Víkurfréttir - 01.10.1987, Qupperneq 8
\>IKUR
8 Fimmtudagur 1. október 1987
ÚTBOD
Bæjarsjóður Keflavíkur óskar eftir tilboð-
um í 1. áfanga dagheimilisbyggingar við
Heiðarbraut. Um er að ræða uppsteypun
sökkla og plötu, ásamt lögnum og fyllingu
ígrunnstæði.
Útboðsgögn verða afhent í skrifstofu
tæknideildar, Hafnargötu 32, Keflavík, frá
og með mánudeginum 5. október, gegn
3000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðju-
daginn 13. október kl. 11.
Bæjarverkfræðingur
Heiðurslaun
Brunabótafélags Islands
1988
í tilefni af 65 ára afmæli Brunabóta-
félags íslands, 1. janúar 1982, stofnaði
stjórn félagsins til stöðugildis hjá fé-
laginu til þess að gefa einstaklingum
kost á að sinna sérstökum verkeínum
til hags og heilla fyrir íslenskt samfé-
lag hvort sem er á sviði lista, visinda,
menningar, iþrótta- eða atvinnulifs.
Nefnast starfslaun þess, sem ráðinn
_er:
HEIÐURSLAUN
BRUNABÓTAFÉLAGS
ÍSLANDS
Stjórn BÍ veitir heiðurslaun þessi sam-
kvæmt sérstökum reglum og eftir
umsóknum. Reglurnar fást á skrif-
stofu Bí, Hafnargötu 58, Keflavík.
Þeir sem óska að koma til greina við
ráðningu í stöðuna á árinu 1988 (að
hluta eða allt árið), þurfa að skila um-
sóknum til stjórnar félagsins fyrir 10.
október 1987.
BRUIMBÚT
-aföryggisastæðum
BHUNABÓTAFÉLAG (SLANDS
Hafnargötu 58 - Keflavfk
jtUUi
Stefan Bjarkason asamt þeim Margreti Sanders (i miðið) og Þorunni Magnusdottur. Ljósm.: epj.
Bæjarstjórn og íþróttamiðstöð Njarðvíkur:
Viðurkenningar fyrir
góða frammistöðu
Bæjarstjórn Njarðvíkur og
íþróttamiðstöð Njarðvíkur
stóð fyrir hófi nýlega á
Hótel Kristínu, Njarðvík,
vegna viðurkenninga til Eð-
varðs Þórs Eðvarðssonar
sundmanns, þjálfara hans,
Friðriks Olafssonar, og um-
sjónarmanna sund- og
íþróttanámskeiða, þeirra
Margrétar Sanders og Þór-
unnar Magnúsdóttur.
Kom það í hlut Stefáns
- Bjarkasonar, íþrótta- og
æskulýðsfulltrúa Njarðvík-
urbæjar, að veita þeim stöll-
um viðurkertningu. A viður-
kenningarskjali, sem þær
fengu, var þeim þakkað fyrir
ánægjulegt samstarf vegna
sund- og íþróttanámskeiða.
Hápunktur hófsins var af-
hending Guðjóns Sigbjörns-
sonar, forseta bæjarstjórnar,
til þeirra Eðvarðs og Friðriks
i tilefni af nýsettu Norður-
landameti Eðvarðs í sundi.
F.v. Guðjón Sigbjörnsson, Eðvarð Þór Eðvarðsson og Friðrik Ólafsson.
Stálu
dekkjunum
undan bflnum
Heppnin var ekki með
Bandaríkjamanninum sem
velti bifreið sinni skammt
frá flugstöð Leifs Eiríksson-
ar fyrir síðustu helgi. Hon-
um iáðist að láta fjarlægja
bílinn eftir óhappið og ekki
leið á löngu þar til óprúttnir
náungar höfðu látið greipar
sópa.
Þegar sækja átti bílinn dag-
inn eftir var búið að stela
undan honum dekkjunum
og hljómflutningstækjun-
um, sem engu líkara var en
Dráttarbíll frá Skiptingu komin á staðinn. Dekkin vantaði undir
bílinn og því máli þurfti að kippa í liðinn áður en lengra var
haldið. Ljósm.: bb.
slitin hefðu verið úr mæla-
borðinu.
Þjófarnir gerðu því meira
en að stela, þeir stór-
skemmdu bifreiðina í
leiðinni.