Víkurfréttir - 05.11.1987, Síða 19
\)mr<
jutíH
Fimmtudagur 5. nóvember 1987 19
WDtflldE)
U V U Movie
Lítil, létt og einföld,
en mjög fullkomin
video upptökuvél
- með „auto-focus“ og
200 mm linsu . . .
Nú fyrir skömmu var haldin stærðfræðikeppni á vegum
framhaldsskólanna um land allt. Er hún jiður í vali á lands-
liði sem keppa mun fyrir íslands hönd á Ólympíuleikunum í
stærðfræði, sem haldnir verða í Astralíu á næsta ári. Það er
skemmst frá bví að seeia að 17 ára nemandi í Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja, Ólafur Örn Jónsson, tryggði sér rétt í hóp
þeirra 30 bestu sem þátt taka í úrslitum keppninnar um fjög-
ur efstu sætin í landsliðinu.
„Já, þessi keppni var hald-
in 13. okt. í öllum framhalds-
skólum landsins og var henni
skipt niður í tvö stig, efra og
neðra. Eg var á neðra stigi,
þar sem nemendur eru á
fyrstu tveimur árum námsins
en efra stigið var fyrir þá
lengra komna. Keppendur
voru í heild á fjórða hundrað
og endaði ég í fjórða sæti á
neðra stigi,“ sagði Ólafur
Örn í samtali við Víkurfrétt-
ir.
Hvernig var prófið síðan
UPP byggt?
„I fyrsta lagi máttum við
ekki nota reiknivélar. Dæm-
in voru þó nokkuð erfið,
mikið um flatarmál og rúm-
mál og í raun mætti lýsa
þessu bara sem stærðfræði-
þrautum. Við fengum tvær
klst. til að leysa dæmin en
mér skilst á þeim sem sömdu
þau að það sé ekki ætlast til
að venjulegur maður klári
þetta enda voru ein fjögur
þyngdarstig á dæmunum. I
þokkabót eru þau langt fyrir
utan námsefnið þó svo
nokkrir skólar hafi kennt
sérstaklega fyrir þetta próf.
En ég get sagt þér það að
prófið í úrslitunum verður
all miklu þyngra en þetta
vegna þess að þá verðum við
með þeim af efra stiginu svo
að maður verður að leggja sig
allan fram ef ekki á að verma
botnsætið. Eg vona bara að
ég fái aðstoð frá kennaranum
mínum og skólanum til að
geta lagt allt mrtt fram í þess-
ari hörðu keppni."
Hefur stærðfræðin ávallt
verið auðveld í meðförum hjá
þér?
„Já, það má segja að hún
hafi legið mjög vel við alveg
frá því í grunnskóla. Síðan
um 13 ára aldurinn fékk ég
einkatölvu til að kljást við og
í forrituninni ertu mikið að
fást við stærðfræðina svo að
allt hefur þetta hjálpað til við
árangurinn. Annars hefur
áhuginn alltaf verið til staðar
og það er aðalatriðið.“
Ætlarðu e.t.v. að leggja
þessa grein fyrir þig í fram-
tíðinni?
„Eg veit það ekki ennþá,
það fer allt eftir því hvernig
mér gepgur að meðhöndla
hana. Eg ætla að reyna að
gera mitt besta í úrslitunum í
mars enda verða þar stór-
kostleg „séní“ sem maður
keppir við. Annars finnst
mér stærðfræðin í Háskólan-
um „ópraktískur" valkostur
VOGABÚAR, ATHUGIÐ!
BREYTT SÍMANÚMER
f AFGREIÐSLU OKKAR:
46604
ein og sér en hún gæti hjálpað
þér í verkfræði og álíka fræð-
um. Yfir höfuð gerast þeir,
sem náð hafa háskólaprófi í
stærðfræði, kennarar, land-
flótta eða hreinlega fara yfir
um svo að af mörgu er að
taka,“ sagði þessi bráðskýri
talnasérfræðingur að lokum.
Við hjá Víkurfréttum ósk-
um honum góðs gengis í úr-
slitakeppninni.
V. Ket.
Aðeins
kr. 85.100.-
LiU’inn
Hafnargötu 35- Keflavík - Simi 13634
Fyrirtæki stofnað
um skelfiskvinnslu
Þeir félagar, sem undan-
farin misseri hafa verið með
tilraunavinnslu á kuðungi og
öðrum skeldýrum, hafa nú
stofnað sérstakt hlutafélag
um reksturinn með heimili í
Keflavík. Nafn þess er Is-
lenskur skelfiskur h.f.
ÚTVEGSBANKI
fSLANDS
STÆRÐFRÆÐIN
í UPPÁHALDI
- segir Ólafur Örn Jónsson, nemi í Fjölbrautaskólanum