Víkurfréttir - 03.07.1986, Qupperneq 6
6 Fimmtudagur 3. júlí 1986
VÍKUR-fréttir
BÍLARÉTTING
Nýtt réttingaverkstæði
Nú, ekki alls fyrir löngu,
hóf nýtt réttingaverkstæði,
Bílarétting, starfsemi sína í
Keflavík. Hefur verkstæðið
aðsetur sitt í Grófinni 20 A,
bak við Sjálfskiptingar-
þjónustuna.
Aðaleigandi er Rúnar
Benediktsson en hann hef-
ur einnig fengið til liðs við
sig gamalkunnan réttinga-
mann, Eirík Eyfjörð. Búa
þeir félagar yfir fullkomn-
um tækjum til réttinga og
annarra þess háttar við-
gerða. Að sjálfsögðu sjá
þeir svo um sprautningu á
þeim hlutum sem þeir gera
við. -gæi.
Rúnar Benediktsson, eigandi Bílaréttingar.
RADIOVIK
Nýtt rafeindaverkstæði
Nú fyrir skemmstu hóf
nýtt rafeindaverkstæði
starfsemi sína í kjallaran-
um að Hafnargötu 35 í
Keflavík. Ber það nafnið
Radíóvik og eru það tveir
ungir rafeindavirkjar,
Engilbert Adolfsson og
Michael Sigurjónsson, sem
reka það og eiga.
Þjónustan sem þeir piltar
veita eru viðgerðir á sjón-
vörpum, útvörpum, mynd-
bandstækjum og öðru þess
háttar. Einnig hafa þeir
góða aðstöðu til þess að
annast ísetningu hljóm-
tækja í bíla og svo taka þeir
að sér að setja upp loftnet
og sjónvarpskerfi fyrir þá
sem þess óska.
Að sögn þeirra félaga
hafa þeir fengið „fljúgandi
start“ og viðtökurnar verið
vonum framar. Sögðust
þeir því engan veginn ótt-
ast samkeppnina því útlit
væri fyrir að nóg framboð
væri á biluðum tækjum.
gæi
Frá 15 ára afmæli Gefnarborgar.
Ljósm.: GKV.
ORÐVAR SKRIFAR - ORÐVAR SKRIFAR - ORÐVAR SKRIFAR
Kiddí Dan kippir geð-
heilsu manna í lag!
Sveillur í geðheiku
manna má oft rekja til
veðurfars. Það er talað um
að þessi sé í sólskinsskapi,
þegar hinn er grámyglu-
legur, eða hryssingslegur.
Júní sl. hefur reynst
okkur Suðurnesjamönnum
all erfiður veðurfarslega
og um leið skapsmunalega.
Fyrstu daga mánaðarins
voru menn annaðhvort
niðurbrotnir eða uppi í
skýjunum vegna kosninga-
úrslitanna. Nú eru allir á
sama strikinu, langt fyrir
neðan núll. Sífelldar rign-
ingar og þoka gera menn
uppstökka, þunglynda,
svartsýna og þrasgjarna.
Ekki bætir útvarpið sálar-
heill manna þessa daga.
Síbylja þulanna um 20°
hita í Hrísey, 30° á Seyðis-
firði og Raufarhöfn glym-
ur í eyrum manna allan
sólarhiinginn. Það er eins
og oliulindir hafi fundist á
þessum stöðum. Víða er
víst svo komið að fólk hefst
ekki við utan dyra vegna
góðviðris. En hér rignir og
rignir og aldrei sést til sól-
ar, það rigndi meira að
segja sælgæti í smástund í
Njarðvíkunum 17. júní.
Sjónvarpið hefur þó kom-
ið örlítið tO móts við okkur
með beinum útsendingum
frá heimsmeistaramótinu í
knattspyrnu. Heilu fjöl-
skyldumar liggja fyrir
framan imbakassann 4-5
tima á dag, video-eigendur
helmingi lengur. Kven-
menn og ungpíur, sem
hingað til hafa tekið
Dallas og Falcon Crest
fram yfir allt annað sjón-
varpsefni, taka nú símann
úr sambandi meðan fót-
boltinn er á skjánum og
skilja nú loksins tU hvers
allt venjulegt fólk þarf að
skreppa á völlinn öðru
hvoru. Vonandi gefst al-
mættinu tími tU að lagfæra
veðrið héma, þegar það
losnar úr þessu fótbolta-
stússi í Mexico.
Eina fólkið hér um
slóðir, sem getur brosað,
em eigendur sólbaðstofa
og Kiddi Dan, en hann er
snillingur í að sjá þessi
rigningarsjúkdómsein-
kenni á fólki. Enginn sál-
fræðingur gæti kippt geð-
heUsu manna í lag á fljót-
ari, ánægjulegri og ódýrari
hátt en hann. Receptið
hljóðar einfaldlega upp á
eina sólarlandaferð a.m.k.
til að byrja með. Það er
synd að sjúkrasamlagið
skuli hvergi koma inn í
þessa heUsuþjónustu. Hjón
ein hér í bæ, sem voru í
sumarfríi allan júni fengu
slíka sólarþrá eftir glenn-
una 17. júní að þau tóku
sér bUaleigubíI í viku og
skmppu austur á Seyðis-
fjörð. Þau komu til baka
hress en batinn varð
skammvinnur, vikan kost-
aði 75 þúsund krónur, 36
þús. fyrir bílaleigubílinn og
39 þús. fóm í fæði og gist-
ingu. Hún getur orðið
mönnum ansi dýr þessi
rigning, ef menn fá víð-
áttubrjálæði út úr öUu
saman.
ORÐVAR
Matareitrun í Messanum á Vellinum:
BOTNLANGINN
FÓR FYRIR LÍTIÐ
í síðustu viku varð uppi
fótur og fit á Vellinum
þegar uppvíst var um mat-
areitrun af völdum svína-
kjöts, sem veitt var í Mess-
anum á Keflavíkurflug-
velli.
Veiktist nokkur fjöldi
vkana“, og er vitað um einn
Islending sem lagður var
inn á sjúkrahús vegna
gruns um botnlangakast.
Það kom hins vegar í ljós
þegar botnlanginn var
farinn, að maðurinn var
með matareitrun. Má því
segja að sá botnlangi hafi
farið fyrir lítið.
Allt starfsfólk Messans
var sent í rannsókn til að
ganga úr skugga um að það
hefði ekki smitast, en
grunur leikur á að um
salmonellu hafi verið að
ræða. - gæi.
„HANN GEFST EKKI UPP“
Ljósm.: O.K.