Morgunblaðið - 23.11.2015, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2015
Vöruhús veitingamannsins
allt á einum stað
Höfðabakka 9 | 110 Reykjavík | Sími 595 6200 | bakoisberg.is
Opið virka daga kl. 8.30-16.30
tvennt. Því eru öll kerfi bílsins tví-
skipt, það er fyrir fram- og aftur-
rými, svo sem miðstöð, útvarp og
fleira. Allt er þetta vandað og vél í
lagt enda eru stykkin flest hand-
smíðuð.
Í hægindastól
„Bílinn er afskaplega þíður í
akstri og sætin eru mjúk, rétt eins
og maður sitji í hægindastól,“ segir
Jósep sem ætlar aðeins að nota
þennan góða grip við bestu tilefni.
„Það verður gaman að taka rúntinn
í Reykjavík á Rolls Royce, til dæmis
á sumardögum eins og 17. júní eða
ef skutla þarf brúðhjónum í kirkju.
Þetta er algjör draumabíll í slíkt.“
Bandaríkjaútgáfu og því með stýrið
vinstra megin. „Þessi bíll fór til
Kaliforníu og var þar, samkvæmt
mínum upplýsingum, lengi í eigu
sama mannsins sem geymdi gripinn
úti í skúr árum saman. Slíkt fer auð-
vitað aldrei vel með bíla og því eru
einstaka hlutir orðnir svolítið stirðir
eða hrokknir úr sambandi. Það er
hins vegar allt minniháttar og verð-
ur auðvelt að laga,“ segir Jósef.
Hinn glæsilegi Reykjavíkur-
Royce er með 221 hestafla vél sem
er átta cl. Heildarþyngdin er 2,8
tonn og þetta telst vera lengri út-
gáfan af þessum eðalbílum. Milli
fram- og aftursæta er hægt að
draga upp gler sem skiptir bílnum í
VIÐTAL
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Rolls Royce er samkvæmt ímynd-
inni bíll fyrir tigið fólk. Það er auð-
velt að framkalla í huganum mynd
þar sem hefðarfrú situr í aftursæti
en undir stýri er karl í útiformi með
derhúfu. Þetta er eins og í breskum
sjónvarpsþætti af betri gerðinni,“
segir Jósef Kristjánsson bílaþvotta-
meistari sem rekur bílbónstöðina
Hjá Jobba við Skeifuna í Reykjavík.
Alveg í toppstandi
Bílar eru hálft líf Jósefs og sá
draumur bjó alltaf í brjósti hans að
eignast Rolls Royce. Þegar slíkur
bauðst til sölu nú nýlega sló hann
auðvitað til. Hinn glæsilegi Royce,
sem er árgerð 1971, var fluttur til
landsins árið 2013 og er Jósef þriðji
eigandi hans síðan þá.
„Ég hef nú lítið ekið bílnum til
þessa. Það hefur verið algjör til-
viljun að þú sást til mín á Miklu-
brautinni,“ segir Jósef. „Ég hef
sennilega ekki ekið lengra en 50
kílómetra síðan ég fékk gripinn fyr-
ir um mánuði. Raunar er þessi
vagn alveg sáralítið ekinn
miðað við að vera orðinn 44
ára gamall eða aðeins um
50.000 kílómetra. Hann er
því alveg í toppstandi.“
Bíllinn góði var smíðaður í verk-
smiðjum Royce í Englandi, en var í
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eðalbíll Jósef Kristjánsson við Rollsinn góða sem hann hyggst aðeins nota á tyllidögum, eins og 17. júní.
Rúntar á Rolls Royce
á götunum í Reykjavík
Bíll af bestu gerðinni Þíður í akstri og sætin eru mjúk
Þingvallanefnd hefur samþykkt
teikningar frá arkitektum Glámu
Kím að stækkun gestastofunnar á
Hakinu við Almannagjá á Þingvöll-
um. Byggingin verður stækkuð úr
200 fermetrum í 1.000 og verður öll
aðstaða til kynningar og fræðslu-
starfs mun betri
en verið hefur.
Viðbyggingin
mun snúa til
norðurs frá hús-
inu sem fyrir er,
en verður í mjög
svipuðum stíl,
það er ein hæð
og í stíl sem bæði
í lögun og lit fell-
ur vel inn í nátt-
úru staðarins.
Starfsmenn Landslags ehf. sjá um
mótun næsta umhverfis, en þessu
verkefni mun fylgja nokkurt umrót.
„Við vonum að framkvæmdir geti
hafist fljótlega á næsta ári og verði
lokið í apríl 2017,“ segir Ólafur Örn
Haraldsson, þjóðgarðsvörður á
Þingvöllum, í samtali við Morgun-
blaðið.
Rúmgóður salur verður í bygg-
ingunni nýju og þar verður hægt að
bregða myndefni á skjái. Einnig
verður á staðnum hægt að kynna
sér fjölmargt er tengist sögu Þing-
valla, meðal annars á gagnvirkri
sýningu og með lifandi framsetn-
ingu. Núverandi gestastofu verður
breytt og þar útbúið kaffihús.
Framkvæmdasýsla ríkisins mun
hafa umsjón með verkefni þessu og
bjóða framkvæmdir út til verktaka.
Ljóst er að kostnaður hleypur á
háum tölum, að sögn Ólafs, sem
bætir við að víða verði leitað hug-
mynda svo aðstaðan í gestastofunni
verði sem best.
„Við teljum að núverandi aðstaða
sé alveg sprungin. Á þessu ári
verða Þingvallagestir um ein millj-
ón og þess vegna, meðal annars,
teljum við að framkvæmdin sé
nauðsynleg. Hér þarf að vera hægt
að taka á móti fólki af myndug-
leik,“ segir Ólafur Örn.
Hann bætir við að vegna mikillar
fjölgunar ferðamanna á staðnum
þurfi að ráðast í ýmsar fleiri fram-
kvæmdir, svo sem stækkun bíla-
stæða á Hakinu og víðar, bæta þurfi
salernisaðstöðu á nokkrum stöðum
og svo megi áfram telja. Þá þurfi
einnig að draga úr álagi og umferð
í þinghelginni svonefndu, enda er
náttúra þar viðkvæm og sögulegar
minjar nánast í hverju skrefi.
sbs@mbl.is
Gestastofa á Haki
verður stækkuð
1.000 fermetrar Nauðsynlegt verk
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Þingvellir Gestastofan sem nú verð-
ur stækkuð var byggð fyrir áratug. Ólafur Örn
Haraldsson
Benedikt Bóas
Kjartan Kjartansson
Ekki er sjálfgefið að álverið í
Straumsvík opni aftur verði því lok-
að við verkfall starfsmanna sem á að
hefjast 2. desember, að sögn tals-
manns álversins. Verði sú raunin er
fyrirtækið að nota starfsfólk og
verkalýðfélög að blóraböggli fyrir
lokuninni, að sögn Gylfa Ingvars-
sonar, talsmanns starfsmanna ál-
versins. Ef af verkfalli verður munu
starfsmenn hjálpa til við að loka því
til að lágmarka tjón í tvær vikur.
Næsti fundur í deilunni verður á
morgun en fram að þessu hafa samn-
ingaviðræður strandað á kröfu fyr-
irtækisins um auknar heimildir til að
bjóða út verk til þjónustufyrirtækja í
mötuneyti, þvottahúsi, hliðvörslu, og
starfsemi á höfninni.
Ef slökkt verður á 480 kerum ál-
versins segir Ólafur Teitur Guðna-
son, talsmaður Rio Tinto Alcan á Ís-
landi, að það sé meiriháttar mál að
kveikja aftur á þeim. Ekki sé sjálf-
gefið að kveikt verði á þeim yfirhöfuð
aftur. „Okkar verkefni er að reyna að
koma í veg fyrir þetta og að reyna að
ná samningum,“ segir hann.
Ábyrgðin er mikil
Jón Gunnarsson, formaður at-
vinnuveganefndar, segir að hann
hafi miklar áhyggjur af deilunni og
neitar að trúa öðru en hún leysist.
„Ég vil ekki trúa öðru en að menn nái
saman og ekki komi til þess að þurfa
að slökkva á álverinu, það hefur gríð-
arlega víðtæk áhrif,“ segir Jón.
Um 1.500 manns gætu misst vinn-
una yrði skellt í lás í Straumsvík en
450 manns vinna í álverinu og um
þúsund manns tengjast starfsemi
fyrirtækisins með einum og öðrum
hætti. „Ábyrgð samningsaðila í
þessu máli er mikil. Það er mikilvægt
að menn nái saman þannig að þarna
geti haldið áfram blómleg starfsemi.
Það er mikill fjöldi starfa á þessu
svæði og fyrirtækja sem byggja af-
komu sína á þessari starfsemi. Hafn-
arfjörður á mikið undir og ég hvet
menn til að reyna sitt ýtrasta,“ segir
Jón Gunnarsson.
Raunveruleg hætta á lokun álversins
Lokun álversins Rio Tinto Alcan í Straumsvík hefði víðtæk áhrif 1.500 störf gætu verið í húfi
Starfsmenn hjálpa til við lokun á verkfallstíma „Meiriháttar mál“ að kveikja á 480 kerum aftur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Straumsvík Verkfall mun hefjast
2. desember náist ekki samningar.
Samkvæmt upplýsingum frá Samgöngustofu eru 11 Rolls Royce skráðir á
Íslandi. Hins vegar eru fáir þeirra, að sögn fróðra manna, í umferð. Fyrir
vikið reka vegfarendur auðvitað upp stór
augu þegar lystikerrur þessar sjást úti á
götunum. Forðum daga var raunar
sagt að svo dýrir væru þeir að
ómögulegt væri að slíkir myndu
nokkru sinni verða hér á landi. En
tímarnir breytast og mennirnir með og
stundum sést á Íslandi bregða fyrir bíl-
um sem eru enn meira fágæti en sá sem hér er gerður að
frásagnarefni.
Aðeins 11 bílar skráðir
ROLLS ROYCE FÁGÆTIR HÉR Á LANDI