Morgunblaðið - 23.11.2015, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2015
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is
Landsins mesta
úrval af trommum
í öllum verð�lokkum.
Hjá okkur færðu
faglega þjónustu,
byggða á þekkingu
og áratuga reynslu.
Fallegar gjafir
á góðu verði
Safnbúð ÞjóðminjasafnsinsHandklæði frá Svartfugli.Stórt 4995 kr.
Miðstærð 2995 kr.
Lítið 1495 kr.
Óróar frá Laufabrauðssetrinu
Verð 995 kr. – 1295 kr.
Minnisbók 3.250 kr.
Safnbúðin
sett frá Isafold
Art and Design.
Hnífapör 3.500 kr.
Diskur og bolli 6.500 kr.
Dimmalimm matar-
Eftirgerðir af munum frá Skriðu-
klaustri, unnir af Inga í Sign.
Lykill 17.900 kr.
Hnappur 13.900 kr.
Hrafnar frá Flóka og Co.
Stærri: 10.000 kr.
Minni 8.800 kr.
Sérpakkað rjómasúkkulaði
með hnetum og rúsínum 695 kr.
Safnbúðin Jólatré 19.900 kr.
Jólapóstkort frá Þjóðminjasafni,
margar gerðir 150 kr.
Jólalínan 2015
frá Heklu
Kerti 1.995 kr.
Servíettur 995 kr.
Eldspýtustokkur 695 kr.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Aðstæður á Vestfjarðamiðum
krefjast þess að við séum með öfl-
ugan bát sem fer vel með mann-
skapinn,“ segir Sigurður Viggós-
son, framkvæmdastjóri Odda hf. á
Patreksfirði. Fyrirtækið fékk nú
um helgina bátinn Haukaberg SH.
Sá var lengst í eigu Hjálmars ehf. í
Grundarfirði, en seldur Loðnu-
vinnslunni á Fáskrúðsfirði fyrr á
þessu ári. Það fyrirtæki leysti til
sín aflaheimildir og seldi bátinn
síðan áfram án þeirra.
Góð kaup á alla mælikvarða
Haukaberg er 190 brúttótonna
stálbátur sem smíðaður var árið
1974 en hefur síðan þá verið end-
urbyggður alveg frá kili. Oddi hf. á
tvo báta, Núp BA og Brimnes BA,
og verður þeim síðarnefnda skipt
út fyrir Haukabergið.
„Gamla Brimnesið er 80 brúttó-
tonn og fer nú á söluskrá. Þess í
stað fáum við nú burðugri bát sem
gefur okkur tækifæri til að efla
starfsemina, auka við okkur kvóta
og svo framvegis,“ útskýrir Sigurð-
ur sem segir kaupin á bátnum vera
góð og hagfelld á alla mælikvarða.
Skipstjóri á Haukabergi verður
Þorsteinn Ólafsson, stýrimaður er
Óskar Gíslason og yfirvélstjóri
Magnús Áskelsson. Nokkrar vikur
líða uns báturinn fer á veiðar en
áður þarf að koma ýmsum búnaði
fyrir um borð, svo sem beitinga-
vélum.
Í aðalhlutverki
Oddi hf., þar sem starfa um 70
manns, er í aðalhlutverki í atvinnu-
lífi á Patreksfirði. Í vinnsluhúsi fé-
lagsins eru unnin um 4.200 tonn af
fiski á ári, að stórum hluta þorskur
og ýsa. Eru afurðirnar að verulegu
marki ferskfiskur sem er fluttur
með daglegu flugi til kaupenda,
bæði í Evrópu og vestanhafs.
Öflugur bátur
sem fer vel með
mannskapinn
Oddi hf. á Patreksfirði kaupir
Haukaberg SH Starfsemin efld
Heimahöfn Haukaberg er 190 brt.
stálbátur sem var smíðaður 1974
Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson
Ánægjustund Sigurður Viggósson, framkvæmdastjóri Odda, Skjöldur
Pálmason rekstrarstjóri og Þorsteinn Ólafsson, skipstjóri á Haukaberginu.
Mikið var hlegið í útgáfuteiti sem
haldið var í Einarsstofu í Safnahús-
inu í Vestmannaeyjum í gær þar sem
bókinni Hrekkjalómar, prakkarastrik
og púðurkerlingar
var fagnað. Bókin
fjallar um
Hrekkjalóma-
félagið sem starf-
að hefur í Vest-
mannaeyjum í
yfir 20 ár og var
eðlilega góð
stemning enda
sögurnar af fé-
lagsmönnum eins
og í góðri lyga-
sögu þótt þær séu allar sannar.
Ásmundur Friðriksson, alþing-
ismaður og höfundur bókarinnar,
skemmti gestum með sögum og þá
söng barnabarn hans, Andri Páll
Guðmundsson, einsöng og Báran
skvett tók lagið og kætti gesti.
Ásmundur afhenti svo safnahús-
inu mörg myndaalbúm með mynd-
um úr sögu félagsins og skrautrit-
aða fundargerðabók sem Georg
heitinn Kristjánsson, fyrrverandi
forseti bæjarstjórnar, hélt. Guðjón
Hjörleifsson, hrekkjalómur og
fyrrverandi alþingismaður og bæj-
arstjóri, tók einnig til máls og var
mikið hlegið og góður rómur gerð-
ur að bókinni sem og félagsskapn-
um.
Hrekkjalómabók fagnað
Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson
Hlegið Hrekkjalómastemning eins og hún gerist best var í Safnahúsinu í
Vestmannaeyjum í gær og mikið hlegið. Hrekkirnir hreinlega lágu í loftinu.
Húsfyllir og
hlátrasköll á út-
gáfuhátíð í Eyjum
Ásmundur
Friðriksson