Víkurfréttir - 08.01.1987, Qupperneq 6
6 Fimmtudagur 8. janúar 1987
VÍKUR-fréttir
orövar-
Skíðaferðir - Bláfjöll
í janúar og febrúar
Laugardaga og sunnudaga kl. 10.30 frá
Keflavík. Farið frá Sparkaup og íþrótta-
húsinu í Keflavík.
Ferðir frá Grindavík, Sandgerði og Garði
laugardaga kl. 10, ef panta fimm eðafleiri.
Pantanir í síma 4444 fyrir kl. 9.30 laugar-
dagsmorgun.
Lesið inn á símsvarann kl. 8.30 alla daga,
sími 1111.
STEINDÓR
SIGURÐSSON
Ferðaþjónusta Sufíumesja
Iðnaðarhúsnæði
óskast
Óska eftir 200-300 ferm. iðnaðarhúsnæði
til leigu. Lágmarkslofthæð 4 metrar. Upp-
lýsingar gefur Hannes Ragnarsson í síma
4344.
Skynsöm og óspillt
láglaunastétt
Ekki er það séríslenskt
fyrirbæri að fólk bregði sér
úr landi í verslunarerind-
um. Sú viðleitni manna, að
fá sem mest fyrir aurana
sína viðgengst í öllum lönd-
um heims. Viðast hvar er
þetta ekki meira mál en að
skreppa upp á Akranes eða
austur fyrir fjall, tekur
kannski hálfan eða heilan
dag, og kostar sáralítið.
Hér á íslandi gegnir allt
öðru máli. Það er ntikið og
dýrt ferðalag, sem aust-
firðingar og norðlendingar
leggja i tii næsta kaupstað-
ar erlendis, alla leið til
Glasgow. Venjulegt fólk fer
ekki í slíka innkaupatúra
nema örsjaldan á ævinni, og
kannski er það ástæðan
fyrir því að það er sérstak-
ur stíll yfir landanum þessa
3 daga sem búðarrápið
stendur. Þar gílda nefni-
lega lögmálin: Því meira
sem þú eyðir, því meiri er
ÍBÚÐIR FYRIR
UNGA FÓLKIÐ
AÐ BREKKUSTlG 33 í NJARÐVÍK
Aðeins tvær íbúðir óseldar:
Ein 2ja herb. íbúð 70 m2 ....... kr. 1.700 þús.
Ein 3ja herb. íbúð 86 m2 ....... kr. 1.900 þús.
ATH.: Allar íbúðir
Dæmi um hugsanleg
greiðslukjör:
2ja herb. íbúð 70 m2
Við undirritun kaupsamn. 200 þús.
Með húsnæðisláni ... 1.350 þús.
Með mánaðarl. greiðslum
á 12 mán. (12.500) .. 150 þús.
Samtals 1.700 þús.
með sér þvottahúsi.
Dæmi um hugsanleg
greiðslukjön
3ja herb. íbúð 90 m2
Við undirritun kaupsamn. 200 þús.
Með húnæðisláni .... 1.350 þús.
Með mánaðarl. greiðslum
á 17 mán (20.588) ... 350 þús.
Samtals 1.900.000
BYGGINGARAÐILI:
Hilmar Hafsteinsson
Sími 1303
SÖLUAÐILI:
Fasteignasalan
Hafnargötu 27 - Sími 1420
gróðlnn, og því meira sem
þú drekkur, því betri eru
áhrifin. Skotar skilja
manna best drykkjulögmál-
ið, en kaupæðið er núorðið
óskiljanlegt, þess vegna
taka þeir við aurunum og
krítarkortunum svo til
möglunarlaust.
Eitthvað er nú bogið við
verðlagningu á Islandi, ef
100 þúsund kr. verðmæti
fást fvrir 20 þúsund kr. er-
lendis, sama er hvort keypt-
ur er fatnaður, bilar eða
brennivín. Enn furðulegra
er, að ferðamaður fær refja-
laust gjaldeyri fyrir 80 þús-
und kr., en má ekki, strangt
til tekið, koma heim með
meiri verðmæti en sem
nemur 7 þúsund kr.
Tollverðir eru upp til
liópa skynsöm og óspillt
láglaunastétt, sem lítur
óhýru auga verslunareig-
endur, sem koma mánaðar-
lega í gegnum tollinn með
10-15 ferðatöskur. Aftur á
móti skilja þeir vel fátækt
barnafólk, sem hefur það
framtak annað hvert ár, að
fimmfalda kaupmátt
barnalifeyrisins. Þeir arg-
ast því ekki í fólki sem
kemur slituppgefið með 2-3
ferðatöskur, þó vita þeir að
lagalega séð er það 2-3
töskum of mikið. Og hver
láir tollverði að líta á það
sem efnahagsbrot og
óráðsíu, að fara til útlanda
með alla vasa útíroðna af
peningum og eyða þeim
öllum í sukk og svinarí?
Kaupa kannski ekkert
annað en fötin sem þeir
standa í við heimkomuna,
kassa af bjór og brennivíns-
fiösku í Frihöfninni, til að
slá á timburmennina. Sam-
kvæmt tollalöggjöfinni eru
þetta einu farþegarnir, sem
koma með löglega mikinn
varning með sér inn í
landið. Sem sagt löglegir en
siðlausir ferðamenn. Eða er
það tollalöggjöfin, sem er
svo siðlaus, að hún geriri
venjulega íslenska ferða-
menn upp til hópa að
afbrotalýð, ef tollverðir
liefðu ekki vit fyrir löggjaf-
annm.
ORÐVAR
:getraunir:
„Árið skilaði vel af sér“
„Þetta ár skilaði vel af sér, rúmlega þrjú hundruð
þúsundum. Eg er mjög ánægður með það“, segir næsti
spekingur okkar, Halldór Rúnar Þorkelsson, starfsmaður
hjá Brynjólfi hf. í Njarðvík. Halldór er einn af
svokölluðum „atvinnu-tippurum" á Suðurnesjum, tekur
þetta alvarlega, enda árangurinn eftir því.
„Eg fékk tvo stóra vinninga á sl. ári, 72 þús. í október og
231 þús. á annan í jólum, bæði skiptin fyrir 11 rétta, síðan
slatta af smávinningum. Eg er með fast kerfi, 9 gula seðla á
viku, kerfi sem ég bý til sjálfur. Maður pælir mikið í þessu,
er með fullan skáp af bókum um þetta og svo hef ég búið til
mikið af kerfum og margir hafa fengið þau lánuð hjá mér.
Dellukarl? Já, það er óhætt að segja það. Ég hef mikinn
áhuga á ensku knattspyrnunni og mitt uppáhaldslið er
Derby County. Það er núna við toppinni2. deild. Égbyrj-
aði að halda með þeim þegar Bryan Cough var við stjórn-
völinn, sá frægi kappi, þannig að ég hef taugar með karli
og hans liði núna, Nottingham Forest“, sagði Halldór
Rúnar Þorkelsson, sem hélt uppteknum hætti í 1. leikviku
á þessu ári, - var með 10 rétta. Já, þeir geta það þessir
atvinnumenn.
Heildarspá Halldórs:
Aston Villa - Chelsea .... 1
C. Palace - Nott’m Forest 2
Everton - Southampton . . 1
Grimsby - Stoke ........ 1
Ipswich - Birmingham .. X
Man. Utd. - Man. City .. X
Portsmouth - Blackburn . 1
Q.P.R. - Leicester ..... X
Reading - Arsenal ...... 1
Sheff. Wed. - Derby .... 1
Shrewsbury - Hull...... X
Wimbledon - Sunderland . 2
Rúnar með fjóra rétta
Síðasti spekingur okkar, Rúnar Georgsson, var með 4
rétta. Það urðu hræringar á toppnum síðustu vikurnar á
liðnu ári. Olafur Thordersen skaust í efsta sætið með 8
rétta, á eftir koma þeir Sigurður J. Sigurðsson, Indriði Jó-
hannsson og Ævar Már Finnsson, allir með 7 rétta.