Víkurfréttir - 03.07.1986, Qupperneq 15
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 3. júlí 1986 15
Tíu tóku sveinspróf
Á þessari mynd sjást nokkrir þeirra sem tóku prófið í síðustu viku.
Myndir: GKV.
Tumer verður ijarlægt
í síðustu viku voru tekin
sveinspróf í húsasmíði um
allt land. í Keflavík fór
prófið fram í verknáms-
húsi Fjölbrautaskólans við
Iðavelli.
Að þessu sinni voru það
tíu manns sem þreyttu próf-
ið, þar af 8 sem voru á
námssamningi hjá meist-
ara, einn kom beint úr Fjöl-
braut og einn var á undan-
þágu vegna s.k. 10 ára
reglu. Það var fyrsta konan
sem vitað er til að tekur
sveinspróf í húsasmíði hér á
landi, Karólína Þorgríms-
dóttir, en hún hefur um
langt skeið starfað hjá
Ramma hf.
Helsta breytingin á
sveinsprófinu frá fyrri árum
er sú að nú taka allir sam-
ræmt próf, þ.e. allir þurfa
að glíma við að byggja sama
hlutinn. Að þessu sinni var
það vinnutrappa, sem
sveinarnir verða látnir
smíða. Hafði hver og einn
20 tíma til þess að ljúka
verkinu.
I prófnefnd húsasmiða á
Suðurnesjum sitja þeir
Hreinn Óskarsson, sem er
formaður, og með honum
þeir Albert Hinriksson
og Sigurður Guðjónsson.
Vildu þeir koma því á fram-
færi að það er engu minni
áfangi hjá fólki þegar það
tekur sveinspróf í einhverri
iðn heldur en þegar fólk
tekur stúdentspróf. Það
verður að gera sér grein
fyrir því að án iðnaðar-
manna væri lítið varið í
þetta þjóðfélag. - gæi.
Sveinsstykkið: Vinnutrappa.
Varnarmáladeild:
Draslið við
Ef ekið er í gegnum flug-
vallarsvæðið út að nýju
flugstöðinni eða að Sand-
gerðishliði, blasir ófögur
sjón ofan við Turner. Hefur
þar hrúgast upp bílakirkju-
garður og annað drast, sem
síður en svo er til prýði.
Þar sem svæði þetta er í
umsjón Varnarliðsins, þó
það sé neðan flugvallargirð-
ingar, hafði blaðið sam-
band við Sverri Hauk
Gunnlaugsson hjá Varnar-
máladeild og spurði hvort
ekki yrði eitthvað gert í
þessum málum áður en
nýja flugstöðin yrði tekin í
notkun.
Hann sagði að þó þeir
ættu engan þátt í þessari
uppsöfnun á bílhræum o.fl.
þarna, myndu þeir láta fjar-
lægja þetta áður en nýja
flugstöðin yrði tekin í notk-
un, sem er áætlað næsta
vor.
Karólína athugar hvort ekki sé allt pússað samkvæmt kúnstarinnar
reglum.
Bílakirkjugarðurinn við Turnerhlið.
Vegna langra biðlista og
fjölda áskorana
bjóðum við tveggja vikna aukaferð til
RH0Ð0S
með möguleika á viðbótardvöl íAmsterdam
án aukakostnaðar í flugi
Vegna góðrar þátttöku efnum við til sérstakrar aukaferðar til Rhodos
dagana 15.-30. september nk. Þetta er snaggaraleg tveggja vikna ferð,
flogið er í leiguflugi beinttil Rhodos en heim aftur í áætlunarflugi með
millilendingu í Amsterdam. Aukadvöl í borginni fæst því án nokkurs
aukakostnaðar í flugi - og að sjálfsögðu útvegum við hótelgistingu,
bilaleigubilao.rn.fi. í Amsterdam ávægu verði.
Vinsamlegast látið vita um þátttöku sem fyrst. //
Takmarkaðsætaframboð. ^
Samvinnuferdir -Landsýn
Umboðsmenn: Keflavík: Kristinn Danivalsson, sími 1864
Sandgerði: Egill Ólafsson, sími 7689
Grindavík: Sigurður Sveinbjömsson, sími 8217