Víkurfréttir - 01.10.1987, Qupperneq 1
LfiNDSBöKftSPlFI'
HVERFISGöTU
101 REYKJfiVl
I
Alvarlegt ástand í frystihúsunum:
„Vil konur
varnarliðs-
manna
I vinnu“
- „Ástandið voðalegt“, segir Júlíus
Rafnsson, fiskverkandi í Njarðvík
„Okkur hefur gengið
ákaflega erfiðlega að fá fólk
til starfa, ástandið er aldeil-
is voðalegt og við stöndum
ekki undir því til lengdar",
sagði Júlíus Rafnsson hjá
frystihúsi R.A. Pétursson í
Njarðvík. Frystihúsið er eitt
vélvæddasta frystihús lands-
ins og sagði Júlíus að það
kallaði á ákveðinn fjölda af
fólki, ef það fengist ekki þá
væri ekki hægt að halda
starfseminni áfram.
„Ég veit að þannig er
ástatt hjá fleiri fiskverkend-
um og mér er kunnugt um
annað fyrirtæki hér í
Njarðvík sem starfar aðeins
með 20% afköstum. Fólk
hefur ekki skilað sér úr
sumarleyfum og þegar
skólafólkið hætti um síð-
ustu mánaðamót hefur hús-
ið verið hálf tómt og nú eru
aðeins þrjár konur starf-
andi hjá mér eftir hádegi.
Júlíus Kafnsson í mannlausum vinnslusalnum. I Ijá honurn liefur vélvæðingin hafið innreið sína, sem
kallar á lágmarks vinnuafl. Eftir hádegi hefur hann aðeins þrjár konur í vinnu. Ljósm.: bb.
Við greiðum síst verri laun
til kvenna en þær fá á Kefla-
víkurflugvelli, en af ein-
hverjum ástæðum kjósa
jrær heldur að vinna á vell-
inunT'.
Júlíus sagði að hugmynd-
ir hefðu verið um að snúa
þessu dæmi við og fá konur
hermanna til að starfa við
fiskvinnsluna. Samkvæmt
upplýsingum sent við höf-
unt frá atvinnumiðlun á
Keflavíkurflugvelli er meiri
eftirspurn eftir vinnu hjá
þessum konum en hægt er
að anna, og því datt ntér í
hug að bjóða þessunt kon-
um vinnu við fiskvinnsl-
una“.
Hjá R.A. Péturssyni er
fiskinum vakum-pakkað í
340göskjuroghefurfrysti- I
húsið ekki haft undan. I
Framleiðslan fer bæði á I
markað innanlands og I
erlendis. Nú er búið að I
hanna nýtt útlit á öskjurn- |
ar og sagði Júlíus að það |
gæti haft aivarlegar afleið- |
ingar ef ekki yrði hægt að |
halda markaðinum gang- |
andi. |
Örn KE fékk
verðlaunin
Örn KE 13 var fyrsta ís-
lenska loðnuveiðiskipið sem
kom með loðnu að landi á ný-
hafinni loðnuvertíð. Kom
hann með 700 tonn til
Krossaness á miðvikudag í
síðustu viku.
Fyrir þetta fékk hann sér-
stök verðlaun sem falla átti í
hlut þess báts sem kæmi með
fyrstu loðnuna til verksmiðj-
unnar. Um var að ræða mun
meira verð á hvert tonn en
annars verður greitt.
Erill hjá
lögreglu
Mikill erill var hjá lögregl-
unni í Keflavík, Njarðvík og
Gullbringusýslu um síðustu
helgi, að sögn Karls Her-
mannssonar, aðstoðaryfirlög-
regluþjóns. Var ölvun mikil
sem sýndi sig best með því að
5 ökumenn voru teknir, grun-
aðir um ölvun við akstur.
Þá var nokkuð um
skemmdarverk, þar sem ölv-
aðir aðilar virðast hafa fengið
útrás með því að ráðast á
dauða hluti og þurfti lögregl-
an að hafa afskipti af fjórum
slíkum tilfellum um helgina.
Um var að ræða rúðubrot í
verslunum, árásir á loftnet og
spegla á bifreiðum og þeir
skemmdir og annað þvíum-
líkt.
Lionsmenn kveikja
á perunni
Hin árlega perusala Lionsklúbbs Keflavíkur verður á morg-
un, föstudag. Munu Lionsfélagar ganga í hús og bjóða perurnar
til sölu. Allur ágóði af sölunni rennur óskiptur til líknarmála hjá
klúbbnum. Á myndinni að ofan er formaður fjáröflunarnefndar
klúbbsins, Ellert Eiríksson, tilbúinn að „kveikja á perunni“.
Ljósm.: pket.
Vatnsleysustrandarhreppur:
Lét fjarlægja 10
sumarbústaða-
„skrifli“
Sumarbústaðir í Hvassa-
hrauni, en innan lögsagnar-
umdæmis Vatnsleysustrand-
arhrepps, að falli komnirogí
mikilli óreiðu, hafa lengi
verið þyrnir í augum ýmissa
umhverfissinna undanfarin
ár. Nú hefur orðið breyting
þarna á því sveitarfélagið
nefur haft forgöngu um að
tíu bústaðir og einar bruna-
rústir á svæði þessu hafa nú
verið fjarlægðar.
Sagði Vilhjálmur Gríms-
son, sveitarstjóri Vatnsleysu-
strandarhrepps, í samtali við
blaðið, að mál þetta væri
búið að vera í umræðunni all-
lengi. í vor var samþykkt
bókun um málið í bygginga-
nefnd hreppsins og í fram-
haldi af því samþykkt
hreppsnefndin að hrinda í
framkvæmd hreinsun á
þessu og var honum og
Brynjólfi Guðmundssyni
byggingafulltrúa falið að
koma málinu í gegn.
Gerði Brynjólfur síðan
skrá yfir viðkomandi bústaði
og eftir mikla vinnu náði
hann að grafa upp hverjir
eigendur þeirra voru. Eftir
að gengið hefði verið frá
þessu var leitað tilboða og
síðan samið við Ásverk hf.
um að íjarlægja hússkrifli
þessi fyrir 160-170 þúsund,
og átti verkinu að ljúka í
þessari viku.
Sagði Vilhjálmur að mörg
þessara húsa og raunar öll,
hefðu verið í því ástandi að
þau töldust ónýt. Hefðu
þetta nánast verið hjallar,
sumt gluggalaust og galopið.
Auk hreinsunarinnar í
Hvassahrauni var einnig
fjarlægt eitt hús við Brunna-
staði, hús sem sértrúarsöfn-
uður byggði á sínum tíma
sem guðshús, en grotnað
hefur niður.
Ennfremur sagði hann að
hreppsnefndin myndi gera
tilraun til að innheimta hjá
eigendum bústaðanna, þann
kostnað sem af hreinsun
þessari hlaust.