Víkurfréttir - 10.04.1986, Qupperneq 8
8 Fimmtudagur 10. apríi 1986
VÍKUR-fréttir
Slökkvitækja-
þjónusta
Suðurnesja
Kolsýruhleðsla - Dufthleðsla
Viðhald og viögerðir a flestum
tegundum slökkvitækja.
Reykskynjarar - Rafhlöður
Brunaslöngur - Slökkvitæki
Uppsetning ef óskað er.
Viöurkennd eftirlitsþjónusta
handslökkvitækja í bátum og skipum.
Slökkvitækjaþjónusta Suöurnesja
Háaleiti 33 - Keflavík - Simi 2322
Nudd - Nudd
Konur - Karlar
Losið ykkur við vetrarslenið. - Nudd styrkir
slappa vöðva, losar um vöðvabólgur, vinn-
ur á móti Cellilite appelsínuhúð. - Góð að-
staða. - Tímapantanir í síma 2232.
BAÐSTOFAN DÖGG
Háaleiti 38
UG ///:
Starfsmaður óskast
Óska eftirstarfsmanni, helst vönum far-
þegaþjónustu, frá 1. maí til 15. október.
Óreglulegur vinnutími.
Nánari upplýsingar gefur Ingi Gunn-
arsson á skrifstofu Arnarflugs, Kefla-
víkurflugvelli, þriðjudaga og fimmtu-
daga frá kl. 9-12.
Þú getur lært að stjórna streitu og lifað
hamingjusömu lífi. Námskeið til aðstjóma
streitu hefst mánudaginn 14. apríl kl. 20.30
í Safnaðarheimili Aðventista, Blikabraut 2,
Keflavík.
Upplýsingar og innritun í símum 4222 og
1066.
FÍKNIEFNAVANDINN
Óskar Þórmundsson, ný-
gerður lögreglufulltrúi, fer
á kostum í viðtali hér í blað-
inu 13. mars sl. um fíkni-
efnavandann. Eg hefi aldrei
lesið annan eins „gálga-
húmor“, því tæpast er mað-
urinn heimskur.
Nefndum Óskari var
falin umsjón og rannsókn
eiturmála árið 1978, ef ég
man rétt. Síðan hefur
nánast enginn árangur orð-
ið, nema í einstaka tilfell-
um þegar lappir hans hafa
beinlínis rekist á þessi efni.
Innihald viðtalsins sýnist
helst vera lofgjörð um
dómsmálaráðherra fyrir
,,dúsu“ þá sem hann rétti
Óskari eftir að honum hafði
verið hafnað í stöðu yfirlög-
regluþjóns í Stykkishólmi
nýverið. Þá hafði Óskar frí-
hjólað pólitískt í lögreglu-
málakerfinu um árabil.
Staðreyndin mun vera sú,
að Óskar var aflagður sem
sérstakur rannsóknarmað-
ur í fíkniefnadeild sl. sumar
fyrir dugleysi. Hann var
endurreistur nú seinni
hluta vetrar, fenginn til við-
bótar maður, sem á að gera
tilraun til þess að hysja upp
um lögreglustjóraembættið
í þessum efnum. Keyptur
nýr bíll, en hver verður ár-
angurinn?
Öskar leyfir sér að segja
að hér á árum áður hafi
Keflavík verið „fíkniefna-
bæli“. Það var þegar undir-
ritaður stjórnaði rannsókn-
um í þessum málaflokki, þá
var kerfisbundið unnið að
eftirliti og uppljóstrun
mála. Siðan hefur árangur
nánast enginn orðið. I við-
talinu stendur að almenn-
ingur eigi kröfu á að
þessum málaflokki sé sinnt
af alefli o.s.frv. Þetta er
auðvitað alveg rétt. En
hvað hefur verið gert sl. 8
ár?
Undirritaður vann að því
ásamt öðrum árið 1969 að
gera könnun á neyslu fíkni-
efna á Suðurnesjum. Þetta
Uaukur Guðmundsson.
mun hafa verið fyrsta
skýrsla varðandi málefni
þessi. Síðan eru 17 ár.
Margt hefur verið reynt á
landsvísu til þess að vinna
gegn vanda þessum.
Vandamálið hefur tæpast
verið viðurkennt i reynd,
nema í örfáum tilvikum.
Nú er svo komið að mörg
undanfarin ár hefur eitrið
bókstaflega flætt inn í
landið og fjöldi fólks orðið
því að bráð.
Hér á Suðurnesjum sem
annars staðar á landinu er
allt vaðandi í hvers konar
eiturefnum. Þetta virðast
flestir vita nema marg-
nefndur lögreglufulltrúi. A
meðan hann nær takmörk-
uðum árangri þá lokar
hann blinda auganu og
telur ranglega að það haldi
vandanum í skefjum.
I viðtalinu er því lýst að
stjórnvöld hafa ákveðið að
herða tökin og verja aukn-
um fjármunum í baráttu
við fikniefnavandann. Þessi
viðbrögð stjórnvalda eru
auðvitað af hinu góða, en ég
minnist þess að hafa heyrt
eitthvað þessu líkt nokkr-
um sinnum áður, en árang-
ur hefur þó verið mjög tak-
markaður. Þó ber hér að
geta þess, að Sakadómur í
ávana- og fíkniefnamálum
undir forystu Asgeirs Frið-
jónssonar dómara, ásamt
fikniefnadeild lögreglunn-
ar í Reykjavík, hefur að
mínu áliti skilað frábærum
árangri við erfið skilyrði.
3. janúar sl. átti ég tal við
bæjarfógeta, Jón Eysteins-
son, um þessi mál og fleiri.
A þeim degi var engin
formleg fíkniefnadeild
starfandi hér á Suðurnesj-
um. Jón sagði mér þá að
þessi mál væru í sérstakri
endurskoðun. Nú virðist
sem þessari endurskoðun sé
lokið. Hver er niðurstaðan?
Þessu hefur verið lýst hér að
framan. Óskar endurreist-
ur, ný bifreið, nýr maður
ráðinn og skrípaleikurinn
heldur áfram. Þá þegar ég
átti tal við bæjarfógeta,
bauð ég honum aðstoð mina
varðandi eiturefnavand-
ann, en hann taldi sig ekki
geta þegið hana þá.
Hér að framan hafa verið
gerðar örfáar athugasemd-
ir um framkvæmd lög-
gæslu varðandi eiturefna-
vandamálin, en af nógu er
að taka. Fyrir hönd bæjar-
fógetaembættisins sitja
tveir menn í Samstarfs-
nefnd um fíkniefnavand-
ann, þeir Óskar Þórmunds-
son lögreglufulltrúi, og
Guðmundur Kristjánsson
ftr. í þessu sambandi vil ég
leyfa mér að beina eftirfar-
andi spurningum til Jóns
Eysteinssonar bæjarfógeta:
1. Hafa menn þessir
fengið laun fyrir störf í
nefnd þessari? 2. Hvað
mikið, þ.m.t. bifreiða-
kostnað? 3. Hafa nefndar-
fundir almennt verið haldn-
ir utan vinnutíma opinberra
starfsmanna? 4. Hver hefur
verið kostnaður ernbættis
yðar við rekstur Óskars
Þórmundssonar, þ.m.t. bif-
reiðar, sl. 8 ár? 5. Hver
hefur verið árangur af þeim
kostnaði?
Eg er þess fullviss að rit-
stjórar Víkur-frétta fínna
stað í blaði sínu fyrir svör
við ofangreindum spurn-
ingum.
Kveðja.
Haukur Guðmundsson
Hafnahreppur:■ ----------- —=
Hreppsnefndin með prófkjör
10 gefa kost á sér til starfa í hreppsnefndina
Á fimmtudaginn var
rann út frestur sem hrepps-
nefnd Hafnahrepps gaf íbú-
um sveitarfélagsins til að
vera með á lista hrepps-
nefndar í komandi kosn-
ingum. í Höfnum hefur það
viðgengist að öllum hrepps-
búum er gefinn kostur á að
vera með og síðan er raðað í
sæti við prófkjör. Ef annar
listi kemur ekki fram, verð-
ur því sjálfkjörið miðað við
niðurstöður prófkjörsins.
VÍKUR-FRÉTTiR
Málgagn
Suðurnesjamanna
Fer prófkjörið fram n.k.
laugardag og sunnudag frá
kl. 14-19 báða dagana. Þeir
10 aðilar sem gefið hafa
kost á sér eru:
Björgvin Lúthersson
póst- og símstöðvarstjóri,
Borgar J. Jónsson trésmið-
ur, Hallgrímur Jóhannes-
son matreiðslumaður, Jó-
hann G. Sigurbergsson
verkamaður, Kolbrún Sig-
urbergsdóttir húsmóðir,
Magnús B.J. Guðmunds-
son múrari, Sigurður L.
Björgvinsson símvirki,
§veinn Númi Vilhjálms-
son verkfræðingur, Val-
gerður Hanna Jóhanns-
dóttir vitavörður og Þór-
arinn St. Sigurðsson sveit-
arstjóri. - epj.
Klippumar
' á lofti
Nú mega þeir bifreiða-
eigendur sem vanrækt hafa
að færa bifreiðar sínar til
skoðunar, fara að vara sig,
þvi lögreglan er komin með
klippurnar á loft. Eru þeir
ósparir á að klippa númer-
in af slíkum bifreiðum hvar
sem til þeirra næst. - epj.