Víkurfréttir - 03.07.1986, Side 13
VIKUR-fréttir
Fimmtudagur 3. júlí 1986 13
Ólafur Þór Eiríksson:
Það sem þú þarft að vita um
Iðnþróunarfélag Suðurnesja
í stjórnartíð Hjörleifs fyrr-
um iðnaðarráðherra Gutt-
ormssonar var iðnþróunarfé-
lögum komið upp í hverjum
landshluta. Tilgangur og
markmið þessara félaga ætti
að vera ljós, en ef svo er ekki
upplýsi ég hér með, að eins og
nafnið bendir til er það þróun
(og efling) iðnaðar (skv.
orðabók merkir iðn iðja,
starf,,handiðn eða iðnaðar-),
sem sagt þróun atvinnu.
Forstöðumönnum þessara
félaga skyldi vegna menntunar
sinnar vera unnt að veita ýmsa
ráðgjöf og aðstoð til handa
þeim mönnum sem þegar hafa
komið á fót fyrirtækjunt og
eins þeim er viíja fara út í at-
vinnurekstur.
Hvernig hefur þessum fé-
Iögum gengið að fóta sig
hingað til í samfélagi við hina
misvitru stjórnmálamenn
okkar Islendinga? Ekki nógu
vel verð ég að segja, mér til
sárra vonbrigða, því að per-
sónulega tel ég flest félög vera
af hinu góða og allt samstarf
og samvinna, vegna þess, eins
og maðurinn (karlinn eða
konan) sagði, að „líftð er alltof
stutt og verðmætt til að sóa því
í fánýtar deilur um veraldleg-
an auð sent maður fær síðan
ekki notið að þessu lífi loknu".
Það er einmitt lóðið, til hvers
er það og hvað er fengið með
því að hverjum og einum skuli
leyfast að skara eld að sinni
köku, án tillits til meðbræðra
sinna, í stað þess að sameinast
um að gera þessa skömmu
jarðvist okkar að einni sælu
þar sem öllum Iiði vel? Hver
gefur einurn rétt til að fá notið
alls hins besta, á sama tíma og
aðrir lepja dauðann úr skel?
Atvinna er
forsenda annars
Snemma á þessu ári tók ég
að sinna þeirri köllun minni að
Ólafur Þór Eiríksson
beita kröftum mínum til að
efla atvinnulífið á Suðurnesj-
um, enda hafði ég orðið hart
úti í landlægu atvinnuleysinu
hér. En hvernig ætli sé nú best
fyrir lítilmagnann að koma
eigin hugmyndum á framfæri;
kröfuganga eða greinaskrif?
Eg valdi síðari kostinn.
Árangurinn lét ekki á sér
standa. í febrúar, skömmu
eftir eina greinina um atvinnu-
mál fatlaðra, hefur samband
við mig okkar þó nokkuð umdeildi
iðnráðgjafi og innir mig eftir
hvort ég sé reiðubúinn til að
innheimta árgjöld hjá nokkr-
um iðnþróunarfélögum, jafn-
framt því sem ekki skaðaði að
fá fleiri félaga.
f
Eg beið ekki boðanna, enda
orðinn hundleiður á aðgerðar-
leysinu í sjálfum mér, setti
strax í fjórða gír og hóf leitina
eftir stuðningi við þetta þjóð-
þrifafélag okkar. Hef ég notast
við frasana heimskunnu:
„Efldir atvinnuvegir - efldur
efnahagur heimilanna - meiri
fjármunir í umferð, og á því
græða allir, staðreyndir sem
hvarvetna hafa sýnt sig réttar:
Japan, Bandaríkin, Vestur-
Þýskaland. Auk þess gæti Iðn-
þróunarfélag Suðurnesja orðið
geysiöflugur þrýstihópur og
sameiningartákn í hinni geysi-
hörðu baráttu um hið tak-
markaða íslenska lánafjár-
magn, ef og þegar Suðurnesja-
menn loks átta sig á gildi fé-
lagsins og ganga í það í þús-
undavís, og þá ekki einungis
fyrirtæki og félög, heldur
einnig þú og ég, einstaklingar
Suðurnesja. Tökum saman
höndum, lyftum grettistakinu
og eflum atvinnuvegina á
heimaslóð okkar.
Göngum öll í Iðnþróunarfé-
lagið, Vesturbraut lOa, Kefla-
vík, sími 4027.
Til hamingju, kratar, -en nú
er að sýna að þið séuð betri
kosturinn. Þar sem þið kratar
voruð eina stjórnmálaaflið
sem sýndi félaginu áhuga í
stefnuskrá, ætla ég að þið
munið halda áfram þeirri
miklu uppbyggingu félagsins
sem þegar er hafin. Stuðlið að
því að sérstökum iðnþróunar-
sjoði verði komið á laggirnar í
anda framk væmdasjóðs
Gunnars Sveinssonar, því að
nú fer hver að verða síðastur til
aðfá notið einhvers afþvífjár-
magni sem flæðir uppi á Velli.
Kaninn hefur margoft sýnt
okkur, að ekki er hann hér
fyrst og fremst okkar vegna.
Sanniði til, að um leið og hann
sér aðra leið hentugri til að
hafa gætur á „óvininum úr
austri“, þá kveður hann með
kurt og pí. Að óbreyttu at-
vinnuástandi verður líf hér
ekki eftirsóknarvert.
Baráttukveðjur.
Ó.Þ.E.
ATVIMNA
Óska eftir að ráða starfskraft í uppvask.
Um er að ræða hálfs dags starf, vakta-
vinnu. Upplýsingar gefur yfirkokkur á
staðnum. VEITINGAHÚSIÐ GLÓÐIN
Vatnsheld málnlng sem hlndrar ekkl útöndun, getur
stöðvað og komlð I veg fyrlr alkalískemmdlr.
STEINVARI 2000 er terpentínuþynnanleg akrýlmálning. Hún
er gædd þeim einstöku eiginleikum að vera þétt gegn vatni og
slagregni, en hleypa jafnframt loftkenndum raka auöveldlega í
gegnum sig, rúmlega tvöfalt betur en heföbundin plastmáln-
ing. Þessir eiginleikar gera STEINVARA 2000 aö óviöjafnan-
legri málningu utan á steinsteypt mannvirki viö íslenskar aö-
stæöur.
fjdrapími
Hafnargötu 90 - Keflav™ - Sfml 2652
Takið steinana umhverfis leiðin burtu
Island — Ameríka
Beinar siglingar milli Njarðvíkur og Norfolk
með M.v. RAINBOW HOPE". Flytjum stykkja-,
palla- og gámavöru, frystivöru og frystigáma.
Lestunardagar
Áœtlun:
Njarðvík — Norfolk
umboðsmenn okkar eru
Gunrur GuðiOmson sf
Mafnarstræti 5
P0 Bo* 290
121 PevtJavik
simi 29200 Tetex 2014
Mendan Shtp Agencv. inc
201 E Citv Haii Ave Sutte 501
Norfolk Va 23510
USA
Simi (8041-625-5612
Tetex 710-881-1256
ti
13. júll
2. ágúst
23. Júli
12. ágúst
Ralnbow
™ Navlgation.lnc.
Á þessari mynd sést hvað grasið er orðið úftð og illa hirt þar
sem um slíka umgjörð er að ræða.
Starfsstúlkurnar í nýja
kirkjugarðinum móti
Mánagrund í Keflavík vilja
hér með koma fram áskor-
un til aðstandenda þeirra
sem þar eru jarðsettir. Er
þetta varðandi þau leiði
sem eru með kassa eða
hleðslu umhverfis leiðin.
Þar sem komin eru Iög
sem banna slíka umgjörð
og miklum erfiðleikum er
bundið að klippa grasið
sem vex fast að umgjörð-
inni hefur verið ákveðið að
hætta að snyrta þetta.
Vill starfsfólkið því hvetja
viðkomandi aðila til að fjar-
lægja þessa hleðslu eða um-
gjörð svo hægt sé að halda
garðinum vel snyrtum sem
hingað til. -epj.
ÚTGERÐARMENN
SMÁBÁTAEIGENDUR
FISKVERKENDUR
Nú geta allir flutt út
í gámum.
Útvegum ílát og ís.
SIGURJÓN HF.
Símar 7678, 7658, 7473