Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.07.1986, Blaðsíða 10

Víkurfréttir - 03.07.1986, Blaðsíða 10
10 Fimmtudagur 3. júlí 1986 VÍKUR-fréttir VIKUR-fréttir Fimmtudagur 3. júlí 1986 11 í '\^v I „Ég hef tekið út mína refsingu66 -segir Sigurður Björgvinson, knattspymumaður I Fáir Kejlvíkingar hafa verið jafn mikið í sviðsljós- inu undanfarið og knatt- spymumaðurinn Sigurður Björgvinsson. Hann var á dögunum dœmdur í bann frá öllum íþróttum það sem eftir er ársirts, en stuttu síðar var bann þetta dœmt ógilt og Sigurði því heimilt að stunda sínar íþróttir að vild Aður en þetta leiðindamál kom upp starfaði Sigurður mikið í kringum fótboltann og gerði sjálfur mikið af því að dœma leiki. En skyldu viðhorf hans eitthvað hafa breytst í þessum málum? Hvað hefur hann að segja um bannið og hvert er álit hans á dómarastéttinni? Þessu svarar hann og mörgu fleiru í við- talinu sem hér fer á eftir en til að lesendum sé málið skýrara þá fengum við hann fyrst til að lýsa að- dragandanum að öllum þessum ósköpum. „Þetta var þannig að við vorum að spila æf- ingaleik gegn Breiðabliki inni í Kópavogi. Ég var „senter" í leiknum og í fyrri hálfleik var ég spark- aður gróflega niður eftir að hafa komist einn inn fyrir. Ég brást vondur við og heimtaði að mannin- um yrði vísað af leikvelli en dómarinn vildi ekki samþykkja það. í síðari hálfleik skora ég svo mark og við það verða þeir ennþá grófari og voru sífellt að sparka aftan í lappimar á mér. Þá er það sem ég kalla á Gunna Odds sem lék á miðjunni og bið hann að senda boltann ekki í lapp- imar á mér heldur fram fyrir, því þeir séu alltaf sparkandi aftan í mig. Þá flautar dómarinn, kallar á Hólmbert og bið- ur hann að taka mig út af því annars myndi hann reka mig af leikvelli því ég væri að hvetja samheija mína til að sparka í and- stæðingana, sem var alger vitleysa. Þá fer Gunni og reynir að tala um fyrir honum en hann stóð fast á sínu og sagðist ekki hefja leikinn fyrr en ég væri kominn út af. Þá er það sem ég slengi fætinum í afturendann á honum.“ Var ástæða lil að æsa sig svo mikið? „Þetta var alls ekki gert í neinum æsingi. Ég var auðvitað svekktur og vildi á þennan hátt reyna að svekkja dómarann. Hann var búinn að standa sig mjög illa og ég vildi gera svona hálfgert grín að honum með þessu. Þetta var náttúrlega vanhugsað af minni hálfu og ég sá strax eftir þessu. Um leið og leikurinn var búinn þá fór ég til hans og bað hann afsökunar. Hann tók því og ég bjóst ekki við að hann myndi gera neitt veður út af þessu. Svo veit ég ekkert fyrr en þremur dögum seinna að þá er hann búinn að kæra mig.“ Hvernig fór með þá kæru? „Hún var send til Aga- nefndar KSÍ en þeir vildu ekkert með þetta mál hafa, svo þá var þetta kært til héraðsdómstóls- ins í Kópavogi. Þeir fundu ekkert í lögum KSÍ til að dæma mig eftir, enda engin lög til um æf- ingaleiki.' Þeir velktust með þetta í tvo mánuði og á þeim tíma tók ég út mánaðar leikjabann hjá Sigurður Björgvinsson á fullu í leik gegn ÍBV á þessu tímabili. ÍBK, sem refsingu fyrir þetta. Þá missti ég m.a. út 8 æfingaleiki og var þess vegna_ varamaður í fyrsta leik Islandsmótsins. Að áliti knattspymuráðs tók ég þama út mína refs- ingu. Á þessum tíma var málið sent til dómstóls KSI og frá þeim aftur til baka. Þá dæmdu þeir hjá héraðsdómstólnum í mál- inu eftir einhverjum ISI- reglum og þá var það sem þetta hálfs árs bann kom til.“ En svo er þarna viku- bann inní þessu líka, er það ekki? )VJú, það kom til vegna þess að hvorki ég né nokkur frá knattspymu- ráðinu gat komist til að vera viðstaddur dómstól- inn þegar taka átti málið fyrir. Kristján Ingi form. knattspymuráðs hringdi því í þá þann dag og bað um frestun, en hún var ekki tekin til greina. Eftir þetta var settur lögfræð- ingur í málið og mér al- gerlega haldið fyrir utan jjetta því knattspymuráð leit svo á að ég væri búinn að taka út mína refs- ingu.“ Var ekki ýmislegt gruggugt varðandi boð- anir og annað þess hátt- ar? TEXTI: Garðar K. Vilhjálmsson. MYNDIR: Páll Ketilsson „Jú, það er alveg óhætt að segja það. Til dæmis var ég boðaður til dóm- stólsins með aðeins fimm daga fyrirvara í stað viku, svo löglegt sé. Nú, dóm- urinn um vikubannið er tímasettur fimm tímum áður en dómstóllinn kom saman og aðra formgalla má einnig fmna. Það rotnasta af þessu öllu finnst mér þó það þegar þeir dæmdu mig í hálfs árs bannið. Það var gert á hádegi á föstudegi og mér barst skeyti um það kl. 13.15 sama dag að ég væri kominn í hálfs árs bann frá öllum íþróttum. Aftur á móti þegar bannið var fellt úr gildi virtist ekki liggja jafn mikið á því þá kom dómurinn saman á fimmtudegi á hádegi en ég fékk ekki tilkynningu um ógildingu fyrr en á mánudegi. Það kostaði mig þriðja leikinn í banni, sem í raun var ekkert bann.“ Hvernig heldur þú að það fari með leikinn gegn Víði? „Það er mjög erfitt að segja um það. Mér fmnst þetta móralskt séð mjög lélegt vegna þess að þetta eru kannski mannleg mis- tök á báða bóga. Hver svo sem niðurstaðan verður þá á hún eftir að verða mjög krítísk. Þetta verður annað )rIónsmál“, það er alveg á hreinu." Hefur þú lært eitthvað af þessu? )rJá, ég hef náttúrlega gert það. Ég hef löngum verið mikill skapmaður en í þessu tilviki missti ég ekki stjórn á skapi mínu þó þetta hafi vissulega verið vanhugsað hjá mér.“ En hefurþetta skemmt mikið fyrir þér sem knatlspyrnumanni? „Já, alveg örugglega. Bæði út á við og inn á við ef svo má segja. Fólk kemur héma til mín og spyr hvort ég hafi slasað manninn illa, systkini mín og móðir hafa verið spurð hvers konar villi- maður ég sé eiginlega og svona mætti lengi telja. Svo er það hitt að áhugi minn og virðing fyrir knattspymunni og dóm- urunum hefur minnkað til muna. Ég er hættur að dæma, en áður en þetta gerðist var það mitt helsta áhugamál.“ Hvers vegna hættirðu að dæma? , Ég vil ekki taka þátt í félagsskap eins og hann er innan dómarastéttarinn- ar. Það er alltaf að koma betur og betur í ljós hvernig ákveðnir menn þama misnota vald sitt til þess að misbjóða mönn- um. Nýjasta dæmið er leikbannið sem Viðar Halldórsson var dæmdur í fyrir það eitta að gera að gamni sínu við dómara löngu eftir að leik var lok- ið. _ Ég vil ekki reyna að réttlæta mitt brot með þessu en ég tel mig vera búinn að taka út mína refsingu. Aftur á móti hefur mannorð mitt sem knattspymumaður beðið hnekki. Ég er búinn að leika í fyrstu deild i ellefu ár. Þetta er í fyrsta sinn sem ég er dæmdur í bann og ég hef aldrei fengið rautt spjald í deildarleik, samt er ég 7. leikjahæsti maðurinn í allri deildinni á öllu landinu. I yfir 170 deildaraleikjum hef ég aldrei hlotið bann og þetta er því mjög súrt að skemma þetta svona, því eins og staðan er í dag, þá er ég alger „villimaður“. Siggi í dauðafæri í leiknum umdeilda gegn Víðismönnum í Garði. Nafn: Sigurður Björgvins- son. Gælunafn: Siggi. Fæðingardagur: 22. mars 1959. Heimili: Hringbmt 64 Hæð: 180 cm. Skónúmen Gönguskór 8 l/2en fótboltaskór7l/2. Starf: Lagermaður. Óskastarf: Að geta unnið sjálfsætt. Bíll: Enginn. Óskabíll: Enginn sérstak- ur. Sérkenni: Hávær á fót- boltavellinum. Áhugamál: Fótbolti, hand bolti og svo vom það dómaramálin. Heimilishagir: Engin böm en á unnustu, Margréti Þórarinsdóttur. Ertu sportidíót: Já. Hefur þig einhvern tíma dreymt um að verða blaða- maður: Nei. Hver fmnst þér fallegasta kona í heimi: Unnur Steinsson. Hver er að þínu mati fræg- asti Suðumesjamaðurinn: Guðni Kjartansson. Hver er þinn uppáhalds bæjarfulltrúi: Eigum við ekki að segja „gömlu fót- boltajaxlarnir“. Ertu hlynntur eða andvígur bæjarstjórnar- meirihlutanum: Hlynntur. Uppáhalds blað/tímarit: íþróttablaðið. Uppáhalds útvarps/sjón- varpsþáttur: íþróttir. Uppáhalds matur: Nauta- lundir. Uppáhaldslitur: Blár. Framtíðaráform: Fara út í þjálfun. Mottó (lífsspeki): Gera það sem ég hef ánægju af en ekki hanga í einhverju sem mér finnst hundleið- inlegt. VERÐÖESLA -góð vöm gegn veiðhækkunum Ef bornar eru saman tölur í fyrri dálknum sem eru frá 5. maí og þær í síðari dálkn- um sem eru frá 28. júní, kemur í Ijós að í flestum til- fellum hefur orðið þó nokkur árangur af verðgæslu þess- ari. Vörutegundir. Sparkaup. 5/5 28/6 Nonni og Bubbi Hðlmgarði. 5/5 28/6 Sp.akaup 5/5 28/6 Hagkrup [f|c 5/5 28/6 “i Ora gr.baunir 1/2 ds. ... 3S.?5 35.25 31.00 3o.oo 3o.5o 3o.5o 29.4o 29.4o Sól haframjöl, 475 gr. 41,00 41.85 44.00 45.9o 39.4o 39.4o 38.9o 38.9o River rice hrísgrjon 454 gr 38.15 33.3o 36.9o 36.9o 34.65 34.65 33.3o 29.5o Papco WC paoDÍr. ? nl. 38.5o 35.9o SSfið- 37.00 3o.9o X h?f*9ÖPSP 31.90 Pillsburvs best hveiti. S Ihs. 83.00 82.6o 83.9o 33.9o 74.5o 74.50 77.9o 71.5o Dansukker púðursvkur. 1/2 kp 23.85 23.55 24.5o 24.5o 22.35 22.25 22.00 19.Qo Kartöflur, 2.kg Þykkvabæjar 97.30 97.5o 97.2o 89.7o 97.oo 97.00 93.00 93.oo Þykkvabæjar franskar 1500 gr. 223.00 2o7.5o 208.00 229.00 197.00 197.00 2o7.5o w.50 Cheerios 198 gr 69.00 67.oo 68.7o 68.7o 60.9o 60.9o 6 o.7o 60.7o Cocoa puffs 340 gr 144.00 139.oo 143.7o 143.7o 127.5o 127.oo l?7.1o 127.10 Appelsínur 1 kg. 94.00 97.oo 96.5o 87.00 69.00 75.00 64.9o 7 F . 4 0 Ljóma smjörlíki 1/2 kg. 48.9o 48.9o 46.80 46.80 46.00 46.00 45.5o 45.5o Milda þvottaduft 700 gr 69.00 7o.3o 72.00 72.00 X 61.5o 64.5o 64.5o Lux handsápa, lítil 19.4o 17.1o 17.9o 17.9o 16.7o 16.4o 16.9o 16.9o Colgate fluor tannkr. 5o ml. 52.9o 47.6o 46.5o X 45.45 44.65 46.9o 45.9o Vals tómatsósa 800 gr. 73.90 72.8o 77.3o X X 68.3o 68.3o 67.2o 67.2o Egils djús,0,98 gr 84.00 84.00 88.00 87.75 8I.00 8I.00 83.00 83.1o Svali, sykurlaus 1/4 1. 13.50 13.5o 15.2o I4.00 12.5o 12.5o 12.5o- 12.50 Kjútlingar 1 kg, Isfugl. 3o7.00 3o7.oo 228.00 228.00 29o.oo 29o.oo 269.oo 269.oo VIKUR-FRETTIR Málgagn Suðumesjamanna Könnun þessi var gerö at Verkalýfis- og s|ómannatélagl Keflavfkur og ná- grennls, Verkakvennafélagl Keflavlkur og Njarfivfkur, Verslunarmanna- félagl Sufiurnesja og Ifinsvelnafélagl Sufiumesja. Sveitarstjórastaðan í Sandgerði Sjö vilja í stólinn Áður en umsóknarfrest- ur rann út um stöðu sveitar- stjóra í Miðneshreppi höfðu sjö umsóknir borist. Þar af óskuðu fimm nafn- leyndar. Að sögn Ólafs Gunn- laugssonar, oddvita Mið- neshrepps, verður trúlega ekki ráðið í stöðuna fyrr en í næstu viku, en þessa dag- ana er verið að skoða um- sóknirnar nánar. - epj. Gjald- eyiis þjónusta n SPARISJÓÐURINN f KEFLAVÍK

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.