Víkurfréttir - 03.07.1986, Blaðsíða 7
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 3. júlí 1986 7
inn um Reykjavík. Eins er
meö vöruflutninga með
flugvélum sem fara vaxandi,
að þeir tefjast af því að fara
um Reykjavík.
Lagningu sporbrautarinn-
ar fylgdu umsvif verktaka og
atvinna í nokkur ár. Ég skal
ekki dæma um um hvort
brautin ætti að vera tvöföld
frá upphafi. Til að forðast
tafir mætti hugsa sér enda-
stöð í annarri ferðinni í
Reykjavík, en í hinni ferðinni í
Hafnarfirði.
Ég er ekki þaulkunnugur
málum á Suðurnesjum, en
hér er um framkvæmdir og
skipulagsbreytingu að ræða
sem virðist geta orðið til
heilla fyrir Suðurnes í bráð
og lengd. f mörg horn er að
líta áður en komist verður að
réttri niðurstöðu. M.a. þarf að
athuga hvernig innanlands-
flug mætti falla að öðru flugi
á vellinum og hvernig mætti
laga nýju flugstöðina að því.
Vitaskuld mundi málið mæta
andstöðu. Þeim Reykvíking-
um sem hafa helst kosið að
leggja niður Reykjavíkurflug-
völl mundi örugglega eflast
ásmegin ef Suðurnesjamenn
beittu sér í málinu.
Hér er um stóra ákvörðun
að ræða. Orð eru til alls fyrst,
en framhaldið er í höndum
Suðurnesjamanna.
Björn S. Stefánsson
Gera mætti Keflavikurflugvöll aö mlðstöö fyrir
innanlands- og utanlandsflug.
Veitingahúsið
GLAUMBERG
HIN VINSÆLA
UPPLYFTING
leikur fyrir dansi
föstudags- og laugardagskvöld
frá kl. 22 - 03.
SJÁVARGULLIÐ
Vesturbraut 17
Keflavík - S. 4040
Ferskur
matsölu-
staður, sem
kemur á
óvart.
Opið daglega
frá kl. 18.
Bjöm S. Stefánsson 23.VI. 1986:
Innanlandsflug á Keflavíkurflugvelli
Vissulega er það hagræði
að því fyrir okkur Reykvík-
inga í flugferðum innanlands
að hafa flugvöll svo að segja
inni í miðri borg. En annað
fylgir því að hafa flugvöllinn
við Skerjafjörð, sem ekki er
eins æskilegt. Land borgar-
innar hefur orðið að þenjast
miklu meira upp um holt og
móa en orðið hefði ef flug-
vallarlandið hefði mátt nýta
fyrir aðra starfsemi. Mikið af
flugumferðinni er æfingaflug
og óttast ýmsir flugslys í
borginni. Ef byggja mætti á
flugvallarsvæðinu yrði síður
ástæða til að byggja í gömlu
hverfunum yfir ýmsa
starfsemi sem á heima mið-
svæðis í borginni. Því má
ætla að borgaryfirvöld fengj-
ust til að fara mildari höndum
við endurnýjun gömlu hverf-
anna en nú er ráðgert og
ýmsum fellur þungt.
Þetta mál kemur Suður-
nesjamönnum við. Þeir sem
hafa viljað fá flugvallarsvæð-
ið við Skerjafjörð til afnota
fyrir ýmsa miðlæga starfsemi
og fyrir íbúðahverfi, hafa at-
hugað um annað flugvallar-
stæði í nágrenni Reykjavíkur,
en flugvallargerðin mundi
vitanlega kosta stórfé. Nú
hefur komið fram sú
hugmynd að nota Keflavíkur-
flugvöll fyrir innanlandsflug
og leggja sporbraut milli
Reykjavíkur og Keflavíkur-
flugvallar, þar sem lest flytti
fólk og farangur á milli á 20
mínútum. Þótt brautin kosti
allmikið er margt sem spar-
aðist í Reykjavík við að fá
flugvallarsvæðið til annarra
afnota og þyrfti að áætla það
í kostnaðartölum.
Þegar þetta mál hefur verið
rætt í Reykjavík er oft mælt
gegn því að innanlandsflug-
ið flyttist þaðan, þar sem
hagræði sé að því að lenda í
borginni og að geta lagt upp
til baka fyrirvaralítið. Ég skal
ekki dæma um allar ástæður
landshlutanna, en ég vil vekja
athygli Suðurnesjamanna á
hagsmunum þeirra. Ef
Keflavíkurflugvöllur yrði í
senn miðstöð innanlands-
flugs og utanlandsflugs,
mundi ýmis starfsemi sem
tengir Norðurland, Austur-
land og Vestfirði við útlönd
vera betur sett á Suðurnesj-
um en í Reykjavík. Ég skal
nefna dæmi.
Oft yrði auðveldara að
skipuleggja komur erlendra
ferðamanna með því að byrja
ferðina ekki í Reykjavík, held-
ur fljúga strax til Norður-
lands, Austurlands eða Vest-
fjarða. Það liggur hins vegar
illa við að skipuleggja ferðir
þannig, þar sem fólkið þarf
fyrst að fara til Reykjavíkur,
og þá fer það þannig að ferð-
in hefst með gistingu þar og
oftast með akstri þaðan. Ef
Keflavíkurflugvöllur yrði
sams konar miðstöð
áætlunarflugs innanlands og
Reykjavíkurflugvöllur er nú,
mundi oft liggja vel við að
skipta um flugvél við komu til
landsins og fljúga áfram út á
land, en enda ferðina í
Reykjavík. Með nýjum
ferðaháttum gæti orðið
grundvöllur fyrir gistihús á
Suðurnesjum. - Oft gæti líka
verið hagræði að því fyrir
norðlendinga, vestfirðinga
og austfirðinga sem ferðast
til útlanda, aðsparasérkrók-
Bjóðum
óvallt
nýjustu
og bestu
myndirnar
í VHS.
ALLAR
MYNDIR
MEÐ
ÍSL.
TEXTA.
HÁGÆÐA
FRAMKÖLLUN
Á
MfN.
SUMAR-
TILBOÐ
Ef teknar eru 3
myndir fylgir tæki
með í 1 sólarhring.