Morgunblaðið - 23.11.2015, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.11.2015, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2015 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Rússar stóðu uppi sem sannir sig- urvegarar á Evrópumóti landsliða í skák, sem lauk í Laugardalshöll í gær. Þeir tryggðu sér sigur í opnum flokki með 2-2 jafntefli við Ungverja í síðustu umferðinni og kvennasveit þeirra lagði Þjóðverja 3-1 og vann kvennaflokkinn. A-landslið Íslands vann 4-0 sig- ur á Svíum í lokaumferðinni og varð efst Norðurlandaliða á mótinu, í 19. sæti. Gullaldarliðið, skipað reyndum íslenskum stórmeisturum, lagði Skota að velli í lokaumferðinni og endaði í 32. sæti. Íslenska kvennaliðið hafnaði í 27. sæti í kvennaflokki eftir tap gegn Slóvenum í lokaumferðinni. Tæplega 80 sveitir alls Evrópumót landsliða er sterk- asta skákmót ársins í heiminum og tóku tæplega 150 stórmeistarar þátt í mótinu. Lið frá 35 löndum mættu til leiks og kepptu 36 sveitir í opnum flokki og 30 í kvennaflokki. Í öðru sæti í opnum flokki voru Armenar með 13 stig eftir 3-1 sigur gegn Georgíu í lokaumferð mótsins. Ung- verjaland hafnaði í þriðja sæti, einn- ig með 13 stig, og Frakkland í því fjórða, einnig með 13 stig. Stigaút- reikningar réðu úrslitum. Hinir ný- krýndu Evrópumeistarar í opnum flokki fóru taplausir í gegnum allar níu umferðir mótsins. Sveitin er skipuð þeim Alexander Grischuk, Peter Svidler, Evgeny Toma- shevsky, Dmitry Jakovenko og Ian Nepomniachtchi. Í kvennaflokki var sigur Rússa enn meira sannfærandi, en sveitin, sem skipuð er Alexöndru Kosteniuk, Katerynu Lagno, Valent- inu Gunina, Aleksöndru Goryachk- ina og Anastasiu Bodnaruk, vann átta viðureignir og gerði eitt jafntefli og hlaut 17 stig af 18 mögulegum. Í flokki kvenna hafnaði Úkraína í öðru sæti með 15 stig og Georgía í þriðja sæti með 14 stig. Hjörvar tapaði ekki skák Hjörvar Steinn Grétarsson, sem tefldi á öðru borði A-landsliðs- ins, náði bestum árangri íslensku landsliðsmannanna. Fékk hann fimm vinninga af átta mögulegum og tapaði ekki skák. Sveitin var auk Hjörvars skipuð Hannesi Hlífari Stefánssyni, Henrik Danielsen, Guð- mundi Kjartanssyni og Héðni Stein- grímssyni, sem hvíldi í síðustu um- ferð. Evrópumótinu lauk með athöfn í Hörpu í gærkvöldi þar sem Sig- mundur Davíð Gunnlaugsson for- sætisráðherra afhenti verðlaunin. Rússar sannfærandi sigurveg- arar á Evrópumótinu í skák  A-landslið Íslands efst Norðurlandaliða  Rússar taplausir í báðum flokkum Morgunblaðið/Golli Þakklætisvottur Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands Íslands, af- henti Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni taflborð áritað af keppendum. Morgunblaðið/Golli Evrópumeistarar Rússar sigruðu í opnum flokki og urðu því Evrópumeistarar. Þeir höfðu fulla ástæðu til að slá á létta strengi við verðlaunaafhend- inguna enda fóru þeir taplausir í gegnum mótið. Þá fór kvennasveit Rússlands einnig taplaus í gegnum mótið í flokki kvenna og vann flokkinn. Benedikt Bóas benedikt@mbl.is „Embættismenn frá innanríkisráðu- neytinu eru að koma til nefndarinnar í næstu viku og þá munum við fara yf- ir þessar áhyggjur okkar sem við deilum öll varðandi fjárhag lögreglu- embættanna, sama í hvaða flokki við erum,“ segir Unnur Brá Konráðs- dóttir, formaður allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis. Í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina var viðtal við þrjá reynda lög- reglumenn þar sem svartri stöðu lög- gæslu í landinu var lýst. Þar kom meðal annars fram að árið 1984 voru um og yfir 60 manns á næt- urvakt hjá lögreglunni í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði um helgar. Í dag eru þeir um 30 hjá lögreglunni á höfuðborgar- svæðinu þrátt fyr- ir að fólki á svæð- inu hafi fjölgað um rúmlega 78 þúsund. Einnig kom fram að lög- reglan réði varla við ástandið á álagspunktum lengur, smærri mál sætu á hakan- um og það væri erfitt að sinna neyðarútköllum. Lögreglan væri löngu komin yfir þolmörk og væri of fáliðuð. Viðtalið endar á orðunum: „Þegar allt kemur til alls er ábyrgðin á því hvert leiða skuli hestinn ekki hjá lögreglu, hún er hjá stjórnmálamönn- unum. Hvað segja þeir um þróun þessa?“ Fjársvelti lögreglunnar er vel þekkt og er fundurinn ætlaður til að fara yfir þá stöðu sem uppi er í lög- gæslu á landinu en fram hefur komið að um 200 lögreglumenn vanti á Ís- landi. „Það er nokkuð sem við höfum að sjálfsögðu áhyggjur af. Við höfum bætt 500 milljónum króna inn í lög- reglumálin á þessu kjörtímabili þann- ig að við erum byrjuð að laga hlutina en þurfum að halda því áfram og ég trúi því að við séum að gera það. Við viljum manna lögregluna þann- ig að hún geti sinnt sínum verkefnum og eins og staðan er núna er það ekki þannig,“ segir Unnur og tekur dæmi af sínu kjördæmi, Suðurlandi. „Með auknum ferðamannastraumi þar er erfitt fyrir lögregluna að sinna grunnverkefnum sínum vegna þess að þessi aukni mannfjöldi á svæðinu kallar á mikla þjónustu.“ Tími fyrir næsta skref Unnur bendir á að allsherjarnefnd- in sé búin að gera margvíslegar breytingar á lögregluembættunum, hjá sýslumönnum og þá var héraðs- saksóknaraembætti sett á laggirnar. „Við ætlum að fylgjast með hvernig breytingarnar koma út fjárhagslega og einnig að þessu sé fylgt eftir og gert vel. Þess vegna er ráðuneytið að koma til okkar.“ Unnur segir að eitt af áhersluatrið- unum hjá sitjandi ríkistjórn sé að setja meira í löggæslu í landinu og það sé komið að því að taka næsta skref. „Við erum byrjuð á verkefninu að bæta í og nú þarf að taka næsta skref. Það verður ekki umflúið.“ Áhyggjur sem allir deila  Allsherjar- og menntamálanefnd fundar í næstu viku með embættismönnum til að ræða fjárhag lögreglunnar  Erum byrjuð að laga hlutina, segir þingmaður Unnur Brá Konráðsdóttir Stjórnir lyfjaris- anna Pfizer og Allergan, móð- urfélags Actavis á Íslandi, eru á lokastigi að semja um sam- runa sem metinn er á 150 millj- arða dollara eða nærri 20 þúsund milljarða króna. Allergan hét áður Actavis og á Björgólfur Thor Björgólfsson um prósent í félaginu. Eftir samruna fyrirtækjanna var nafn þess fyrr- nefnda tekið upp fyrir samsteyp- una. Síðar keypti ísraelska lyfjafyr- irtækið Teva Allergan. Í frétt New York Times kemur fram að stjórnir fyrirtækjanna tveggja hafi kosið um málið í gær og gert sé ráð fyrir tilkynningu á mörkuðum í dag. Samkvæmt frétt blaðsins er enn verið að fínpússa samninginn og gæti tilkynningin því dregist. Sam- runi mun mynda nýjan lyfjarisa og á að geta hjálpað Pfizer að lækka skattgreiðslur sínar. Pfizer borgar 11,3 hluti fyrir hvern hlut en samkvæmt frétt blaðsins fara litlir peningar á milli. Er samruninn gerður til að komast hjá reglum bandaríska skattsins og er Allergan sagt kaupandi að Pfi- zer, þótt það sé í raun jafnvel öfugt. Á þetta að spara Pfizer töluverðar upphæðir. Lyfjarisar sameinast  Viðræður Allergan og Pfizer á lokastigi Gunnar Bragi Sveinsson utan- ríkisráðherra segir að ekki séu til skoðunar í við- skiptaráðuneyt- inu breytingar á viðskiptabanni milli Rússlands og Íslands sam- hliða auknu sam- starfi Rússa og Vesturlanda í baráttunni gegn hryðjuverkamönnum. Hann segir Rússa þurfa að standa við Minsk- samkomulagið svokallaða áður en breytingar verði gerðar á við- skiptabanninu, en samkomulagið fel- ur í sér vopnahlé á Krímskaganum. „Það er mikilvægt að standa við gert samkomulag, þ.e. Minsk- samkomulagið. Þá verður byrjað að draga úr þvingunum,“ segir Gunnar. Breytt öryggisástand í Evrópu „Öryggisástandið í Evrópu er sannarlega breytt. Leiðtogar Evr- ópuríkja velta upp stórum spurn- ingum og Bretar munu á morgun [í dag] ræða mögulega hernaðarþátt- töku sína gegn Ríki íslams. Þá hefur öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkt einróma ályktun gegn því,“ segir Gunnar Bragi um breytt landslag í Evrópu í kjölfar atburða liðinna daga. Gunnar segir markmið Vestur- landa og Evrópuríkja vera að standa saman gegn hryðjuverkum. „Rússar hafa mikilvægu hlutverki að gegna á alþjóðasviðinu. Ég fagna samstarfinu við þá í baráttunni við Ríki íslams og vona að það bæti sam- skiptin víðar,“ segir Gunnar Bragi. Viðskipta- bann helst óbreytt Gunnar Bragi Sveinsson  Fagnar auknu samstarfi við Rússa

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.