Víkurfréttir

Útgáva

Víkurfréttir - 01.10.1987, Síða 9

Víkurfréttir - 01.10.1987, Síða 9
\)iKur< jutíit Fimmtudagur 1. október 1987 9 Erobikk á Perlunni: „Frjálsu tímarnir eru vinsælastir^ - segir Björk Birgisdóttir Olsen, leiðbeinandi í erobikk, sem nýkomin er af námskeiði frá Bandaríkjunum ,,Þetta var mjögskemmti- legt og jafnframt erfitt. Góð undirstaða mín, sem ég hafði fengið um vöðvastarf- semina, í Fjölbraut, kom að góðum notum. Auk þess að kenna sjálft erobikkið var lögð mikil áhersla á að kenna allt um vöðvastarf- semi líkamans,“ sagði Björk Birgisdóttir Olsen, leiðbein- andi í erobikki en hún er ný- komin heim frá New York, þar sem hún sótti námskeið í Jacobs Javits Convention skólanum, sem þykir mjög erfiður. „Við þurftum að vakna kl. 6 á morgnana og vorum að til kl. 10 á kvöldin, bæði í æfingum og svo voru fyrir- lestrar á milli. A hverjum degi þurftum við að taka próf,“ sagði Björk ennfrem- ur en hún hefur einnig sótt 2 mánaða leiðbeinendanám- skeið hjá Jónínu Benedikts- dóttur. Hún stefnir síðan á að halda út í sama skóla næsta haust og taka það sem á vantar til að öðlast kenn- araréttindi í erobikki. A námskeiðinu í New York núna fór hún í gegnum þrjú stig, fyrsta og annað stig í þolþjálfun og svo þriðja stig, sem er erobikk með lóðum og er það nýjasta í þessu. Þess má einnig geta að Þrek- miðstöðin Perlan stefnir að því að senda aðra stúlku með Björk í skólann næsta haust. Sagði Birgir Olsen, faðir Bjarkar og eigandi Perlunnar, að þau væru byrjuð að leita að réttu stúlkunni. „Við leggjum áherslu á að hafa vana leið- beinendur og góða aðstöðu," sagði Birgir en fljótlega tekur Perlan í notk- un nýjan leikfimisal. Perlan er með mjög góða líkams- ræktar- og lyftingaaðstöðu svo og sex ljósabekki og góða baðaðstöðu en allt þetta er að Hafnargötu 32 í Keflavík. Björk, sem var leiðbein- andi á erobikk-námskeiðinu í fyrra, sagði að innritun í ný námskeið væri hafin. Yrði boðið upp á sér kvenna- og karlatíma og einnig bland- aða tíma. Frjálsir tímar verða á mánudögum, mið- vikudögum og föstudögum en þá getur fólk „droppað inn“ í einn og einn tíma, eftir hvernig hentar hjá því. „Það var mjog vinsælt í fyrra og hentar vel vakta- vinnufólki, sem vill líka halda sér í góðri þjálfun,“ sagði Björk. Ljósm.: pket. Björk Birgisdóttir Olsen, erobikk-leiðbeinandi, í kunnugri stellingu. Einnig hinar vinsælu PANDA-úlpur. SPORTBÚÐ ÓSKARS VIÐ VATNSNESTORG - SÍMI 14922 Með oflitla möskva í trollinu Áhöfn varðskipsins Týs stóð vélbátinn Þórkötlu GK 97 frá Grindavík að togveið- um með ólögleg veiðarfæri síðasta laugardag. Var bátur- inn þá staddur u.þ.b. 8 sjómíl- ur suður af Eldey. Möskvarnir í trollpokan- um mældust 145 millimetrar en lögboðin möskvastærð á þessu veiðisvæði er 155 milli- metrar. Var skipið fært til hafnar í Grindavík. Að sögn John Hill, lög- reglufulltrúa hjá rannsóknar- lögreglunni í Keflavík, sem fékk málið til meðferðar, hef- ur skipstjórinn játað brot sitt. VETRARDEKK í öllum stærðum og gerðum. Fyrlr þá sem velja þaö besta. X C J3 NORÐDEKK OHTSU 0g u&Ilken Odýr gæðadekk ð Aðalstöðin Hjólbarðaþjónustan - Sími 11516

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.