Morgunblaðið - 28.10.2015, Side 16

Morgunblaðið - 28.10.2015, Side 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 2015 Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is Rekstrarvörur – fyrir þig og þinn vinnustað RV 1015 Úti- og innimottur á tilboði – úrval af frábærum mottum í mörgum gerðum og stærðum 24/7 RV.is TilboðVerð frá3.188Kr.                                     !"    #$ "%%" "  %# # # $$% &'()* (+(     ,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5  !!  "  "$" "#% %# #!%  " $!% $    $% #% " " %#!% #!!  ! $#% %$% Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Bioeffect húðvörurnar, sem þróaðar eru og framleiddar á Íslandi, hlutu ný- lega tvenn ný snyrtivöruverðlaun, í Finnlandi og í Póllandi. Bioeffect vörurnar eru framleiddar af dóttur- fyrirtæki Orf líftækni og hafa þær hlotið samtals 15 verðlaun víða um heim á síðastliðnum 5 árum. Á meðal þeirra eru mörg af virtustu verðlaunum hins alþjóðlega snyrtivörugeira, að því er segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. Bioeffect vörur eru nú seldar í yfir eitt þúsund stórverslunum, snyrti- vöruverslunum, heilsulindum og flug- félögum í samtals þrjátíu löndum. Bioeffect hlýtur fimmt- ándu viðurkenninguna ● Félag atvinnurekenda (FA) hefur sent Ríkiskaupum erindi og spurst fyrir um útboð á flugfarmiðum fyrir ríkið og stofnanir þess. Á vef FA er vakin athygli á því að nú, rúmum þremur árum eftir að Ríkiskaup sögðu upp rammasamn- ingi um farmiðakaup ríkisins og boðuðu að efnt yrði til nýs útboðs, hefur slíkt útboð enn ekki farið fram. Í svari Ríkis- kaupa við fyrirspurn FA um mitt árið kom fram að málið hefði frestast en gert væri ráð fyrir að „auglýsa útboð á haustmánuðum“, segir á vef FA. FA spyrst fyrir um útboð á flugfarmiðum STUTTAR FRÉTTIR ... BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Til greina kemur að veita slita- stjórnum föllnu viðskiptabankanna lengri frest til að ganga frá nauða- samningi en til áramóta, eins og lög um stöðugleikaskatt kveða á um. Í samtali við mbl.is í gær sagði Bjarni Benediktsson, fjármála- og efna- hagsráðherra, að hann hefði rætt þann möguleika við efnahags- og við- skiptanefnd Alþingis. „Það er óhætt að segja að það hef- ur þrengst mjög um þennan tíma- ramma,“ segir Bjarni, en hann segir að slitabúin hafi einnig viðrað áhyggjur sínar. Fram hefur komið í Morgunblaðinu að til þess að fá nauðasamninga samþykkta fyrir ára- mót töldu slitastjórnirnar sig þurfa skýr svör frá Seðlabanka Íslands í síðasta lagi síðastliðinn föstudag um það hvort tillögur búanna um stöð- ugleikaframlag í ríkissjóð stæðust þær kröfur sem bankinn gerði á grundvelli fjármálalegs og efnahags- legs stöðugleika þjóðarbúsins. Nú er komið á fjórða mánuð frá því að slita- búin lögðu fram beiðnir um undan- þágur frá gjaldeyrishöftum og ósk- uðu eftir samráði við Seðlabankann um þau efni. Bankinn svaraði í gær Fjármálaráðuneytið greindi frá því á vef sínum í gær að fjármála- og efnahagsráðherra hefði borist bréf frá Seðlabankanum þar sem bankinn „leitar samráðs við ráðherra vegna veitingar vilyrða fyrir undanþágum til slitabúa viðskiptabankanna þriggja [...]“. Í vef ráðuneytisins kemur einnig fram að bréfum bank- ans fylgi greinargerð um áhrif af uppgjöri þessara búa á greiðslu- jöfnuð og fjármálastöðugleika. Málið hefur verið til athugunar í ráðuneyt- inu frá því að bréfin bárust en lögum samkvæmt þarf ráðherra að kynna efnahagsleg áhrif undanþága af þess- ari stærðargráðu fyrir efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis. Bjarni segir aðspurður að áfram verði farið yfir gögnin frá Seðlabankanum, en efni þeirra var kynnt á ríkisstjórnarfundi í gærmorgun. Þá fari hin lögformlega kynning einnig fram á fundi í efna- hags- og viðskiptanefnd Alþingis í dag. Eins og Morgunblaðið greindi frá fyrr í þessari viku brugðu slita- stjórnir gamla Landsbankans og Kaupþings á það ráð í lok síðustu viku að senda út gögn varðandi frum- varp að nauðasamningi. Var sú ákvörðun tekin þrátt fyrir að endan- leg svör væru ekki komin frá Seðla- bankanum, þar sem lög í Bandaríkj- unum kveða á um að slík gögn skuli kynnt þarlendum kröfuhöfum með að minnsta kosti fjögurra vikna fyrir- vara. Tíminn á þrotum Slitabúin munu hafa lítið sem ekk- ert svigrúm til þess að breyta hinum birtu gögnum innan fjögurra vikna fyrirvarans. Hafi Seðlabankinn ekki fallist á útfærslu slitabúanna á nauðasamningum í greinargerð sinni til ráðherra munu þau því hugsan- lega þurfa að fresta fyrirætluðum fundum með kröfuhöfum, þar sem ætlunin er að bera nauðasamnings- frumvörp upp til atkvæðagreiðslu. Verði af frestun boðaðra funda, sem Glitnir hyggst halda 16. nóvember, Kaupþing 24. nóvember og LBI 17. nóvember, segja heimildir Morgun- blaðsins að útilokað sé fyrir búin að fá nauðasamningana samþykkta fyrir dagslok 31. desember næstkomandi. Ef svo fer kynnu forystumenn ríkis- stjórnarinnar, fyrir atbeina Alþingis, að þurfa að lengja frestinn til búanna eigi þau að eiga kost á að greiða stöðugleikaframlag í stað þess að greiða 39% stöðugleikaskatt. Lengri frestur mögulega veittur til nauðasamninga Höft Seðlabankinn hefur nú lokið við að meta þau áhrif sem stöðugleikaframlag slitabúanna hefur á þjóðarbúið.  Seðlabankinn hefur sent ráðherra greinargerð um áhrif uppgjörs slitabúanna Morgunblaðið/Rósa Braga „Með því að slá saman kröftum okkar við Verne Global höfum við möguleika á að þjóna viðskiptavinum okkar betur. Auk þess opnast tæki- færi fyrir samstarf við erlenda við- skiptavini sem hafa áhuga á hýsingu á Íslandi,“ segir Finnur Oddsson, forstjóri Nýherja, um nýjan samning sem fyrirtækið hefur gert við Verne Global í Reykjanesbæ. Hann segir að Verne Global sé búið að byggja upp öflugasta gagna- verið á Íslandi. „Ég er sannfærður um að við munum uppskera áhuga- verð tækifæri í framhaldi af þessu samstarfi. Viðskiptavinir okkar eiga eftir að finna fyrir jákvæðum breyt- ingum,“ segir Finnur og bætir við að það sé fyrst og fremst með auknu öryggi og áreiðanleika kerfa sem eru í rekstri Nýherja. „Í raun erum við að úthýsa verk- efnum til þeirra sem við teljum vera framúrskarandi á sínu sviði. Þá gefst okkur betra svigrúm til að nýta sér- fræðiþekkingu okkar til hagsbóta fyrir viðskiptavini okkar.“ Nýherji og Verne Global hyggjast enn fremur leggja saman krafta sína um að veita innlendum og erlendum viðskiptavinum betri lausnir í hýs- ingarþjónustu og vinna saman að áframhaldandi uppbyggingu gagna- versiðnaðar á Íslandi. „Sú ákvörðun að útvista þessum mikilvæga hluta af starfsemi Ný- herja er í takt við þá stefnu sem við höfum fylgt síðustu ár, að leysa ýmis verkefni á sviði upplýsingatækni í samstarfi við öfluga aðila.“ Morgunblaðið/Þórður Upplýsingatækni Finnur segir aukið samstarf vera stefnu Nýherja. Nýherji og Verne Global í samstarf  Tækifæri til hýsingar fyrir er- lenda viðskiptavini

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.