Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 05.11.1987, Blaðsíða 14

Víkurfréttir - 05.11.1987, Blaðsíða 14
mun 14 Fimmtudagur 5. nóvember 1987 Lionessuklúbbur Njarðvíkur: FJÖLMENN STOFNHÁTÍÐ Kjördæmisþing Alþýðuflokksins í Reykjaneskjördæmi: VERKTAKAGJALDIÐ - SJÁLFSAGT RÉTTINDAMÁL Stofnaður hcfur verið í Njarðvík nýr klúbbur er ber nafnið Lionessuklúbbur Njarðvíkur og er fyrsti for- maður hans Guðbjört Ingólfsdóttir. — Af þessu tilefni var laug- ard. 24/10 haldin fjölmenn stofnhátíð í félagsheimilinu Stapa, Njarðvík, þar setn ýmsum góðum gestum var boðið, bæði úr öðrum Lionsklúbbum, sveitar- stjórnum og að sjálfsögðu féiögum hins nýja klúbbs og mökum. Þar fór fram skemmtun, ræðuhöld og annað er sæmir góðri veislu. Næstsíðasta sunnudag hélt k jördæmisráð Alþýðuflokksins í Reykjaneskjördæmi fjölmennt þing hér í Keflavík. A þinginu höfðu framsögu þeir Jón Baldvin Hannibalsson, fjármálaráðherra og Jón Sig- urðsson, viðskiptaráðherra ásamt alþingismönnunum Kjartani Jóhannssyni og Karli Steinari Guðnasyni. Þá fluttu formenn flokksfélaga starfs- skýrslu og starfsáætlun og for- ystumenn jafnaðarmanna í sveitarstjórnum lýstu verkefn- um og framtíðaráformum sinna sveitarstjórna. Umræðuráþing- inu voru mjög líflegar og voru fundarmenn einhuga í því að krefja ríkisstjórnina um aðstoð við uppbyggingu sjávarútvegs og annars atvinnulífs í Reykja- neskjördæmi ásamt því að leggja áherslu á framlög til verkefna sveitarfélaganna. I lok þingsins sem stóð frá klukkan 10 að morgni til 7 að kvöldi var eftirfarandi ályktun samþykkt: Islenskt þjóðfélag í dag ein- kennist um of af misrétti og for- réttindum, skattsvikum og að- stöðumun einstaklinga. Bilið milli þjóðanna tveggja i landinu, þeirra sem betur mega sín og hinna, hefur aukist. Jafnaðarstefnan, markmið hennar og leiðir, er ein þess megnug að vísa veginn út úr þessum vanda. Það verður að binda endi á ójöfnuðinn og efla réttlætið í íslensku samfélagi. Kjördæmisþing Alþýðu- flokksins í Reykjaneskjördæmi minnir á að mikilvægustu verk- efnin í landsstjórninni eru: - að draga úr verðbólgunni og ná henni niður á svipað stig og í viðskiptalöndum okkar. - að standa vörð um og efla raunverulegan kaupmátt almennra launa og rétta hag þeirra sem verst eru settir. - að stokka upp skattakerfið, uppræta skattsvik og draga úr álögurn í tekjuskatti. Til þess þarf að einfalda reglur, herða raunhæft skattaeftirlit og þyngja viðurlög við skattsvik- um. - að skapa atvinnulífinu heil- brigt starfsumhverfi, þar sem arðsemi, gæði og góð laun starfs- fólks séu höfð að leiðarljósi. - að vinna að félagslegu rétt- læti og auknum jöfnuði í efna- hagslegu tilliti. - að koma húsnæðislánakerf- inu á traustan og varanlegan grundvöll. - að leita eftir samstarfi við fél- agasamtök launafólks og aðra aðila vinnumarkaðarins við það að draga úr verðbólgu, treysta kaupmáttinn, eyða forréttind- um og efla jöfnuð og jafnrétti í þjóðfélaginu. Að þessu verðurað vinna fast og skipulega, hyggja að fortíð um leið og horft er til framtíðar. Þannig verður alltaf að horfa til nokkurra ára í senn, svo að það liggi greinilega fyrir hjá þjóðinni í hverju máli til hvers hvert skref er stigið og hvert það miðar á framtíðarbraut þjóðfélagsins. Kjördæmisþingið minnir á það hróplega óréttlæti sem Reykjaneskjördæmi hefur orðið að búa við í sjávarútvegi um mörg undanfarin ár og krefst þess að kjördæminu verði tryggður eðlilegur hlutur í upp- byggingu þessa atvinnuvegar. Kjördæmisráð Alþýðuflokks- ins i Reykjaneskjördæmi fagnar stofnun almenningshlutafélags- ins Eldeyjar og væntir þess að það megi bera góðan ávöxt í at- vinnuuppbyggingu. Jafnframt fagnar ráðið því frumkvæði, sem Hafnfirðingar sýndu undir for- ystu jafnaðarmanna með stofn- un fyrsta fiskmarkaðarins á ís- landi. Bæði þessi atriði eru gleði- legur vottur um framsýni og framkvæmdaþor í Reykjanes- kjördæmi og ber að halda óhik- að áfram á þeirri braut. Kjördæmisráð Alþýðuflokks- ins í Reykjaneskjördæmi leggur áherzlu á fjárhagslegt sjálfstæði sveitarfélaga og minnir á nauð- syn þess að vel sé vandað til vinnubragða um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga og að sveit- arfélögunum séu tryggðir öruggir tekjustofnar til að sinna verkefnum sínum. Samgöngumál í Reykjanes- kjördæmi og Reykjavík eru í óviðunandi ástandi, þar sem vegakerfið annar ekki umferð- inni og slysahætta er víða geig- vænleg. Skorar þingið á þing- menn þessara kjördæma að taka saman höndum um stórátak í þeim efnum. Kjördæmisráðið leggur áherslu á, að úrelt ákvæði varð- andi eignarnámsmat á landi og ófullkomin lagaákvæði varð- andi yfirráð sveitarfélaga yfir landnýtingu mega ekki verða til þess að hefta óeðlilega þróun þeirra eða setja þeim fjárhags- lega ofurkosti. Kjördæmisráðið hvetur eindregið til að þau laga- ákvæði sem hér um ræðir verði endurskoðuð, og minnir á tillöguflutning Alþýðuflokksins um þessi mál. Að lokum minnir kjördæmis- ráð Alþýðuflokksins í Reykja- neskjördæmi á það sjálfsagða réttlætismál, að verktakastarf- semi sem fram fer á Keflavíkur- flugvelli verði gert að greiða sérstakt verktakagjald, og þann- ig verði þeir aðilar sem þar reka ábatasama starfsemi látnir greiða sanngjarnan hluta til samfélagsins. Þetta verktaka- gjald telur kjördæmisráðið að eigi að renna óskipt í atvinnu- uppbyggingarsjóð Suðurnesja. Fjölmenni var á stofnhátíðinni í Stapa. 1 i"'"'- Lt>' t Þakka innilega hlýhug og samúð við andlát og útför systur minnar SVÖVU H. JÓNSDÓTTUR Hlévangi, Keflavík. Sérstaklega þakka ég forstöðukonum og starfs- fólki Hlévangs fyrr og síðar, fyrir góða umönnun og vinsemd við hina látnu. Ólafur J. Jónsson SOLUÐ RADIAL VETRAR DEKK Nú er rétti tíminn til að huga að vetrar- dekkjunum. - Höfum flestar stærðir af sóluðum radial-hjólbörðum á lager. - Frábær inniaðstaða. - Fljót og góð þjónusta. FITJABRAUT 12 - NJARÐVÍK - SÍMI 11399, 11693

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.