Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.07.1986, Blaðsíða 8

Víkurfréttir - 03.07.1986, Blaðsíða 8
8 Fimmtudagur 3. júlí 1986 VÍKUR-fréttir Bókari óskast Keflavíkurbær óskar að ráða starfskraft til bókhaldsstarfa. Umsækjendur þurfa að hafa haldgóða menntun og eða reynslu af bókhaldi. Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfsmanna. Umsóknarfrestur er til 9. júlí. Allar nánari upplýsingar veitir undirritaður ísíma 1550. . . . Bæjarritan Fjölbrautaskóli Suðumesja Lokað vegna sumarleyfa Skrifstofa skólans verður lokuð frá 1. júlí til 5. ágúst 1986. Kennsla á haustönn hefst sem hér segir: Miðvikudaginn 27. ágúst: Nýnemar. Fimmtudaginn 28. ágúst: Stundaskrár . . . afhentar. Skólameistan Konur - Stofnið fyrirtæki Námskeið um stofnun og rekstur fyrir- tækja verður haldið fyrir konur á Suður- nesjum. Kennt verður 4 kvöld. Kynningar- fundur verður haldinn að Vesturbraut 10a, Keflavík, mánudaginn 7. júlí kl 18. Upplýsingar í síma 4027. Iðnþróunarfélag Suðumesja ÍSLANDSLAX HF. RITARI íslandslax hf. er fiskeldisfyrirtæki í eigu ís- lenskra og norskra aðila. Aðsetur þess og skrifstofa er að Stað vestan Grindavíkur. Óskum eftir að ráða frá og með 1. ágúst n.k. ritara við vélritun, bókhald á tölvu, símavörslu ásamt aðstoð við gjaldkera. Áhersla lögð á góða kunnáttu í ensku og einu norðurlandamáli. Reynsla í notkun tölvu æskileg. Skriflegar umsóknir er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf skulu sendar til íslandslax hf., pósthólf 55, 240 Grindavík. Umsóknarfrestur er tll 15. júlí 1986. ÍSLANDALAX HF. Njarðvíkingur í hjólreiðakeppni í Finnlandi Eins og áður hefur komið fram var ísland meðal þátttökuþjóða í alþjóðlegri keppni véi- og reiðhjólamanna. En keppni þessi varhaldin af alþjóðasamtökum umferðarráða. Einn Suður- nesjadrengur var meðal þátttakenda, sem sjást á meðfylgjandi mynd ásamt fararstjórum. Sá heitir Dofri Örn Guðlaugsson og er úr Njarðvík. Hann er annar frá vinstri í aftari röð. -epj. Ijósm.: PS umferðarráð. Miðneshreppur: Lögtaki í flugstöðinni hafnað Lögreglustjórinn á Kefla- víkurflugvelli hefur dæmt í máli Miðneshrepps gegn utanríkisráðherra, þar sem hreppurinn krafðist lög- taks á eignum ríkissjóðs til tryggingar ógreiddu álögðu byggingarleyfisgjaldi vegna nýju flugstöðvarinnar. Var kröfu hreppsins um lögtak synjað. I dómsniðurstöðum segir að dómur þessi sé m.a. byggður á þeim forsendum að sú byggingarnefnd sem utanríkisráðherra skipaði á sínum tíma sé lögmæt, en hún veitti byggingaraðila stöðvarinnar byggingar- leyfi. AFMÆLI Fimmtugur verður næst- komandi sunnudag, 6. júlí, Guðfinnur Sigurvinsson, Háaleiti 13, Keflavík. Hann tekur á móti gestum þann dag á Glóðinni frá kl. 17 til kl. 20. Upphæð sú er krafist var lögtaks fyrir var kr. 572 þús., en lögtaksbeiðnin var Iögð fram á síðasta hausti. Er reiknað með því að úrskurði þessum verði áfrýj- að, þar sem um prófmál er að ræða. - epj. 10 Sundnámskeið Annað sundnámskeið ásamt íþrótta- og leikjanámskeiði hefst í íþróttahúsi Njarð- víkur 9. júlí n.k. Innritun er hafin í síma 2744. ÍÞRÓTTAHÚS NJARÐVÍKUR ATVINNA Vatnsleysustrandarhrepp vantar starfs- mann á traktorsgröfu nú þegar. Upplýsingar hjá verkstjóra hreppsins, Við- ari Péturssyni síma 6556 og hjá sveitar- stjóra í síma 6541. Sveitarstjori ATVINNA Vantar nokkra röska menn í skipa- viðgerðir. Vélsmiðja H. Heiðmundssonar, Strandgötu 23, Sandgerði, sími 7454 (7606)

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.