Víkurfréttir - 28.08.1986, Blaðsíða 9
VfKUR-fréttir
Fimmtudagur 28. ágúst 1986 9
Rósa Guðna snyrtifræðingur Jón G. Briem, lögfræðingur og
ásamt unnusta sínum. Asbjörn Jónsson ásamt eiginkonum
uppstillt í nýja plássinu.
ÚTSALA
Rýmingar-
sala
á morgun, föstudag og laugar-
dag vegna breytinga.
30-50% afsláttur
DUUS-HÚSGÖGN
Hafnargötu 90 - Sími 2009
Séð niður innganginn í nýja versfunarhúsnæði Skóbúðarinnar.
Glæsilegt verslunarhúsnæði vígt
á 40 ára afmæli Skóbúðarinnar
Glæsilegt verslunarhús-
næði að Hafnargötu 35 í
Keflavík var formlega vígt
sl. laugardag. Það er í eigu
þeirra Erlu Sigurbergsdótt-
ur og Jóns Þorsteinssonar
sem eru eigendur Skóbúð-
arinnar í Keflavík.
Nýja húsnæðið sem er á
tveim hæðum hefur aðeins
verið í byggingu í u.þ.b. eitt
ár. Það er nýtískulegt og
skemmtilega „útfært“ ef
svo má segja eins og bæjar-
búar hafa séð sem þangað
hafa komið. I húsnæðinu
hafa 7 fyrirtæki aðsetur:
Skóbúðin í Keflavík,
Lítt’inn hjá Óla, Hár-
greiðslustofan Lilja Braga,
Lögfræðiskrifstofa Jóns G.
Briem, Snyrti- og nudd-
stofa Rósu Guðna og loks
Tannréttingastofa sem
bráðlega opnar þarna.
Arkitekt að húsinu var
Guðmundur Gunnarsson
en aðal byggingarverktaki
var Húsanes.
Skóbúðin í Keflavík er
með elstu verslunum í
Keflavík. Hún hóf rekstur
árið 1945, eða fyrir rúmum
40 árum. Núverandi eig-
endur hafa rekið hana sl. 25
ár og má því með sanni
segja að þetta hafi verið
gleðileg tímamót hjá þeim
Jóni og Erlu.
Meðfylgjandi myndir
voru teknar á reisugildinu
sl. laugardag en þá heim-
sótti fjöldi manns þau hjón
til að samfagna þeim við
þetta tækifæri. -pket.
FYRIRTÆKI
TIL SÖLU
Til leigu er byggingafyrirtæki á Suður-
nesjum. Fyrirtækið sem er í fullum rekstri
er með stórt verkstæði (300 ferm.) búið
nýlegum tækjum. Steypumót gætu fylgt.
Nánari upplýsingar veittar í síma 92:2974
milli kl.20.00-22.00 virka dagatil 3.sept. n.k.
_____VEITINGAHÚSIN_
GLAUMBERG
og SJÁVARGULLIÐ
ATVINNA í BOÐI
1. FJÁRMÁLASTJÓRI:
I starfinu felst fjármálastjórn og yfir
stjórn með öllu skrifstofuhaldi.
Reynsla og þekking áskilin. Meðallar
umsóknir verður farið sem trúnaðar-
mál.
2. SKRIFSTOFUSTARF:
í starfinu felst öll almenn skrifstofu-
vinna, launaútreikningur o.fl. Vinnu-
tími frá kl. 8-12, virka daga. Starfs-
reynsla áskilin. í framtíðinni gæti
orðið um heilsdags starf að ræða.
Með allar umsóknir verður farið sem
trúnaðarmál.
Umsóknir ásamt upplýsingum sem
umsækjendur telja nauðsynlegt að
fram komi sendist Veitingahúsinu
Glaumbergi, Vesturbraut 17, pósthólf
128, 230 Keflavík, fyrir 5. september.
Hjónin Erla Sigurbergsdóttir og Jón Þorsteinsson, eigendur Skó-
búðarinnar. Með þeim á myndinni er Bryndís dóttir þeirra.
J