Morgunblaðið - 23.11.2015, Síða 9

Morgunblaðið - 23.11.2015, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2015 Mokkajakkar Skinnkragar Tryggvagötu 18 - 552 0160 Farþegaspá 2016 Á fljúgandi ferð Morgunfundur Isavia um farþegaspá Keflavíkurflugvallar og framkvæmdir 2016 verður haldinn í Þingsölum á Hotel Reykjavik Natura miðvikudaginn 25. nóvember kl. 8.30–10.00. Dagskrá: Farþegaspá Keflavíkurflugvallar 2016 —Grétar Már Garðarsson, verkefnastjóri á viðskiptaþróunarsviði Isavia Uppbygging og framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli —Guðmundur Daði Rúnarsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar Vaxandi fjöldi – áskoranir og tækifæri —Grímur Sæmundsen, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar Húsið opnað kl. 8.15. Boðið verður upp á kaffi og léttanmorgunverð. Nánari upplýsingar og skráning áwww.isavia.is/morgunfundur rúmlega 32 milljörðum kr. til Nor- egs. „Á síðustu tveimur árum erum við í fyrsta skipti í sögu þjóðanna að sjá bein samskipti allan ársins hring í samgöngum og flutningum,“ segir Kristín og bætir við að Finnar hafi þekkingu og reynslu í viðskiptum í austurátt og Íslendingar í vestur. Löndin tvö gætu lært mikið hvort af öðru með því að miðla reynslu sinni og þekkingu af ólíku umhverfi. Rúmlega 40 Íslendingar á Slush Rúmlega 40 íslenskir þátttak- endur skipuðu íslensku sendinefnd- ina sem tók þátt í ráðstefnunni og komu þeir úr röðum 17 íslenskra ný- Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Samvinna á sviði nýsköpunar er meiri hjá Norðurlandaþjóðunum en annars staðar að mati Ericu Swall- ow, blaðamanns Huffington Post, en í frásögn sinni frá nýsköpunar- og sprotaráðstefnunni Slush, sem hald- in var í Helsinki fyrr í mánuðinum, hvetur hún Bandaríkin til að horfa til milliríkjasamstarfs Norðurlandanna sem og samstarfs fyrirtækja í spro- taumhverfinu innan hvers lands. Áætlað er að um 15 þúsund manns hafi sótt ráðstefnuna í Finnlandi sem haldin var dagana 9. og 10. nóv- ember sl. en meðal viðburða var heimboð Kristínar A. Árnadóttur, sendiherra Íslands í Helsinki, þar sem hún og Lenita Toivakka, utan- ríkisviðskiptaráðherra Finnlands, ræddu um mikilvægi þess að styrkja tengsl landanna á sviði nýsköpunar. Vantar fjórða fótinn á fílinn Aðspurð um viðskiptasamband Ís- lands og Finnlands í samhengi við aðrar Norðurlandaþjóðir segir Kristín að líta megi á viðskipti Ís- lands við hinar þjóðirnar sem fíl sem standi þremur styrkum fótum, en á fílinn vanti fjórða fótinn, sem er Finnland. Árið 2012 nam útflutn- ingur til Finnlands 1,5 milljörðum kr. á sama tíma og útflutningur til Svíþjóðar nam 3 milljörðum kr., 16,5 milljörðum kr. til Danmerkur og sköpunarfyrirtækja sem þykja framúrskarandi á sínu sviði; Klaki Innovit, Háskólanum í Reykjavík, Íslandsstofu, Samtökum atvinnulífs- ins og Samtökum iðnaðarins. Kristín A. Árnadóttir sendiherra segir ráðstefnuna hafa tekist mjög vel, og þá ekki síst hliðarviðburði hennar sem sendiráðið skipulagði í samvinnnu við Klak Innovit og fleiri með það að markmiði að kynna finnska sprotaumhverfið fyrir ís- lensku sendinefndinni og tengja frumkvöðlana við mögulega fjár- festa og samstarfsaðila en Slush er eins konar markaðstorg fyrir ný- sköpun af ýmsum toga að sögn Kristínar. Gott samstarf Norður- landaþjóða í nýsköpun  Hópur Íslendinga sótti Slush-ráðstefnuna í Finnlandi Ljósmynd/Sendiráð Íslands í Helsinki Íslenska sendinefndin Rúmlega 40 Íslendingar sóttu Slush-ráðstefnuna í Finnlandi. Sóttu þeir m.a. fyrirlestur hjá forsvarsmönnum Aalto-háskólans. Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Um fjórir mánuðir eru nú liðnir frá því að eigendur veitingastaðarins NAM við Laugaveg 18b í Reykjavík neyddust til að slá opnun staðarins á frest sökum ákveðins skilyrðis í rekstrarleyfi rýmisins, en það kveð- ur á um að ekki megi sjást í innrétt- ingar vegna veitingastarfsemi frá framhlið hússins. Skilyrði þetta er tilkomið vegna ákvæða í aðalskipu- lagi Reykjavíkurborgar 2010-2030, en samkvæmt því má veitingarekst- ur ekki fara yfir 30% hlutfall rýma á miðborgarsvæði. „Við vorum í raun búnir að klára staðinn og byrjaðir að raða mat inn í kæla þegar þetta mál kom upp,“ seg- ir Emil Helgi Lárusson, annar eig- enda veitingastaðarins, og bendir á að við hafi tekið fjölmargir árangurs- lausir fundir við fulltrúa Reykjavík- urborgar vegna þessa máls. „Á miðvikudag samþykkti borgin svo loksins teikningu og höfum við nú hafist handa við að breyta staðn- um og munum svo að líkindum opna fyrir viðskipti um næstu mánaða- mót,“ segir Emil Helgi og heldur áfram: „Lendingin í þessu máli er sú að við eigum að fara innst inn í rýmið og sjást helst ekki neitt.“ Framar í þessu sama rými verður hins vegar að finna verslun og ferða- skrifstofu og munu eigendur þeirrar starfsemi haga sinni hönnun á þann veg að gott aðgengi sé að veitinga- staðnum að sögn Emils Helga. „Þetta er engin óskastaða fyrir okkur en það er þó betra fyrir rekst- urinn að hafa staðinn opinn en lok- aðan,“ segir hann. Morgunblaðið/Styrmir Kári Laugavegur Veitingastaðurinn NAM má ekki líta út eins og veitingastaður. Gert að fela reksturinn  Ekki má sjást í innréttingar að utan Opinn fundur Öryrkjabandalags Ís- lands sl. laugardag skorar á þing- menn að hafa áhrif á fjárlagagerð ríkisins fyrir árið 2016 með því að hækka lífeyri almannatrygginga afturvirkt um sömu krónutölu og lægstu laun hækkuðu 1. maí sl. og hækka lífeyri almannatrygginga um 15 þúsund kr. frá 1. maí 2016 samhliða hækkun lágmarkslauna. Þetta kemur fram í frétta- tilkynningu sem samtökin sendu frá sér en þar segir jafnframt að á fundinum hafi ný könnun Gallup verið kynnt þar sem spurt var hvort fólk gæti lifað af 172 þúsund kr. á mánuði. Ríflega 90 prósent svarenda svöruðu neitandi og töldu 95 prósent svarenda að lífeyr- isþegar ættu að fá jafnháa eða hærri krónutöluhækkun en lægstu launþegar. Í tilkynningu ÖBÍ kemur fram að 2014 hafi mánaðarlegar ráðstöf- unartekjur örorkulífeyrisþega í sambúð verið 172 þúsund krónur. Skora á þingmenn að hækka örorkulífeyri - með morgunkaffinu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.