Morgunblaðið - 23.11.2015, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 23.11.2015, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2015 ✝ Ólafur Helgifæddist 22. september 1966 á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri. Hann lést 9. nóv- ember 2015. Hann var uppal- inn í Ásgarði á Hauganesi í Dalvík- urbyggð. Foreldrar hans voru hjónin Sig- urður Traustason útgerð- armaður á Hauganesi, fæddur 4. júlí 1905 í Steinkoti á Árskógs- strönd, dáinn 17. desember 1988, og Nanna Jónína Stein- dórsdóttir húsmóðir, fædd 1. mars 1923, í Syðri Brekku í Arn- arneshreppi, dáin 28. apríl 2001. Systkini Ólafs Helga eru; 1) 1964, maki Svala Dröfn Árna- dóttir. Ólafur Helgi var í sambúð með Aðalheiði Björk Matthías- dóttur frá Akureyri, þau slitu samvistum, og eignaðist með henni soninn Kristófer, f. 2. október 1987, maki Hertha Rós Sigursveinsdóttir, fædd 19. nóv- ember 1987. Ólafur á einnig tvö barnabörn; Rebekku Rós, f. 2008, og Fjalar Óla, f. 2014, Kristófersbörn. Þann 4. júlí 2005 giftist Ólaf- ur Helgi Birnu Maríu Möller sjúkraliða, f. 27. maí 1969 í Hrís- ey. Foreldrar hennar eru Nanna Björnsdóttir, fædd 30. desember 1949, og Birgir Sigurjónsson, fæddur 28. maí 1951. Ólafur og Birna eignuðust þrjú börn. Þau eru Ísak, fæddur 29. maí 1994, Alvilda Ösp, fædd 26. júlí 1996, og Heiðrún Nanna, fædd 24. apríl 2002. Ólafur Helgi verður jarð- sunginn frá Akureyrarkirkju í dag, 23. nóvember 2015, klukk- an 13.30. Anna Guðrún, bú- sett á Akureyri, fædd 15. febrúar 1947, maki Bjarni Hilmir Hjaltason. 2) Hilmir, búsettur á Hauganesi, fædd- ur 9. júní 1949, maki Kristrún Júl- íana Sigurðar- dóttir. 3) Stefanía Lára, búsett á Ak- ureyri, fædd 26. júní 1952. 4) Jón Gunnlaugur, búsettur á Hauganesi, fæddur 17. desember 1956, maki Anna Sólveig Jónasdóttir. 4) Steindór Haukur, búsettur á Akureyri, fæddur 15. desember 1960, maki Soffía Guðrún Ragn- arsdóttir. 5) Trausti Þór, búsett- ur á Akureyri, fæddur 6. mars Átta ár eru langur tími, samt var Óli með sjúkdóminn í átta ár sem oft virtist heil eilífð. Áttan, talan 8,á hlið er í raun infinity – óendanleikinn. Það er svo margt sem kemur upp í huga minn á þessum tíma- mótum, þakklæti – gleði – sorg og svo ótal margt annað Þakklæti fyrir að hafa kynnst Óla mínum og öllum sem honum fylgdu. Gleði yfir þeim árum sem við áttum saman, börnum okkar og barnabörnum sem fæddust heil- brigð. Sorg yfir því að þurfa að kveðj- ast alltof fljótt. Við erum búin að reyna svo margt á síðastliðnum árum – sú lífsreynsla endist mér út ævina. Þetta hefðum við aldrei getað nema með svo ómetanlega mikl- um og góðum stuðningi frá okkar yndislegu fjölskyldu og vinum, fagteyminu sem við bjuggum til í kringum Óla Helga – ekkert okk- ar kemst ósnortið í gegnum lífið og við öll sem vorum svo heppin að kynnast honum Óla gleymum honum ekki. Þú varst minn vetrareldur. Þú varst mín hvíta lilja, bæn af mínum bænum og brot af mínum vilja. Við elskuðum hvort annað, en urðum þó að skilja. (Davíð Stefánsson.) Ástarkveðja. Þín, Birna. Eftir allan þennan tíma í erfiði og sorg ertu frelsaður, pabbi minn. Til að róa hug minn og hjarta trúi ég því að nú sért þú búinn að ná heilsu og sért eins og þú varst áð- ur. Eins og við öll viljum muna þig, sem káta, duglega manninn sem lét ekki neitt verða sér ómögulegt. Öll verkefni er hægt að leysa – já pabbi, það var greinilega þitt mottó. Þið mamma voruð dugleg að ferðast með okkur krakkana og þegar ég skoða gamlar myndir er augljóslega hægt að sjá alla þína þolinmæði gagnvart okkur. En það var ekki bara þolinmæði, held- ur einnig gleði og hamingja sem skein frá þér þegar þú brostir hlýja brosinu þínu. Svo má ekki gleyma hvað þú varst mikill grín- isti og yljaði hlátur þinn okkur öll- um um hjartarætur og ekki síst eftir að þú varðst sjúklingur. Þú varst einn af þessum baráttu- mönnum sem berjast í gegnum allt og er ótrúlegt hvað þú náðir að rífa þig upp úr miklu, þrátt fyrir þungar byrðar. Þú varst fyrir- myndarmaður og vona ég að ég hafi sagt þér nógu oft hversu stolt ég er af þér. Stolt af þér fyrir þann mann sem þú varst og verður allt- af í minningu okkar allra. Ég elska þig um alla tíð og tíma. Koss upp til þín, við sjáumst aftur seinna. Þín dóttir, Alvilda. Nú er komið að leiðarlokum. Það eru margar góðar stundir sem koma upp í huga minn þegar ég hugsa um pabba. Hann kenndi mér margt og margt sem hann átti eftir að kenna mér. Pabbi var maður sem gerði allt sjálfur og kunni allt, hann er mín fyrirmynd. Hann var svo hlýr og alltaf gott að tala við hann, aldrei nein vandamál, bara lausnir. Við munum aldrei gleyma gleði hans yfir fyrsta barnabarninu sem kom stuttu eftir að hann veiktist. Við munum passa að minning hans lifi og barnabörnin þekki afa Óla. Í veikindum pabba sá maður hvað hann var vinmargur og hvernig fjölskyldan stóð á bak við hann eins og klettur. Það er ómet- anlegt og er þakklæti efst í huga. Kristofer og fjölskylda. Óli móðurbróðir okkar hefur kvatt okkur allt of ungur, aðeins 49 ára að aldri. Sterkasta myndin sem kemur upp í hugann þegar maður hugsar um Óla frænda er hann sitjandi við eldhúsborðið á æskuheimilinu í Ásgarði, með kaffi í mjólkurglasi þar sem hann ræddi menn og málefni í hlýju eldhúsinu, alls óhræddur við að tjá sínar sterku skoðanir. Það var alltaf líf og fjör í kringum Óla enda hress og skemmtilegur húmoristi. Hann var hlýr og góður í gegn og fólki leið vel í návist hans, jafnvel litlu frænkum hans sem hann lyfti stundum upp á eyrunum enda óhemju stríðinn eins og fleiri í fjölskyldunni. Húmorinn og létta lundin hafa án efa hjálpað Óla í þeim óbæri- lega erfiðu veikindum sem hafa hrjáð hann undanfarin ár. Það er kaldranaleg andstæða við lífið og fjörið sem einkenndi Óla frænda hér áður að horfa upp á sívaxandi lömunina sem fylgir MND-sjúk- dómnum. Það er erfitt að horfa upp á svo sterkan og sjálfstæðan mann lokast inni í eigin líkama og geta ekkert að gert. Óli var hins vegar svo heppinn að eiga góða fjölskyldu og vini sem hafa annast hann með virð- ingu og væntumþykju. Hann átti líka því láni að fagna að eiga ynd- islega eiginkonu sem hefur sann- arlega staðið með honum í gegn- um súrt og sætt og hann getur verið innilega stoltur af börnun- um og barnabörnunum. Elsku Birna, Kristófer og fjöl- skylda, Ísak, Alvilda og Heiðrún Nanna, okkar innilegustu samúð- arkveðjur. Við kveðjum yndislegan frænda með sorg í hjarta en minningin um hann mun lifa með okkur. Nanna Sigrún og Jóhanna Berglind. Elsku besti Óli frændi. Þá er komið að kveðjustund, stund sem ég hefði viljað hafa mikið seinna í lífinu. Þó svo að hvíldin sé þér kærkomin eftir erfið veikindi og þú laus úr viðjum líkamans, er kveðjustundin sár. Ég hef átt svo margar ómet- anlegar stundir með þér í gegn- um árin. Stundir sem ég minnist með hlýju. Ég man eftir þér sem skemmtilegum og uppátækja- sömum ungum manni, passlega kærulausum (að móður minni, stóru systur þinni, fannst alla- vega), en svo sem ábyrgum, dug- legum og góðum föður seinna meir með allt á hreinu. Öll jólin í Ásgarði, þar sem þú og Trausti slóguð Íslandsmet í hæg-upp- vaski, bara til að pirra litlu frænku ykkar sem gat ekki beðið eftir að komast í jólapakkana. Alla leikina og allan ærslagang- inn svo að mömmu þótti stundum alveg nóg um. Veiðiferðir á trill- unni Nönnu, sem ég hélt auðvitað að héti í höfuðið á mér. Þegar þú leyfðir mér að keyra litla svarta bílinn úti á Nesi, löngu áður en bílpróf var í sjónmáli og þegar þú leyfðir mér að stinga hausnum upp um topplúguna og keyrðir svo „rosa hratt“. Allar æfinga- rakstursferðirnar í rauða bílnum mörgum árum seinna, þegar ég svo loks hafði náð bílprófsaldri. Þann heiður sem þið Birna veitt- uð mér þegar ég var skírnarvott- ur hjá yngstu dóttur ykkar, Heið- rúnu Nönnu. Þegar þú komst í heimsókn til mín á Fálkagötuna á meðan þú varst í stoppi í Reykja- víkurhöfn. Öll skiptin þegar ég kom til þín upp á sjúkrahúsið í Reykjavík. Þegar við leigðum stóra leigubílinn til að koma þér til Nönnu Sigrúnar og Helga til að horfa á eitthvert miður gott fótboltalið reyna að vinna annað mun betra (án þess að nefna nein nöfn). Það var sannkallaður heið- ur að hafa átt þig sem frænda. Elsku Birna, Kristófer og Hertha, Ísak, Alvilda Ösp, Heið- rún Nanna og barnabörn. Megi minning um yndislegan eigin- mann, föður og afa lifa. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. (Bubbi Morthens.) Þín frænka, Nanna Ýr Arnardóttir. Óli, móðurbróðir minn og vin- ur, er látinn einungis 49 ára að aldri. Við Óli vorum jafnaldrar og bundumst strax frá fyrstu árum sterkum vináttuböndum. Óli var einstakur vinur, hress og skemmtilegur og hafði sterkar skoðanir á málefnum. Óli var hamhleypa til allra verka og það var ekkert verið að tvínóna við hlutina, heldur settur undir sig hausinn og gengið í verkin af miklum eldmóði. Undanfarna daga hafa hrann- ast upp í hugann minningar og þar á meðal um allar samvistirnar með Óla á heimili hans og ömmu og afa í Ásgarði á Hauganesi og heima á Akureyri. Á Hauganesi snerist lífið um sjóinn og sem krakki sóttist ég mjög í að dvelja hjá ömmu og afa því hvað var meira spennandi en að fara á sjó- inn með Óla, veiða og vera á bryggjunni þegar bátur Sigga afa kom að landi og fylgjast með að- gerð. Við Óli unnum okkur oft inn pening við að gella í skemmunni. Eftirminnilegur er túrinn á Víði Trausta en ætli við Óli höfum ekki verið níu eða tíu ára og höfðum fengið leyfi hjá afa til fara með sem „hásetar“ ásamt hinum körl- unum. Í þessari sjóferð rann upp fyrir mér að ég væri líklega ekk- ert gríðarlegt sjómannsefni. Það var annað en móðurbróðir minn; það lá strax fyrir þá að hann myndi leggja sjómennskuna fyrir sig sem og hann gerði. Hann var með þetta í blóðinu, vissi allt um báta og aflabrögð og kunni sko að tala við karlana á bátunum. Við Óli réðumst í skipasmíðar á þessum árum. Smíðin fór fram í stofunni heima í Kambagerði en stofan var fyrstu árin ókláruð og lokuð af og því tilvalin til skipa- smíða. Þar skyldi nú smíðaður al- vöru bátur og gert út frá Hauga- nesi. Dregin var upp skissa og smíðaður kjölur og stýri og var þá bara byrðingurinn eftir. Ekki man ég hvað stoppaði verkið og aldrei lukum við smíðinni en hug- myndin var góð og býsna stórtæk í anda Óla. Einnig er minnisstætt sveita- ball í Árskógi en þangað laumuð- um við Óli okkur inn, þá helst til ungir að árum og minnir mig að það hafi verið eitthvað annað en vatn á flöskunni sem tekin var með. Óli var lánsamur þegar hann kynntist henni Birnu sinni. Óli var mikill pabbi og börnin bera þess merki, vel gerðir og yndis- legir einstaklingar og má sjá Óla í þeim öllum. Óli greindist með MND-sjúk- dóminn, þá 41 árs, og líf fjölskyld- unnar breyttist á svipstundu. Óli barðist hatramlega við þennan ólæknandi sjúkdóm í átta ár og varð þá að lúta í lægra haldi. Í veikindum Óla kom svo sannar- lega í ljós hversu einstaka mann- eskju Birna hefur að geyma en hún tókst á við erfiðleikana af miklu hugrekki og æðruleysi. Í veikindum sínum horfði Óli mikið á uppáhaldsliðið sitt Liverpool og stytti það honum stundir og var ætíð stutt í bros þegar gantast var við hann um liðið hans. Oft verður mér hugsað til þess hversu ósanngjarnt lífið getur verið og það er virkilega sárt að hugsa til þess að Óli sé ekki leng- ur meðal okkar en nú hefur hann fengið frið frá sjúkdóminum. Minningin um einstakan vin lifir um ókomin ár. Elsku Birna, Ísak, Alvilda, Heiðrún og Kristófer, mínar ein- lægustu samúðarkveðjur. Hjalti Már Bjarnason. Ólafur var dugandi eiginmað- ur, faðir og sjómaður. Hann var vinmargur og kær bróðir í frí- múrarareglunni á Akureyri. Allt- of snemma tóku veikindi hans yf- irhöndina sem síðan leiddu hann til andláts. Harmafregn í hlustum dynur, horfinn okkar góði vinur, genginn burtu guðs á fund. Harmi lostin hjörtu tifa, hlýjar minningarnar lifa, lýsa og létta sorgarstund. Tíminn mælir æviárin, enginn telur sorgartárin, æviskeið sitt enginn veit. Regluspor í vitund vaka, völdin minningarnar taka, Þökkin ríkir hrein og heit. (Hörður Zóphaníasson.) Far þú í friði, kæri vinur og bróðir. Það er okkar bræðranna einlæg ósk að hinn hæsti höfuð- smiður haldi sinni verndarhendi yfir fjölskyldu þinni og ástvinum um ókomna tíð. Ólafur Ásgeirsson Ólafur Helgi Sigurðsson ✝ Leifur ErlingNúpdal Karls- son fæddist í Reykjavík 10. apríl 1935. Hann lést 3. nóvember 2015. Foreldrar hans voru Ólafur Karl Núpdal Eiríksson, f. í Reykjavík 19. maí 1912, d. 21. mars 1941, og Bjarnfríður Þóra Sigursteinsdóttir, f. á Akranesi 3. september 1912, d. 24. mars 1980. Eiginkona Leifs var Ingibjörg Þórarinsdóttir Hafberg, f. 1938. Dóttir Leifs er Hrefna Ósk Núpdal Leifsdóttir, f. 29. nóvember 1974, maki hennar er Ró- bert Ólafur Ró- bertsson, f. 19. nóv- ember 1979. Barnabörn Leifs eru Laura Núpdal Róbertsdóttir, f. 14. janúar 1994, Eygló Núpdal Róberts- dóttir, f. 25. október 2005, Erla Núpdal Róbertsdóttir, f. 16. febrúar 2007. Útför Leifs fór fram í kyrr- þey. Elsku pabbi minn. Það er erf- itt að koma öllu í orð, sem fer um huga minn, er ég sit hér og minn- ist þín. Nú er allt svo breytt, margar minningar vakna og mik- ill söknuður fylgir. Ég er svo þakklát fyrir þann dýrmæta tíma sem við áttum saman, þú kenndir mér svo margt og ég er svo lík þér á margan hátt og ég er stolt af því. Þær voru ófáar stundirnar sem við gátum talað saman í fleiri tíma um allt og ekkert og hlegið saman, það sem hlátur þinn gladdi mig mikið, elsku pabbi minn. Allar fallegu minningarnar mínar um þig geymi ég í hjarta mínu, orð fá því ekki lýst hvað ég sakna þín mikið, þú lifir áfram í mér og barnabörnum þínum, þeim Lauru, Eygló og Erlu, og berum við allar nafn þitt, Núpdal, með stolti. En nú er komið að kveðju- stund, hjartað mitt grætur og ég bið Guð að vaka yfir þér og okkur öllum sem þig syrgjum. Hvíl þú í friði, elsku pabbi minn. Ég elska þig og kveð þig nú, þar til við hitt- umst á ný. Þín dóttir, Hrefna Núpdal. Leifur Erling Núpdal Karlsson Kveðja til þín, elsku litla syss. Sitj- um hér tvær systur að reyna að setja saman minningarorð um Eyrúnu syss. Erum með pínu rautt í glasi og Björgvin á fóninum, annað er ekki viðeigandi því hann var uppáhalds. Tárin eru ekki langt undan, þessi elska kvaddi alltof fljótt eins og Valdís okkar, sem fór fyrir tæpum tveimur árum. Eyrún greindist með krabba- mein 17. nóvember 2014 og hún er nú farin frá okkur þann 7. nóv- ember 2015. Það voru tveir menn í hennar lífi, synir hennar, þeir Davíð og Darri, sem hún var endalaust stolt af og elskaði út af lífinu. Eyrún var sannkallaður gleðigjafi og hafði skemmtilegan húmor og alltaf til í pínu sprell. Spilakvöldin eða matarboðin voru alltaf skemmtileg, hún elsk- aði góðan mat, helst kótilettur í Eyrún Anna Gunnarsdóttir ✝ Eyrún AnnaGunnarsdóttir fæddist 1960. Hún lést 7. nóvember 2015. Útför Eyrúnar fór fram 19. nóv- ember 2015. raspi með grænum baunum og tilheyr- andi, það var mikið hlegið, svo var tekið í spil og spilað fram á nótt og það skrýtna var að hún vann alltaf, enda mikil keppnismann- eskja. Það er á hreinu að það verð- ur kótilettukvöld fljótlega með litlu fjölskyldunni og Eyrún verður í heiðurssæti. Við elskum þig svo mikið, elskan. Eyrún var falleg og yndisleg í alla staði með fallega sál og vildi öllum vel, bæði mönnum og dýr- um. Elsku Eyrún okkar, takk fyrir árin okkar sem voru alltof fá, þau voru okkur ómetanleg. Jenný og Heiðdís munu halda ut- an um gullmolana þína og við systur á hliðarlínunni. Takk, elsku Baldur, fyrir að vera til, þú ert búinn að vera ómetanlegur í þessu stríði. Við vitum að Valdís hefur tekið vel á móti þér og biðjum Guð og alla englana að umvefja ykkur. Farðu í friði fallegi engill. Við sjáumst svo síðar. Ásta og Jóna. Elskulegur bróðir minn og mágur, KRISTJÁN BJÖRN HINRIK SUMARLIÐASON, sjómaður, Sólvangsvegi 3, Hafnarfirði, lést á heimili sínu hinn 18. nóvember síðastliðinn. Útför hans verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 26. nóvember kl. 13:00. . Rúrik Sumarliðason Guðlaug Björnsdóttir Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.