum vin- skap í sönnum aðstæðum, með sönnum kostum og göllum. Gallarnir komu ekki í ljós með tímanum eins og í flestum vina- samböndum, með tilheyrandi spennu og vinnu. Við keyptum köttinn í sekknum sem var að auki, stútfullur af öllu því falleg- asta og besta og græddum eftir því. Enginn hefur þekkt mig eins og þú þekktir mig. Ekki vegna þess að ég sé einfari sem líður best í eigin félagsskap og hleypi ekki mörgum að mér, heldur vegna þess að í þér bjó traust og kærleikur til að leyfa mér að vera sú sem ég er og elska mig þess vegna. Þú gafst mér svo mikið, kenndir mér svo margt, minnst um aðra, mest um mig, kenndir mér að sjá mig, setja sjálfri mér mörk en umfram allt að elska allt sem ég er og virða, skúmaskotin, skrímslin og birtuna líka. Fyrir þína tilvist er ég betri manneskja. Ákaflega sorgmædd með skrámur á hjartanu í stíl við þann missi að missa þig. Takk. Kolbrá Bragadóttir. ✝ Halldór Örnfæddist 9. júní 1962 og lést 17. október 2015. Foreldrar hans voru Árni Helga- son, fæddur 2. október 1936, dá- inn 3. desember 2001, og Erna Hall- dórsdóttir, fædd 31. maí 1936, dáin 4. júní 2001. Systkini Hall- dórs eru Helga Lára, Árni Valur, Ósk Reykdal, Ása Kristín, Theresa Linda, Helgi Gunn- ar og Birgitta Kara. Útför Halldórs fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 28. október 2015, klukkan 13. Fátækleg orð, ég veit það, kæri bróðir minn, en sögð og skrifuð af væntumþykju. En einnig af trega og eftirsjá yfir því að hafa ekki verið til staðar þegar syrti að. Þú áttir systkini sem þótti vænt um þig og hefðu aldrei yfirgefið þig. Halldór Örn heyrðist aldrei kvarta yfir örlögum sínum og því erfiða veikindastríði sem hann átti lengi vel í. Hann hélt ótrauður áfram sama hvað á gekk, var einfari sem fór sínar eigin leiðir. Núna þegar komið er að kveðju- stund er mér efst í huga þakklæti fyrir allt sem Halldór Örn var okk- ur, gjafmildur með stórt hjarta. Hann var ekki allra en hélt tryggð við sína nánustu. Bróður sínum, Helga Gunnari, var hann náinn og góður vinur. Elsku bróðir minn, mágur og frændi. Farðu heill í friðarheima, farðu heill í faðm foreldra þinna, farðu heill heim. Þá ég hníg í djúpið dimma, Drottinn, ráð þú hvernig fer. Þótt mér hverfi heimsins gæði – hverfi allt, sem kærst mér er: Æðri heimur, himnafaðir, hinumegin fagnar mér. (Matthías Jochumsson.) Þín systir, Helga Lára og fjölskylda. Halldór Örn Árnason www.uth.is -uth@uth.is Stapahrauni 5, Hfj. - Sími 565 9775 Frímann s: 897 2468 Hálfdán s: 898 5765 Ólöf s: 898 3075 ÚTFARARÞJÓNUSTA HAFNAFJARÐAR FRÍMANN & HÁLFDÁN ÚTFARARÞJÓNUSTA Okkar ástkæri KRISTJÁN VAGNSSON, Huldugili 60, Akureyri lést 19. október. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 30. október klukkan 13.30. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Heimahlynningu Akureyri, sem við þökkum af öllu hjarta ómetanlega hjálp og stuðning. . Hólmfríður Ingvarsdóttir, Álfheiður Svana, Jón Kjartan Jónsson, Rannveig, Þorvaldur Anfinnsson, Vagn, Lilja Filippusdóttir, Inga Jóna, Guðmundur Orri Bergþórsson, Svana Björnsdóttir, barnabörn, bræður og fjölskyldur þeirra. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar kærrar eiginkonu minnar, móður og ömmu, ARNDÍSAR ELLERTSDÓTTUR hjúkrunarfræðings. Sérstakar þakkir til starfsfólks Kvennadeildar Landspítalans fyrir góða umönnun. Guð blessi ykkur öll. . Mats Wibe Lund, Margit Robertet, Anita Lund, Christopher Lund, og barnabörnin Hlynur Smári, Manon, Bjargey, Arndís, Eliot og Ari Carl Ástkær faðir minn, JÓN LEIFUR MAGNÚSSON frá Akbraut, verður jarðsunginn frá Marteinstungukirkju laugardaginn 31. október klukkan 13. Fyrir hönd aðstandenda, . Linda Ósk Jónsdóttir. Eiginkona mín, móðir okkar og amma, HELENE MARIE BAATZ, kennari, lést á Líknardeild Landspítala þann 17. október. Útförin verður gerð frá Langholtskirkju föstudaginn 30. október klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Blóðmeina- og Krabbameinsdeildir, ásamt Heimahlynningu og Líknardeild Landspítala. . Ólafur Vigfússon, Olav, Sigrid og Asger Baatz, makar og barnabörn. Elsku maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÁSTVALDUR KRISTMUNDSSON, vörubifreiðarstjóri, lést á Landspítalanum 16. október. Jarðarförin fer fram frá Grafarvogskirkju 30. október klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið eða orgelsjóð Grafarvogskirkju. . Ellen J. Sveinsdóttir, Sveinn J. Ástvaldsson, Ingibjörg Á. Þ. Brekkan, Guðrún K. Ástvaldsdóttir, Kristrún L. Ástvaldsdóttir, Árni Gústafsson, Sigurður, Ellen Inga, Emil, Ársól Erla og Kári. Okkar elskulega móðir, tengdamóðir, systir, amma og langamma, SVAVA KRISTJANA SIGURÐARDÓTTIR, lést 23. október síðastliðinn á hjúkrunarheimilinu Skjóli. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík, föstudaginn 30. október kl 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarsjóð Hjúkrunarheimilisins Skjóls. . Einar Halldórsson, Jóhanna Sigurðardóttir, Guðfinnur Halldórsson, Þórir Halldórsson, Sigurbjörg Sigurbjörnsdóttir, Kristín Halldórsdóttir, Ragnar Lövdal, Þórunn Sigurðardóttir, ömmu- og langömmubörn. Móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN NANNA SIGURÐARDÓTTIR, áður til heimilis að Dalseli 36, Reykjavík, lést á Hrafnistu í Reykjavík 21. október s.l. Hún verður jarðsungin frá Hjallakirkju í Kópavogi föstudaginn 30. október kl 13. . Sigrún Stefánsdóttir, Guðjón Scheving Tryggvason, Eggert Stefánsson, Hildur Guðjónsdóttir, Stefán Guðjónsson, Steinar Guðjónsson. Hjartkær kona mín, dóttir, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, HANNA MARÍA GUNNARSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur, Æsufelli 4, Reykjavík, lést á heimili sínu 28. september slíðastliðinn. Útförin hefur þegar farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. . Bjarni Grímsson, Ásta Bryndís Guðbjartsdóttir, Grímur Bjarnason, Heiðrún Hafsteinsdóttir, María Bjarnadóttir, Gunnar Marteinsson, Helga Bjarnadóttir, Hilmar Bjarnason, Sólborg Gunnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, EDDA MARÍA EINARSDÓTTIR frá Krosshúsum, Grindavík, Laufvangi 14, Hafnarfirði, er lést fimmtudaginn 22. október verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 30. október klukkan 13. . Haukur Árnason, Einar Waldorff, Ragnheiður Anna Georgsdóttir, Hermann Waldorff, Dóra Birna Jónsdóttir, Dóra Waldorff, Magnús Sigurðsson, Þórður Waldorff, barnabörn, langömmubörn og aðrir aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.