Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.07.1986, Síða 7

Víkurfréttir - 03.07.1986, Síða 7
VÍKUR-fréttir Fimmtudagur 3. júlí 1986 7 inn um Reykjavík. Eins er meö vöruflutninga með flugvélum sem fara vaxandi, að þeir tefjast af því að fara um Reykjavík. Lagningu sporbrautarinn- ar fylgdu umsvif verktaka og atvinna í nokkur ár. Ég skal ekki dæma um um hvort brautin ætti að vera tvöföld frá upphafi. Til að forðast tafir mætti hugsa sér enda- stöð í annarri ferðinni í Reykjavík, en í hinni ferðinni í Hafnarfirði. Ég er ekki þaulkunnugur málum á Suðurnesjum, en hér er um framkvæmdir og skipulagsbreytingu að ræða sem virðist geta orðið til heilla fyrir Suðurnes í bráð og lengd. f mörg horn er að líta áður en komist verður að réttri niðurstöðu. M.a. þarf að athuga hvernig innanlands- flug mætti falla að öðru flugi á vellinum og hvernig mætti laga nýju flugstöðina að því. Vitaskuld mundi málið mæta andstöðu. Þeim Reykvíking- um sem hafa helst kosið að leggja niður Reykjavíkurflug- völl mundi örugglega eflast ásmegin ef Suðurnesjamenn beittu sér í málinu. Hér er um stóra ákvörðun að ræða. Orð eru til alls fyrst, en framhaldið er í höndum Suðurnesjamanna. Björn S. Stefánsson Gera mætti Keflavikurflugvöll aö mlðstöö fyrir innanlands- og utanlandsflug. Veitingahúsið GLAUMBERG HIN VINSÆLA UPPLYFTING leikur fyrir dansi föstudags- og laugardagskvöld frá kl. 22 - 03. SJÁVARGULLIÐ Vesturbraut 17 Keflavík - S. 4040 Ferskur matsölu- staður, sem kemur á óvart. Opið daglega frá kl. 18. Bjöm S. Stefánsson 23.VI. 1986: Innanlandsflug á Keflavíkurflugvelli Vissulega er það hagræði að því fyrir okkur Reykvík- inga í flugferðum innanlands að hafa flugvöll svo að segja inni í miðri borg. En annað fylgir því að hafa flugvöllinn við Skerjafjörð, sem ekki er eins æskilegt. Land borgar- innar hefur orðið að þenjast miklu meira upp um holt og móa en orðið hefði ef flug- vallarlandið hefði mátt nýta fyrir aðra starfsemi. Mikið af flugumferðinni er æfingaflug og óttast ýmsir flugslys í borginni. Ef byggja mætti á flugvallarsvæðinu yrði síður ástæða til að byggja í gömlu hverfunum yfir ýmsa starfsemi sem á heima mið- svæðis í borginni. Því má ætla að borgaryfirvöld fengj- ust til að fara mildari höndum við endurnýjun gömlu hverf- anna en nú er ráðgert og ýmsum fellur þungt. Þetta mál kemur Suður- nesjamönnum við. Þeir sem hafa viljað fá flugvallarsvæð- ið við Skerjafjörð til afnota fyrir ýmsa miðlæga starfsemi og fyrir íbúðahverfi, hafa at- hugað um annað flugvallar- stæði í nágrenni Reykjavíkur, en flugvallargerðin mundi vitanlega kosta stórfé. Nú hefur komið fram sú hugmynd að nota Keflavíkur- flugvöll fyrir innanlandsflug og leggja sporbraut milli Reykjavíkur og Keflavíkur- flugvallar, þar sem lest flytti fólk og farangur á milli á 20 mínútum. Þótt brautin kosti allmikið er margt sem spar- aðist í Reykjavík við að fá flugvallarsvæðið til annarra afnota og þyrfti að áætla það í kostnaðartölum. Þegar þetta mál hefur verið rætt í Reykjavík er oft mælt gegn því að innanlandsflug- ið flyttist þaðan, þar sem hagræði sé að því að lenda í borginni og að geta lagt upp til baka fyrirvaralítið. Ég skal ekki dæma um allar ástæður landshlutanna, en ég vil vekja athygli Suðurnesjamanna á hagsmunum þeirra. Ef Keflavíkurflugvöllur yrði í senn miðstöð innanlands- flugs og utanlandsflugs, mundi ýmis starfsemi sem tengir Norðurland, Austur- land og Vestfirði við útlönd vera betur sett á Suðurnesj- um en í Reykjavík. Ég skal nefna dæmi. Oft yrði auðveldara að skipuleggja komur erlendra ferðamanna með því að byrja ferðina ekki í Reykjavík, held- ur fljúga strax til Norður- lands, Austurlands eða Vest- fjarða. Það liggur hins vegar illa við að skipuleggja ferðir þannig, þar sem fólkið þarf fyrst að fara til Reykjavíkur, og þá fer það þannig að ferð- in hefst með gistingu þar og oftast með akstri þaðan. Ef Keflavíkurflugvöllur yrði sams konar miðstöð áætlunarflugs innanlands og Reykjavíkurflugvöllur er nú, mundi oft liggja vel við að skipta um flugvél við komu til landsins og fljúga áfram út á land, en enda ferðina í Reykjavík. Með nýjum ferðaháttum gæti orðið grundvöllur fyrir gistihús á Suðurnesjum. - Oft gæti líka verið hagræði að því fyrir norðlendinga, vestfirðinga og austfirðinga sem ferðast til útlanda, aðsparasérkrók- Bjóðum óvallt nýjustu og bestu myndirnar í VHS. ALLAR MYNDIR MEÐ ÍSL. TEXTA. HÁGÆÐA FRAMKÖLLUN Á MfN. SUMAR- TILBOÐ Ef teknar eru 3 myndir fylgir tæki með í 1 sólarhring.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.