Morgunblaðið - 28.10.2015, Síða 15

Morgunblaðið - 28.10.2015, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 2015 30% afslátturaf speglum -VOTTUÐ FRAMLEIÐSLA Opið alla virka daga 08:00-17:00 Sendum um allt land SPEGLAR SKORNIR AÐ ÞÍNUM ÓSKUM LED LÝSING - SANDBLÁSUM ispan@ispan.is • ispan.is Síðastliðinn föstudag útskrifuðust 30 nemendur frá Jarðhitaskóla Há- skóla Sameinuðu þjóðanna eftir sex mánaða þjálfun í jarðhitavísindum eða verkfræði. Frá því að skólinn var stofnaður fyrir 37 árum hafa 613 nemendur lokið námi í þeim 8 sérhæfðu braut- um sem starfræktar eru við skólann í hinum ýmsu greinum tengdum jarðhita. Nemendurnir í ár eru frá 15 löndum. Fimm nemendur luku meistaraprófi í jarðhitavísindum eða verkfræði frá Háskóla Íslands síð- astliðið vor á vegum Jarðhitaskólans og 11 stunda nú slíkt nám við HÍ og Háskólann í Reykjavík. Þá eru þrír nemendur í doktorsnámi í jarð- hitavísindum við HÍ með styrk frá Jarðhitaskólanum. Grunnfjárveiting til Jarðhitaskól- ans kemur frá utanríkisráðuneytinu og er hluti af aðstoð Íslands við þró- unarlöndin. Skólinn hefur einnig staðið fyrir námskeiðum víðsvegar um heim auk þess sem hann hefur haldið fjölmörg sérsniðin námskeið í þróunarlöndunum undanfarin ár og eru þau kostuð af viðkomandi sam- starfsaðila. Útskrift Nemendur og kennarar 37. árgangur Jarðhitaskólans útskrifaðist fyrir helgi eftir sex mánaða þjálfun. Jarðhitaskólinn útskrif- ar 30 erlenda nemendur Ólafur Bernódusson Skagaströnd Listamenn víða að úr veröldinni dvelja í Nesi, listamiðstöðinni á Skagaströnd, um lengri eða skemmri tíma í senn, 8 til 15 lista- menn í einu. Margir þeirra koma oftar en einu sinni til að sinna hugð- arefnum sínum og skapa. Einn þessara listamanna er Karl Chilcott frá Svíþjóð. Hann dvaldi í Nesi sumarið 2013 í tvo mánuði. Nú er hann kominn aftur í stutta heim- sókn til að kynna nýútgefna ljós- myndabók með myndum af innsetn- ingum sem hann skapaði á Íslandi, einkum í nágrenni Skagastrandar, meðan hann dvaldi hér. Bókina kallar Karl Jarðteikn – Art in Nat- ure en Karl vinnur með efnivið úr náttúrunni, steina, blóm, bein, rekavið og fleira, sem hann setur í nýtt samhengi í náttúrunni sjálfri. Myndirnar í nýju bókinni tók dóttir Karls, Christine Chilcott, en þau feðgin hafa farið víða um heim og unnið að svipuðum bókum. Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér fyrri verk Karls geta farið inn á heimasíðu hans: www.karlchilcott- art.com/sculpture-portraits.html Morgunblaðið/Ólafur Ljósmyndabók Karl Chilcott sýnir myndir úr nýju bókinni. Jarðteikn úr náttúr- unni sýnd Ung kona hlaut opið beinbrot á fæti eftir að hún rann með fæturna und- ir afturdekk strætisvagns í Mjódd í gærmorgun. Að sögn lögreglu var hún að hlaupa á eftir vagninum þegar slysið varð. Konan var flutt á slysadeild Landspítalans til aðhlynningar og er málið í rannsókn hjá lögreglu. Bílstjórinn sem ók strætisvagninum tók ekki eftir slysinu og hélt áfram ferð sinni. Annar bílstjóri hringdi í Neyðarlínuna og óskaði eftir að- stoð. Svo virðist sem farþegar vagnsins hafi heldur ekki orðið var- ir við neitt. Að sögn Jóhannesar Rúnarssonar, framkvæmdastjóra Strætó bs., fær bílstjórinn áfalla- hjálp vegna slyssins. Lenti undir stætó og hlaut opið beinbrot

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.