Víkurfréttir - 05.11.1987, Page 21
vlKUIÍ
jUtíit
Fimmtudagur 5. nóvember 1987 21
Brids
Nú stendur yfir JGP-
sveitakeppni hjá Bridsfélagi
Suðurnesja með þátttöku 12
sveita. Þegar 4 umferðir eru
búnar hefur sveit Gests Auð-
unssonar forystu með 85 stig
en með honum hafa spilað
Gísli og Sigurður Davíðssyn-
ir, Kolbeinn Pálsson og Elías
Guðmundsson. Röð næstu
sveita er þessi:
2. Sveit Birkis Jónssonar 82 stig
3. Sveit Jóhannesar Ell. . 71 stig
4. Sveit Haralds Brynj. .. 66 stig
5. Sveit Björns Blöndal .. 62 stig
Þeir sem áhuga hafa á að
koma og fylgjast með mótinu
geta komið út í Golfskála í
Leirunni á mánudagskvöld-
um en spilamennskan hefst
kl. 20.
Stjórnin
ns?
J2S>
Ljósm.: epj.
Harður árekstur á Hjallavegi í Njarðvík
Um miðja síðustu viku
varð geysiharður árekstur
tveggja bifreiða á gatnamót-
um Vallarbrautar og Hjalla-
vegar í Njarðvík. Ökumaður
Allt til sauma
Viskoskrep, flauel, ullargaberdin,
velour og apaskinn.
Snið á apaskinnsgallana, st. 2-42.
Saumum galla.
LlSA
Hafnargötu 27 - Sími 12545
VAXTARRÆKTARMAÐURINN
ÍVAR HAUKSSON
verður með fyrirlestur um
vaxtarrækt fyrir byrjendur og
lengra komna i greininni
laugardaginn 7. nóvember
kl. 14:00.
Hann mun einnig svara
fyrirspurnum um mataræði og
vitamín.
Notið tækifærið og kynnist
þessari geysivinsælu iþrótt.
íf
SÓLBAÐS- og LÍKAMS-
RÆKTARSTÖÐIN
PERLAN
Hafnargötu 32 - Keflavík - Sími 14455
annarrar bifreiðarinnar var
fluttur á sjúkrahús. Var hún
ekki alvarlega slösuð en lögð
inn sökum þess að hún var
vanfær.
Þurfti dráttarbíl til að fjar-
lægja báða bílana. Era.m.k.
annar þeirra trúlega ónýtur.
Frá Alþingi:
Tímamót í
þingsögunni
í einni al' fastanefndum
Alþingis eru konur í meiri-
hluta, fjórar af sjö nefndar-
mönnum. Þetla er í fyrsta
sinn í samanlagðri sögu Al-
þingis sem slíkt gerist. Þessi
merkilega nefnd er Heil-
brigðis- og -trygginganefnd
efri deildar. Formaður
hennar er enginn annar en
Karl Steinar Guðnason, og
hafði hann þetta um málið
að segja:
„Þetta er tímanna tákn,
áhrif kvenna fara vaxandi.
Eg fagna því og hlakka til
samstarfs við þær í nefnd-
inni“.
Alþingismenn Reykja-
neskjördæmis eru 11 að
tölu, 9 karlar og 2 konur. í
samræmi við kjörfylgi er
röð þeirra þessi:
1. þingmaður Matthías
A. Mathiesen (S).
2. þingmaður Ólafur G.
Einarsson (S).
3. þingmaður Steingrím-
ur Hermannsson (F).
4. þingmaður Kjartan Jó-
hannsson (A).
5. þingmaður Geir
Gunnarsson (Ab).
6. þingmaður Salome
Þorkelsdóttir (S).
7. þingmaður Júlíus Sól-
nes (B).
8. þingmaður Jóhann
Einvarðsson (F).
9. þingmaður Karl Stein-
ar Guðnason (A).
10. þingmaður Kristín
Halldórsdóttir (SK).
11. þingmaður Hregg-
viður Jónsson (B).
Samkv. stjórnarskránni
skiptist þingheimur í tvær
deildir, efri þingdeild og
neðri þingdeild. 1 efri deild
á þriðjungur (21) þing-
manna sæti en tveir þriðju
hlutar (42) í neðri deild.
Fjórir þingmenn úr
Reykjaneskjördæmi eiga
sæti í efri deild: Jóhann,
Júlíus, Karl Steinar og
Salome. Sjö eiga sæti í neðri
deild:* Geir, Hreggviður,
Kjartan, Kristín, Matthías,
Ólafur og Steingrímur.
Meðalaldur þingmanna
Reykjaneskjördæmis er 52
ár. Salome Þorkelsdóttir er
þeirra elst, eða 60 ára.
Hreggviður Jónsson er
aftur á móti yngstur, 43
ára.
Meðalaldur allra þing-
manna er tæp 50 ár. Meðal-
aldur karla á Alþingi er
50,5 ár en kvenna 47,5 ár.
Elstur er Stefán Valgeirs-
son, 68 ára,_ en yngstur
Guðmundur Ágústsson, 29
Af þingmönnum kjör-
dæmisins eru 3 búsettir í
Hafnarfirði, 2 í Keflavík, 2 í
Garðabæ, 2 á Seltjarnar-
nesi og einn í Mosfellsbæ.
Einn er búsettur utan
Reykjaneskjördæmis. Það
er Hreggviður Jónsson,
Reykjavík.
★
Af þeim sem nú skipa Al-
þingi Islendinga, hefur
Geir Gunnarsson setið flest
þing, og Matthías Mathie-
sen næst flest.
Að undankildu yfir-
standandi þingi hefur Geir
setið samtals 32 þing, Matt-
hías 31, Steingrímur 20,
Ólafur 18, Karl Steinar 12,
Kjartan 10, Salome 8,
Jóhann og Kristín 4, en þeir
Hreggviður og Júlíus hafa
ekki áður átt sæti á Alþingi.
GLASGOW
FRÁIgjgOOKR.
LONDON
FRÁ 16^250 KR.
AMSTERDAM
FRÁ UL880 KR.
Munið okkar
frábæru pakka:
Sjallapakkann
Akureyrarpakkann
Borgarpakkinn
kostar aðeins kr. 3.550.-
FERÐASKRIFSTOFA
REYKJAVÍKUR
AÐALSTRÆTI 16S:621490
Umboð á Suðumesjum:
Tiilt’inn
Hafnargötu 35 - Keflavík
Simi 13634