Víkurfréttir


Víkurfréttir - 10.04.1986, Blaðsíða 20

Víkurfréttir - 10.04.1986, Blaðsíða 20
yfÍKUR fyUUií Fimmtudagur 10. apríl 1986 AFGREIÐSLA BLAÐSINS er að Vallargötu 14, II. hæð. - Sími 4717. Finnbogi Björnsson „Fyrst og fremst traustsyfir- lýsing við okkur H- listamenn og sveitar- stjórann“ - segir Finnbogi Björnsson, sem endur- kjörinn var í 1. sæti H-listans í Garði „Ég er mjög ánægður með úrslit prófkjörsins og þá ekki síður þátttökuna í því“ sagði Finnbogi Björnsson er blaðamaður spurði hvort hann væri ánægður með úrslitin úr prófkjöri H-listans í Garði um helgina. „Skoða ég nú þessi úrslit fyrst og fremst sem trausts- yfirlýsingu til okkar H-lista manna og að stuðnings- menn listans séu tiltölulega ánægðir með þau störf sem við fulltrúarnir höfum innt af hendi og sveitarstjórinn á síðasta kjörtímabili. Vænti ég þess fastlega að íbúarnir í Garðinum finni það, að það sé festa í stjórn- arháttum hjá hreppnum. Við höfum úrvalsmann sem sveitarstjóra, þar sem Ellert er, og vænti ég þess að fólk- ið kjósi okkur til áfram- haldandi forystu.“ A ttir þú von á þessu? „Þegar maður er búinn að taka þátt í jafnmörgum prófkjörum og ég er búinn að gera, þá getur maður bú- ist við öllu og hef ég kosið að mynda mér aldrei neina skoðun á því hvernig próf- kjör kynnu að fara“ sagði Finnbogi að lokum. Spumingin: Gerir þú verð- samanburð? Guðmundur Jóhannesson: „Já, éggeri það svosann- arlega og fylgist alltaf með verðkönnunum“. Jónasína Þórðardóttir: „Já, mér finnst verðlagið vera mjög mismunandi. Svo fylgist ég dálítið með verðkönnunum“. Nýja flugstöðin: Mun nota eins mikið heitt vatn og öll Grindavík Raforkuþörfín eins mikil og í Sandgerði Á föstudaginn í síðustu viku var haldinn aðalfund- ur Hitaveitu Suðurnesja, en fyrirtækið á 10 ára afmæli á þessu ári. Á fundinum kom m.a. fram, að á síðasta ári urðu þau merku tímamót, að í fyrsta sinn frá stofnun þess varð hagnaður af rekstrinum. Nam hann 85,7 milljónum, sem rann til jöfnunar á tapi fyrri ára sem samtals nemur á verð- lagi ársins 1985, 834,7 milljónir kr. Fram kom einnig að á síðasta ári var gengið frá samningum um orkusölu og tengingu flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli, bæði varðandi heitt vatn* og raf- magn. Flugstöðin verður mjög stór notandi. Reikn- að er með að mesta magn af heitu vatni verði svipað og notað er í Grindavík (30 1/sek.) og aflþörfin í raf- magni er áætluð 1,4 MW, eða svipað og í Sandgerði. Umhverfis flugstöðina er síðan áætlað að rísi talsverð byggð sem væntanlega þarf umtalsvert vatn og raf- Mikið um bensín- þjófnaði Að undanförnu hefur magn. Arið 1985 varð 3,5% aukning á sölu héits vatns til almennings á Suðurnesj- um, en raforkusalan stóð því sem næst í stað, en í ljósi staðreynda um flugstöðvar- svæðið og laxeldisfyrir- tækja má ljóst vera að stór- aukning verður á næstu árum. - epj. borið mikið á þjófnaði á bensíni úr bifreiðum og var lögreglunni í Keflavík t.d. tilkynnt um fjögur slík til- felli í síðustu viku. Þa var rafgeymi stolið úr bifreið í Keflavík aðfara- nótt fimmtudagsins í síð- ustu viku. - epj. Ingvar Bjarnason: „Já, ég versla þar sem mér þykir hagstæðast“. Helga Sigurðardóttir: „Nei, reyndar ekki og hugsa lítið um verðkann- anir“. H-listinn, Garði: 4 efstu sætin óbreytt Unnar Már féll úr 5. sæti í 8. Um síðustu helgi fór fram prófkjör H-listans í Gerðahreppi. Þátttak- endur urðu alls 248, þar af tveir seðlar ógildir. Fjórir efstu menn á núverandi lista fengu stuðning til áframhald- andi setu en sá sem var í 5. sæti, Unnar Már Magnússon, féll niður í næst neðsta sæti. í 1. sæti lenti Finn- bogi Björnsson með 141 atkvæði í það sæti en 209 alls. I öðru sæti er Sig- urður Ingvarsson með 121 atkvæði í fyrstu tvö sætin en 196 alls. I 3. sæti Ingimundur Þ. Guðnason með 100 atkvæði í fyrstu þrjú sætin en 164 alls. 4. er Karl Njálsson með 122 atkvæði í fyrstu fjögur sætin en 150 alls. 5. varð Jón Hjálmarsson með 147 atkvæði í fyrstu fimm sætin. 6. varð Dagný Hildisdóttir, 7. Kristjana Kjartansdótt- ir, 8. Unnar Már Magn- ússon og 9. Guðbjörg Sigurðardóttir. Var kjörið bindandi fyrir þrjú efstu sætin. epj.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.