Morgunblaðið - 28.10.2015, Page 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 2015
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Þetta er í þriðja sinn semvið höldum hrekkjavöku-boð hér heima fyrir vinistrákanna okkar í hverf-
inu. Boðið er á föstudeginum fyrir
sjálfan hrekkjavökudaginn og þá
koma krakkarnir hingað eftir skóla
og við skerum út grasker, skreyt-
um með köngullóarvefjum, haus-
kúpum og öðru viðeigandi. Síðast
en ekki síst pöntum við hrekkja-
vökuköku í Mosfellsbakaríi þar sem
bakararnir töfra fram hrekkjavöku-
kökur með rúllandi augum, af-
skornum fingrum og öðru girnilegu.
Krakkarnir koma til veislunnar í
hrekkjavökubúningunum sínum,
gæða sér á kökunni og horfa svo
saman á hryllingsmynd,“ segir
Gerður Kristný og Skírnir, 10 ára
sonur hennar, grípur orðið: „Núna
verður það teiknimyndin Para-
Norman, en hún segir frá strák
sem sér drauga og þegar upp-
vakningar ætla að ráðast á bæ-
inn þarf hann að gera eitthvað
í málinu, því hann getur talað
við uppvakningana.“
Gerður Kristný segist
kunna vel að meta hrekkja-
vökuna og henni finnst gam-
an að halda hrekkjavökuboð.
„Hér verða um tuttugu
manns, því vinirnir fá að
taka litlu systkini sín með.“
Amma í Skagafirði sér
um að sauma búningana
Í Skerjafirði þar sem Gerður
Kristný býr, er mikið fjör á
hrekkjavökunni, þá ganga
krakkarnir í búningunum
sínum milli húsa og fá
nammi hjá þeim sem
þau gleðja með nær-
veru sinni.
„Krakkarnir vita
alveg hvar þeim er
óhætt að banka því þeir
íbúar sem vilja fá
krakkana á tröppurnar
hjá sér setja lifandi ljós,
blöðrur, slaufur eða miða
utan við dyrnar hjá sér til að
gefa til kynna að þau séu vel-
Grasker, nornir og
nammi á hrekkjavöku
Hrekkjavakan verður um næstu helgi og þá ætlar Gerður Kristný að bjóða
krökkum að koma í búningum og hlusta á lestur upp úr nýjustu barnabókinni
sinni, Dúkku, en sagan sú er með þónokkru hryllingsívafi. Gerður Kristný er
ánægð með hrekkjavökuhefðina í hverfinu heima í Skerjafirði þar sem börnin
ganga milli húsa í búningum sínum. Hún heldur líka hrekkjavökuveislu með
afskornum kökufingrum, köngullóarvefjum og öðrum mátulegum óhugnaði.
Namm Afskornir fingur og
köngulló á kökunni sem
Gerður býður upp á.
Bókakaffið er viðburður sem er á mið-
vikudagskvöldum á kaffihúsinu í Gerðu-
bergi í Breiðholti, en þá er spjallað um
bækur af ýmsu tagi á léttum nótum á
meðan gestir njóta veitinga í notalegu
andrúmslofti.
Bókakaffið í kvöld hefst kl. 20 og er
yfirskrift þess: „Á landamærahafinu“ en
þar ætlar Daisy Neijmann að spjalla um
sögur Svövu Jakobsdóttur. Verk Svövu
hafa heillað ótal marga í hálfa öld, en hún
birti fyrstu smásögur sínar á sjöunda ára-
tugnum. Samt eru þær jafn ferskar, slá-
andi og áhrifamiklar í dag og þegar þær
komu fyrst út. Sögur hennar virðast búa
yfir þeim galdri að tala til lesenda á öllum
aldri og hvaðan sem er í heiminum.
Í erindi sínu ætlar Daisy að fjalla, frá
persónulegu sjónarhorni, um þennan
töfraheim Svövu þar sem landamæri
mynda lykilstef.
Daisy er hollensk að uppruna en hefur
lært íslensku í fjölda ára og kennt í ís-
lenskudeild ucl í London og er nú flutt til
Íslands þar sem hún er fastráðin í kennslu
í deild íslensku fyrir erlenda stúdenta.
Hún hefur gefið út og komið að útgáfu á
kennsluefni í íslensku fyrir útlendinga og
hún ritstýrði íslensku bókmenntasögunni
sem kom út á ensku nokkrum árum eftir
aldamótin. Daisy hefur verið að rannsaka
stríðsbókmenntir sérstaklega, með
áherslu á kvenímyndir.
Vefsíðan www.borgarbokasafn.is
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Svava Á leið úr Alþingishúsinu 1978. Hún sat á þingi á árunum 1971-1979 og
hafði afgerandi áhrif á umræður um jafnréttismál í íslensku samfélagi.
Spjall um sögur Svövu Jakobs-
dóttur á bókakaffinu í kvöld
Daisy Býr og starfar á Íslandi.
Hljómsveitirnar Par-Ðar, AVóKA og
SíGUll halda tónleika á Kex Hosteli í
kvöld kl 20. Hljómsveitirnar þrjár
deila innbyrðis með sér meðlimum
sem koma úr tónlistarbænum
Reykjanesbæ. Árið 2015 hefur verið
gjöfult hjá þessum sveitum þar sem
þær náðu langt í Músíktilraunum í ár,
Par-Ðar náðu öðru sæti, AVóKA því
þriðja og var SíGull valin hljómsveit
fólksins. Par-Ðar vinna hörðum hönd-
um að sinni fyrstu breiðskífu og gáfu
á dögunum út sitt fyrsta myndband
við lagið „I Don‘t Know Who I Am“.
Par-Ðar spila nútímalegt og sveim-
kennt hipparokk sem kallar upp í
hugann áhrif frá upphafsárum Sigur
Rósar sem og Tame Impala.
AVóKA spilar draumkennt og ljúf-
sárt popp sem m.a. framkallað er
með málmblæstri, harmónium, hljóð-
gervlum og fallegum röddum. Hljóm-
sveitin stefnir á útgáfu á sinni fyrstu
þröngskífu í janúar á næsta ári.
SíGull spila framsækið fönk.
Frítt er inn á tónleikana.
Ókeypis tónleikar
Þrjár hljómsveitir úr Reykjanes-
bæ troða upp á KEXinu í kvöld
AVóKA Hljómsveitin sú lenti í þriðja sæti á Músíktilraunum í ár.
Skannaðu kóð-
ann til að fara
inn á vefsíðuna.
Stara Gerði fannst dúkkurnar óhugnanlegar sem störðu á hana margar sam-
an í búðarhillum í Bandaríkjunum og fékk þá hugmyndina að bókinni sinni.