Víkurfréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Víkurfréttir - 01.10.1987, Qupperneq 10

Víkurfréttir - 01.10.1987, Qupperneq 10
10 Fimmtudagur 1. október 1987 Bátur Rikka, Rúna GK, hífður upp úr sjónum. Þetta er annað árið í röð sem Rúna GK sekkur í höfninni. Menn bera saman bækur sínar, hvernig best skuli haga björgunaraðgerðum. Grjótið sem bíður þess að verða notað sem varnargarður. Það gengur undir nafninu „gullmolarnir" hjá fólkinu í Höfnunum. mur< juUiv mun iuau Fimmtudagur október 1987 11 „Höfnin er lífæð byggðar- lagsins“ - segir Björgvin Lúthersson i hafnarnefnd „Höfnin í Höfnum er líf- æð byggðarlagsins og ef engar úrbætur verða gerð- ar þá er ég hræddur um að byggðin leggist af hérna'S sagði Björgvin Lúthers- son, sent á sæti í hafnar- nefnd. Björgvin sagði að ráða- menn misskildu hvað í húfi væri, þeir teldu að höfnin væri fyrir sport- báta, en það væri regin misskilningur. „Hér eru menn með báta af öliu Reykjanesi og þar ræður eingöngu nálægð fiski- m i ð a n n a, s e m e r u steinsnar undan. Björgvin sagði að menn væru í stöðugum ótta með báta sína ef eiíthvað gerði al' veðri og yrðu þessir aðilar þá að vakta bátana. „Ég get nefnt sem dæmi að maður úr Hafn- arfirði var með bát í höfn- inni þegar hann brast á með illviðri, og hann var þegar látinn vita.en þögar hann náði hingað var bát- urinn sokkinn“. Björgvin sagði að vil- yrði væri fyrir 8.5 miiijón- um í hafnargerð og hann lagði áherslu á að meira fé þyrfti til. Það væri kostn- aðarsamt að vera að hætta og byrja aftur og því hefði liann áhuga á að fá þetta fjármagn sem á vantaði að láni í sparisjóðum eða bönkum. Rikki í Höfnum kominn niður á bryggju tilbúinn að hefja björgunaraðgerðir á útfallinu. Hann bendir út í brim- garðinn og handan hans eru Básendar. Er sagt að sundið þar sé alltaf fært. Ljósmyndir: bb. Ofsabrim í Höfnum á mánudaginn: TVÆR TRILLUR SUKKU I HÖFNINNI Tvær trillur sukku og ein komst naumlega undan þegar ofsabrim gerði í Höfnum á mánudagsmorguninn. Trill- urnar náðust upp á fjörunni seinna um daginn og var vöru- bílskrani notaður til að hífa bátana upp. Talsverðar skemmdir urðu á trillunum. Þröstur Bjarnason, sem reri á annarri trillunni sem sökk, lenti í kröppum dansi þegar hann freistaðist til að bjarga bátnum og mátti litlu muna að illa færi. „Ég var á næturvakt þessa nótt og hafði hugað að bátn- um kvöldið áður og þá var allt með felldu,“ sagði Þröstur. „Um morguninn, þegar vinnu lauk, lét ég verða mitt fyrsta verk að huga að bátn- um, því veðurspáin var tví- sýn. Þegar ég kom niður að hafnargarði sá ég að báturinn var orðinn hálffullur af sjó. Ég fór strax um borð og setti vélina í gang. Ekki var viðlit að losa landfestarnar með handafli og ætlaði ég að skera bátinn frá þegar vélin drap á sér. I sömu svifum kom brot á garðinn sem fyllti bátinn og mér tókst með naumindum að komast í land, því bátur- inn sökk í þessum svifum.“ Að sögn sjónarvotta lagði Þröstur sig í mikla hættu, því sjór gekk stöðugt yfir hafnar- garðinn. Þorkell Guðmundsson á Nirði GK 71, sem er 6 tonna dekkbátur, var aðeins fyrr á ferðinni og honum tókst með naumindum að komast frá bryggjunni. „Ég kom niður að höfn um átta leytið ásamt Gesti Eggertssyni, sem á bát- inn með mér,“ sagði Þorkell. „Þá var farið að gefa yfir garðinn og ljóst að hverju stefndi. Ég bað Gest að sleppa og fara með bílinn í burtu. Hjá mér var engin hætta á ferðum eftir að ég komst frá bryggjunni og ég hefði þess vegna getað siglt strax inná Sand. En ákvað hinsvegar að andæfa og sjá hverju fram yndi og ég fór ekki fyrr en báðir bátarnir voru sokknir." Þorkell sagði að menn væru orðnir langþreyttir á þessu ástandi í höfninni. „Éghefátt viðræður við alþingismenn um úrbætur, en það verður að segjast eins og er að hingað til hef ég talað fyrir daufum eyr- um hjá þessum mönnum og er sama hvar þeir eru í flokki,“ sagði Þorkell enn- fremur. Rikki í Höfnum: Trilla hans sökk líka í fyrra Rikki í Höfnuni átti Rún GK 40, a^ra trilluna sem sökk í höfninni í Höfnum á þriðjudaginn og er þetta annað árið i röð sem trillan hans Rikka sekkur í höfn- inni. Rikki sagði að hafnar- aðstaðan væri ekki burðug og hann væri farinn að hallast að þeirri skoðun að það væru meira en Htið skrítnir menn sem létu sér detta í hug að vera með báta í höfninni við þessar aðstæður. „Ég var með bátinn minn tryggðan hjá Samvinnutryggingum í fyrra þegar hann sökk en þeir neituðu að greiða mér tjónið. Sögðu að haffærn- iskírteini vantaði. Ég hafði samband við önnur trygg- ingarfélög og þar var mér sagt að þetta væri tylli- ástæða. Nú er ég tryggður hjá Tryggingamiðstöðinni og nú er að sjá hvað skeður." Rikki taidi að flot- bryggja innan við hafnar- garðinn væri ef til vill lausn til bráðabirgða en ljóst væri að úrbætur^yrfti að gera og það áður en stór- tjón yrði. Búið að ná öðrum bátnum upp og Þröstur vinnur við að koma böndum undir hann. Þröstur Bjarnason, sem komst í hann krappan þegar hann reyndi að koma bát sínum undan. „Okkur er full alvara með höfnina“ - segir Þórarinn St. Sigurðsson, sveitarstjóri „Því miður verða óhöpp eins og þessi alltof oft hér í höfninni", sagði Þórarinn St. Sigurðsson, sveitarstj. og formaður hafnarnefnd- ar í Höfnum. Þórarinn sagði að Hafnamenn hefðu þegar sýnt í verki að þeim væri alvara með að fá bætta hafnaraðstöðu með því að kaupa að mikið magn af stórgrýti sem kom úr grunni nýju flugstöðv- arinnar. „Við erum komnir á blað hjá því opinbera og vonumst til að fá fjár- magn á næsta ári til að hefja framkvæmdir og síðan haldið verkinu á- fram á næstu þremur ár- um“. Þórarinn sagði að menn áætluðu að stórgrýtið sem ekið hefði verið úr grunni flugstöðvarinnar myndi fara langt í gerð varnar- garðs sjávar megin við hafnargarðinn. En fjár- skortur hindraði þá í að hefja framkvæmdir. SPARISJÓÐURINN í KEFLAVÍK - Alltaf að hugsa um sína - OPINN ALLAN SÓLARHRINGINN

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.