Víkurfréttir - 10.04.1986, Qupperneq 6
6 Fimmtudagur 10. apríl 1986
VIKUR-fréttir
Orðvar skrifar
Hátíðlegar trúarathafnir
í einfaldleik sínum
Guösdýrkun fer fram
alls staðar í heiminum,
enda er trúin öllu fólki
nauðsynleg. Mönnum
ber að virða hin ýmsu
trúarbrögð annarra og
varast allt trúarofstæki,
sem er ein ha ttulegasta
og mannskæðasta geð-
veiki í heiminum.
Trúfrelsi er á íslandi.
Langflestir eru kristnir
og tilheyra hinni evang-
elisku lúthersku kirkju,
sem er þjóðkirkja i land-
inu. (síendingar eru
slappir í guðsdýrkun,
innan við 5% safnaðar-
ins sækir guðsþjónustur
að staðaldri. Margt kem-
ur til, en aðal orsökin er
ekki síst hjá foreldrum í
uppeldinu. Kristni-
fræðsla i skólum hefur
bæði verið þurr og tor-
skilin og þvi oftar en ekki
misst marks. Trúlega
hefur kvikmyndin um
Jesús frá Nasaret, sem
sýnd var í sjónvarpinu
um páskana og tók um
fimm tíma alls, skilið
meira eftir hjá mörgum
heldur en fimm vetra
skólafræðsla. Vel er at-
hugandi að nota mynd-
ina til kennslu í skólum
með faglegum skýring-
um í stað núverandi
kennslumáta.
Almenn þátttaka er þó
við nokkrar trúarathafn-
ir s.s. skirn, fermingu,
giftingu og jaröarfarir.
Kirkjusókn um jól hefur
stóraukist hin síðari ár.
Athafnir þessar eru há-
tíðlegar í einfaldleik sin-
um og eins og fyrr segir
mjög vel sóttar.
Velmegun og breyttur
tíðarandi síðustu 20-30
árin hafa þó sett blett á
þessar trúarathafnir að
margra áliti. Tilstandið i
kringum t.d. fermingar
hefur þróast upp í slíkan
ósóma að venjulegt fólk
ræður illa við að fjár-
magna fyrirtækið.
Sýndarmennskan við
íburðarmikil veisluhöld
og rándýrar gjafir yfir-
gnæfir sjálfa athöfnina,
sem virkar því nánast
eins og forspil að kjöt-
kveðjuhátíð. Fermingar-
barnið, sem er að taka
trúna af fúsum og frjáls-
um vilja og ganga í
söfnuðinn, ruglast svo í
ríminu við allan gaura-
ganginn aö það gerir sér
jafnvel litla grein fyrir at-
höfninni sjálfri og kemur
varla í kirkju af trúará-
stæðum næstu 20-30 ár-
in. Allt snýst um að veisl-
an og gjafirnar verði í
einhverju samræmi við
hin fermingarbörnin.
Hvað kostar eitt stykki
ferming með öllu? Hálf
árslaun verkamanns?
Eitt er víst, ekki hefur
kirkjan komið þessari
óráðsíu á, en mál er að
linni. Prestar og félags-
ráðgjafar hafa lýst þvi
yfir opinberlega að fá-
tækt sé margfalt meiri og
almennari en almennt er
álitið. Fólk kemur til
þeirra með yfirþyrmandi
félagsleg vandamál
vegna fátæktar. Það sjá
allir, að viö slíkar að-
stæður er erfitt að láta
ferma með fárra ára
millibili. Fólk, sem kemst
þokkalega af, hefur sjálf-
sagt aldrei hugsað út í
þessi mál, eða látið sér
detta í hug að ástandið
væri svona slæmt, fyrr
en vandamálið var lítil-
lega tekið fyrir í sjón-
varpinu nýverið. Jarðar-
farir eru allt annars eðlis,
en hátiðlegar engu að
siður. Þar mætir fólk
annað hvort af skyldu-
rækni eða i virðingar-
skyni við hinn látna og
aðstandendur hans.
Jarðarför er vissulega
trúarathöfn, en einnig
hátiðleg og virðuleg
skilnaðarstund. En rán-
dýrar erfisdrykkjur á að
leggja niður enda þjóna
þær ekki lengur upphaf-
legum tilgangi þegar
fólk lagði í 5-6 tíma
ferðalög á hestum vegna
jarðarfara. Að syrgjend-
ur tárist í kirkju eða
kirkjugarði á skilnaðar-
stund er eðlilegt og til-
finningalegt en að sama
fólkið, hálftima seinna,
reiti af sér brandara og
öskri af hlátri í erfis-
drykkju er eiginlega ekki
í takt við það sem á und-
an er gengið.
Eftir að farið var að
tala og skrifa um jóla-
gjafafarganið hefurstór-
lega dregið úr þeim.
Víða kom i Ijós að flest-
um var löngu farið að of-
bjóða, en enginn kom
sér að því að nefna þetta
vandamál fyrstur innan
fjölskyldunnar, þegar
loks var rætt um þessi
mál, jafnvel vegna ein-
hverrar blaðagreinar,
voru allir sammála um
að draga saman seglin
um næstu jól. Kannski
jókst kirkjusókn umjólin
þess vegna?
Ef fjölskyldur geta
ekki, einhverra hluta
vegna lagað þessi mál,
verður einhver annar að
hjálpa þeim, en hvaða
aðili getur helst tekið í
taumana og afnumið
þessar martraðir, sem
fylgja nú orðið einföld-
um og sjálfsögðum
trúarathöfnum (slend-
inga? Orðvar
Barðinn GK
tók niðri
130 tonna stálbátur,
Barðirin GK 475 frá Sand-
gerði, tók niðri í innsigling-
unni til heimahafnar
snemma að morgni sl.
laugardag. Báturinn, sem
var að koma úr róðri vestan
undan Jökli, náði ekki
beygju innsiglingarinnar og
lenti því á grynningum rétt
sunnan við hana.
Var byrjað að falla út
þegar óhappið varð og
stóð báturinn því á staðn-
um þar til flæddi að. Komst
báturinn þá að sjálfsdáðun
á flot án teljandi skemmda.
epj-
EINA VIKUBLAÐ
SUÐURNESJAMANNA
Slys um
borð í
togara
í síðustu viku kom tog-
arinn Skipaskagi AK 102
frá Akranesi með slasaðan
skipverja inn til Grinda-
víkur. Var hann fluttur á
sjúkrahús.
Ekki er blaðinu kunnugt
um hve mikið maðurinn
slasaðist né hvað olli því.
epj.
Höfum opnað
eftir gagngerar breytingar
|[g[a[aia[a[agj
&gnars
Ný búð - Nýjar innréttingar
á Hringbrautinni.
NÝJUNG
Bakað í búðinni
HEITAR FORMKÖKUR
OG VÍNARBRAUÐ
NYJUNG ’jj
Heitt
kaffi
og kakó
Svaladrykkir
Heitar vöfflur
Heitar kleinur
Heitir ástarpungar
Hringbraut 92 - Keflavík
MUNIÐ BRAUÐIN
Á LÁGA VERÐINU
x
Perutertu
Tertustykki
Kókostertur
Sherrytertur
Rískaramellutertur
Púðursykurtertur