Víkurfréttir - 01.10.1987, Blaðsíða 15
Golfvertíðinni er nú að Ijúka. Síðasta mótið verður um helgina, bændaglima. Þessi mynd er
frá Meistaramóti GS fyrr í sumar, af þeim Sigurði Albertssyni og Gylfa Kristinssyni.
Ljósm.: mad.
GOLFVERTIÐ
AÐLJÚKA
r
Asta Páls best
hjá kvenfólkinu
Síðasta kvennamótið hjá
Golfklúbbi Suðurnesja á þessu
sumri var haldið 19. sept. í
Leiru. Um 20 konur mættu til
leiks og eru konurnar svo
sannarlega að sækja í sig veðr-
ið í golfinu hér á Suðurnesjum.
En úrslit urðu þau, að með for-
gjöf sigraði Asta Pálsdóttir,
hún „málaði“ fæst höggeða 69
talsins. Sigurbjörg Gunnars-
dóttir varð önnur með 77 högg
og þriðja María Jónsdóttir á
80 höggum. Veitt voru verð-
laun fyrir besta skor án for-
gjafar og þar sigraði Gerða
Halldórsdóttir, en hún lék á
105 höggum.
Hafsteinn
„drævaði“ lengst
Á sunnudag var Flagga-
keppni, púttmeistaramótið og
,,dræv“-keppni. Sigurður Al-
bertsson komst lengst með sitt
flagg, kláraði 18 holurnar og
gat slegir tvö högg á 19. holu.
Næstur á eftir honum kom
Júlíus Jónsson en kúlan hans
endaði 1 cm frá 18. holu, kíkti
reyndar ofan í en sá hvað það
var langt niður svo hún kom
upp aftur!, eða þannig sko.
,,Dræv“-keppnin fór fram á
18. braut. Hafsteinn Sigur-
vinsson gerði sér lítið fyrir og
sló kúlu sína eina 250 metra og
varð „dræv“-meistari 1987. I
púttmeistaramótinu léku þeir
Sigurður Sigurðsson og Georg
V. Hannah til úrslita og sigr-
aði sá fyrrnefndi.
Kóngsklapparmót-
ið í Grindavík
Kóngsklapparmótið var
haldið á Húsatóftavelli í
Grindavík sl. laugardag.
Leiknarvoru 18holurmeð7/8
forgjöf. Birgir Ingvarsson GG
sigraði en hann fékk 40
punkta. Jóhann Benediktsson
GS varð annar með 38 punkta,
Sveinbjörn Björnsson GK og
Þorsteinn Geirharðsson næst-
ir með 37 punkta. Glæsileg
verðlaun voru frá Golfvörum
sf., samtals að verðmæti 85
þús. kr.
Verðlaunahafar og þátttakendur í kvennamótinu.
Fimmtudagur 1. október 1987 15
Bátur tii sölu
ÓLI KE 16, 11 tonna súðbyrtur bátur, ertil
sölu, mikið endurnýjaður.
Áhugaaðilar sendi nafn og síma til skrif-
stofu Víkur-frétta, Vallargötu 14, Keflavík.
Síöasta golf-
mót ársins
Bændaglíma, síðasta golf-
mót ársins hjá Golfklúbbi Suð-
urnesja, verður n.k. laugardag í
Leirunni og hefst kl. 10 stund-
víslega. í fyrsta sinn í sögu
klúbbsins verða kvenmenn
bændur en hverjar það verða
verður ekki gefið upp fyrr en
stundin rennur upp. Á laugar-
dagskvöldið verður siðan
nokkurskonar lokahóf golf-
manna og skemmtikvöld í mat
og drykk og huggulegheitum.
,,Ég er búinn að æfa hérna í 9 mánuði,
alltaí' þrisvar í viku. Öll mín heilsa er
allt önnur, slenið horfið, en í staðinn
" - fengið vellíðan og vöðva . . . “
INGI GUNNLAUGSSON
PERLAN
Þrekmiðstöð - Sólbaðsstofa
Hafnargötu 32 - Sínii 14455
OPIÐ:
mánud.-föstud.
kl. 8-23:00
I^iug.-sunnud.
kl. 9-21:00
INGI GUNNARSSON, TANNLÆKNIR:
Allt annar maöur“