Víkurfréttir - 17.04.1986, Side 17
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 17. apríl 1986 17
EÐVARÐ BESTUR A KALOTT
Eðvarð Þór Eðvarðsson
stóð sig frábærlega vel í
Kalott-keppninni í sundi,
sem fram fór í Oulu í Norð-
ur-Finnlandi sl. helgi. Eð-
varð setti fimm Islandsmet
auks Islandsmeta í boð-
sundi og var kjörinn besti
sundmaður mótsins að því
loknu.
Eðvarð setti fimm ís-
landsmet í einstaklings-
greinum: í 100 m. baksundi
á 56,30 sek. sem hann bætti
seinni daginn í boðsundinu
er hann synti á 56,26 sek.
Hann sigraði í 100 m.
bringusundiá l:05,10mín.,
í 200 m. fjórsundi á 2:06,28
mín., í 200 m. bringusundi
á 2:21,96 mín. og loks í 200
m. baksundi á 2:01,90 mín.
Islenska sundliðið sigraði
með yfirburðum á mótinu,
hlaut 249 stig, N-Noregur
varð í öðru og Finnar í
þriðja. -pket.
Handknattleikur:
UMFN íslandsmeistari
í 3. flokki kvenna
Um sl. helgi fór fram úr-
slitaumferð í 3. fl. kvenna í
Keflavík og kepptu þar níu
lið um íslandsmeistaratitil-
inn, þar á meðal ÍBK og
UMFN. UMFN sigraði sinn
riðil glæsilega og vann alla
sína leiki. Njarðvíkurstúlk-
urnar voru í riðli með ÍBK,
Tý og FH.
f hinum riðlinum voru
Víkingur, Stjarnan, Þór,
Ak., Haukar og ÍR. í þeim
riðli sigraði Víkingur.
Til úrslita léku síðan
UMFN og Víkingurog end-
aði leikurinn með glæsi-
legum sigri UMFN, 8:4, en
staðan í leikhléi var 4:2 fyrir
UMFN.
Bestar í liði UMFN voru
systurnar Kristín og Mar-
grét Blöndal, Harpa Magn-
úsdóttir og einni varði
markvörður liðsins, Sara
Guðmunds, mjög vel.
Þjálfari liðsins er Mar-
grét Sanders.
Handknattleiksráð Kefla
víkur sá um framkvæmd
þessa móts og tókst það í
alla staði mjög vel.
Úrslit í leikjum ÍBK og
UMFN í B-riðli urður þessi:
Týr-ÍBK....... 14:8
UMFN - FH..... 12:7
Týr-UMFN ..... 9:11
FH - ÍBK .... 10:12
ÍBK-UMFN ...... 4:5
Týr-FH ........ 12:5
ghj-
TÓMAS VANN PÁSKAMÓTIÐ
Hið árlega páskamót í snók-
er var haldið nýlega í billiard-
salnum við Hafnargötu 54.
Tómas Marteinsson sigraði
nokkuð örugglega en hann
tapaði aðeins einni viðureign,
það var fyrir ungum og efnb
legum spilara, Hannesi Pétri. I
úrslitum mætti Tómas
Gunnari Gunnarssyni og sigr-
aði 5-3 í spennandi viðureign.
Um þriðja sætið spiluðu
Börkur Birgisson og Grímur
Sigfússon og sigraði sá síðar-
nefndi 4-2. Grímur kom
manna mest á óvart og sló út
tvo meistaraflokksmenn.
Óskar og Börk. Grímur hefur
sýnt miklar framfarir og von-
andi að hann haldi áfram á
sömu braut.
I þessu móti sem öðrum
GOLF Á
LAUGARDAG
Golfmót verður haldið á
Hólmsvelli í Leiru n.k.
laugardag kl. 10. Leiknar
verða 18 holur með og án
forgjafar.
hefur verið spilað með forgjöf
til að gefa óreyndari mönnum
meiri möguleika. Síðasta stór-
mótið, Suðurnesjamótið,
verður haldið bráðlega og
verður þá auglýst. -bb.
Sl. laugardag var fyrsta
mót ársins. Leikin var
punktakeppni og sigraði
Astþór Valgeirsson en
hann hlaut 38 punkta.
Annar varð Júlíus Jónsson
með 37 punkta og þriðji
Ögmundur Máni Ögmunds
son með 36 punkta. -pket.
Garðbúar - Garðbúar
Félag óháðra borgara heldur almennan
fund um sveitarstjórnarmál í Samkomu-
húsinu Garði, laugardaginn 19. apríl kl. 17.
Gengið verður frá l-listanum, lista óháðra
borgara í Garði, til sveitarstjórnarkosning-
ar þann 31. maí.
Garðbúar! Komið og takið þátt í baráttunni
með okkur. Verið velkomin.
Stjómin
—r
Öll almenn hársnyrting fyrir
dömur og herra.
Permanent, strípur
djúpnæring, blástur.
íw
Hólmgarði 2 - Keflavík
Sími 4255
Aðalfundur
Krabbameinsfélags Suðurnesja
verður haldinn á Glóðinni, laugardag-
inn 19. apríl kl. 14.
Ásgeir Theodórsson, sérfræðingur í
meltingarsjúkdómum, flytur fræðslu-
erindi á fundinum. Erindið mun fjalla
um leit að krabbameini í ristli og enda-
þarmi.
Stjórnin
ATVINNA
Starfskraftur óskast til ræstinga og daglegrar
umsjónar með kaffistofu. Vinnutími frá kl. 15
daglega.
Umsóknir sendist fyrir 30. apríl n.k.
VŒZUJNRRBRNKI
ÍSLRNDS Hf
Vatnsnesvegi 14 - Keflavík - Sími 1788
NUDD - NUDD
Konur - Karlar
Losið ykkur við vetrarslenið. - Nudd styrkir
slappa vöðva, losar um vöðvabólgur, vinn-
ur á móti Cellilite appelsínuhúð. - Breiðir
og góðir Ijósabekkir. - Nýjar perur. - Góð
aðstaða.
Baðstofan DÖGG
Háaleiti 38 - Keflavík - Sími 2232