Víkurfréttir - 10.04.1986, Síða 16
16 Fimmtudagur 10. apríl 1986
VÍKUR-fréttir
Uppskeruhátíð Handknattleiksráðs ÍBK:
SIGURÐUR OG
FREYR BESTIR
Lóa hjá kvenfólkinu
Uppskeru- og árshátíð
Handknattleiksráðs ÍBK
var haldin í Veitingahúsinu
Vesturbraut sl. laugardags-
kvöld.
Afreksmenn í hverjum
flokki félagsins voru heiðr-
aðir. Hátíðin hófst með
ræðu formanns, Gísla Jó-
hannssonar, því næst fékk
handknattleiksfólk góm-
sætan mat í maga og að því
loknu var verðlaunaaf-
hending. Afreksmenn IBK
urðu eftirtaldir tímabilið
1985-86:
M.fl. karla: Sigurður
Björgvinsson og Freyr
Sverrisson.
Mestu framfarir: Ein-
varður Jóhannsson.
M.fl. kvenna: Lóa Braga-
dóttir.
Mestu framfarir: Unnur
Magnadóttir.
2. fl. karla: Jóhann Júl-
íusson og Pétur Magnússon
Mestu framfarir: Her-
mann Hermannsson.
2. fl. kvenna: Fjóla Þork-
elsdóttir.
Mestu framfarir: Sóley
Svavarsdóttir.
Veglegir farand- og eign-
arbikarar voru veittir, gefn-
ir af ýmsum fyrirtækjum
hér í Keflavík.
I lokin voru skemmtiat-
riði og þau ekki af lakara
taginu, s.s. söngur, dans,
H.R.K.-kvartett, léttur
grínþáttur og síðast en ekki
síst hinn frábæri „Kan-
kan“ hópur. Gerði hann
stormandi lukku og á án
efa eftir að fá tilboð út á
þessa sýningu. Um öll þessi
atriði sáu félagar í hand-
knattleiksdeild ÍBK. Svo
var stiginn dans fram eftir
nóttu. -ghj./pket.
/-------------------------------------------\
Fyrsta mótið á laugardaginn
Fyrsta golfmót ársins verður haldið í Leiru n.k.
laugardag kl. 10, ef veður leyfir. Leiknar verða 18
holur. - pket.
I___________________________________________/
Litla bikarkeppnin hafín:
Jafnt hjá ÍBK
ogUBK
Fyrsta umferð Litlu
bikarkeppninnar hófst
sl. laugardag. I Keflavík
léku heimamenn við
UBK og endaði viður-
eignin með jafntefli, 2:2.
IBK var fyrr til að skora
og var þar Rúnar
Georgsson að verki.
Þannig var staðan í hálf-
leik. I þeim seinni náðu
Blikar að jafna og kom-
ast yfir þegar um 10 mín.
voru til leiksloka. Kefl-
víkingar gáfust hiris veg-
ar ekki upp og Oli Þór
V ___________
Magnússon jafnaði þeg-
ar örskammt var til
leiksloka. Úrslit þvi 2:2.
Keflvíkingar misnot-
uðu vítaspyrnu skömmu
áður en þeir jöfnuðu
leikinn. Rúnar Georgs-
son skaut í stöng UBK-
marksins.
Ekki er hægt að dæma
gæði knattspyrnunnar
sem á boðstólum var,
þar sem veður var leiðin-
legt, rok og gekk á með
rigningu. - pket.
Afreksfólk ÍBK í handknattleik
Bikarkeppni HSÍ:
Reynir úr
leik í 16 liða
úrslitum
Reynismenn töpuðu
naumlega fyrir Þór Ve., er
liðin mættust í Bikarkeppni
HSÍ í sl. viku. Lokatölur
28:26 fyrir Þór. Staðan i
leikhléi var 13:11.
Þór hafði ávallt foryst-
una þó hún hafi ekki verið
stór. Þórsliðið var skipað
mjög ungum leikmönnum í
þessum leik og voru 7-8
menn er leika með 2. fl.
Reynir hefði getað unnið
þennan leik, en allan vilja
og baráttu vantaði og gerði
það útslagið. Mestur var
munurinn fimm mörk,
11:6, en Reynir gat minnk-
að muninn í tvö mörk fyrir
leikhlé, 13:11.
Þannig hélst munurinn í
seinni hálfleik, þ.e. tvö
mörk skildu ávallt á milli,
og sigraði Þór eins og áður
er sagt, 28:26.
Markahæstir Reynis-
manna: Heimir K. 10,
Daníel 7, Sigurður Óli 3 og
aðrir minna. - ghj.
Knattspyrnumót lögregluliða
Um sl. helgi fór fram Landsmót lögreglumanna í knatt-
spyrnu í íþróttahúsinu í Keflavík. Tilþrifm voru mikil, eins
og meðfylgjandi mynd sýnir sem tekin var í einum leiknum.
Ðyrjunin lofar góðu
Byrjunin hjá getraunaspekingunum lofar góðu um framhaldið. Þráttfyrirerfiðan seðil
náðu þeir góðum árangri. Studeo-félagarnir Gísli og Björn, Ragnar og Finnbjörn náðu
allir sex réttum, en Ólafur fékk fjóra. Sem sagt hnífjafnt strax [ byrjun.
Eins og flestir hefa eflaust séð, þá verður Derby-viðureign í bikarúrslitaleiknum á
Wembley 10. maí n.k. Liverpool og Everton eigast þá við svo það er sannkallaður
draumaúrslitaleikur sem sigurvegari í getraunaleiknum fær. Ferðaskrifstofan Víkinga-
ferðir mun gefa ferðina á leikinn eins og áður hefur verið greint frá.
En þá drífum við okkur í 2. umferð úrslitakeppninnar. Seðillinn erekki auðveldari en
síðast, síður en svo, þannig að það verður spennandi að fylgjast með árangri speking-
anna næsta laugardag þegar rauða Ijónið kemur með úrslitin á skjáinn. Sjáumst hress.
pket.
Leikir 12. apríl:
Arsenal - Everton ....
Aston Villa - Watford .
Ipswich - Man. City ..
Luton - Tottenham ..
Newcastle - Tottenh. .
Nott’. For. - Chelsea .
Q.P.R. - W.B.A ......
South’pton - Leicester
West Ham - Oxford ..
Barnsley - Blackburn
Bradford - Norwich ..
Middlesbro - Portsm.
l-X-2 l-X-2 l-X-2