Víkurfréttir

Issue

Víkurfréttir - 05.11.1987, Page 24

Víkurfréttir - 05.11.1987, Page 24
Fimmtudagur 5. nóvember 1987 AFGREIÐSLA BLAÐSINS er að Vallargötu 14, II. hæð. - Sími 14717. SPURÐU SPARISJÓÐINN Mikil fundahöld hafa verið hjá þeim Eldeyjarmönnum, tn.a. nicð ýmsum hagsmunaaðilum í sjávarútvegi ogÖðrurn. Þessi mynd var tekin á cinum slíkum í Grindavíkáþriðjudag,enáform- að er að halda slíká fundi i öllum sveitarfélögum á Suðurnesjum. Ljósni.: hjic/Cirimtitvik Kaupir Eldey hf. tvo togara? Undirbúningsstjórnin að stofnun útgerðarfé- lagsins Eldeyjar hf. hefur skrifað útgerðaraðilum tveggja togara bréf þar sem óskað er eftir viðræð- um um kaup á skipum þessum. í bréfunum er þess getið að félagið hafi enn ekki verið stofnsett, en fullur hugur sé með kaup þessi meðal þeirra er sitja í undirbúnings- stjórninni. Þegar blaðið fór í prentun höfðu svör ekki borist við máialeitunum þessum. Auk bréfaskrifta hafa átt sér stað fundir með þingmönnum kjördæm- isins, hagsmunaaðilum í sjávarútvegi. svcitarstjórn- armönnum o.fl. aðilum. Tóku þingmenn tnálaleit- an Eldeyjarmanna vel og lýstu yfir stuðningi sínum með þetta framtak um stofnun útgerðarfélags- ins, auk þess sem Eldeyj- arrnenn voru hvattir til frekari dáða. Hafa þing- mennimir tekið að sér á- kveðin verkefni vegna máls þessa og unnið að því frá því fundurinn var haldinn á þriðjudag í sið- ustu viku. í undirbúningi er nú skipulögð hlutatjársöfn- un meðal aimennings og fyrirtækja. Verður nánar greint frá því máli í næsta tölubiaði. Bygging D-álmu: Beðið heimildar til lántöku Á fundi fulltrúaráðs D- álmu samtakanna á laugar- dag skýrði Olafur Björnsson, stjórnarformaður sjúkra- hússins, frá því að nú væri beðið eftir heimild viðkom- andi ráðuneytis til lántöku vegna byggingar D-álmunn- ar að upphæð 30 milljónir króna, en sveitarfélögin öll á Suðurnesjum hafa lofað ábyrgð fyrir láni þessu. Telja aðstandendur sjúkrahússins sig hafa heim- ild frá fyrrverandi heilbrigð- isráðherra vegna þessa og eins telja þingmenn að svo sé, en samt virðist stranda eitt- hvað á að ráðuneytið gefi út formlega heimild fyrir bygg- ingunni. _ Sagði Olafur að menn von- uðust til að mál þessi kæm- ust í höfn fyrir áramót svo hægt væri að hefja fram- kvæmdir en þörf er að byrja holræsalagningu norðan við sjúkrahúsið og út í Sólvalla- götu, byggingu kjallara og grunnplötu, hið fyrsta. Samkvæmt lauslegri kostnaðaráætlun frá því í vor er áætlað að byggingarkostn- aður verði á bilinu 120-130 milljónir króna. En fyrir um tveimur árum síðan lögðu Is- lenskir aðalverktakar inn í lánastofnun á Suðurnesjum umræddar 30 milljónir sem endurlána á í byggingu þessa. En sem fyrr segir stendur á heimild til að byrja. Þá hefur bygginganefnd Keflavíkur og bæjarsjóður Keflavíkur samþykkt bygg- ingu fjögurra hæða bygging- ar í þessu skyni. Kom fram í máli Olafs að þörf fyrir lang- legudeild á Suðurnesjum væri mjög mikil. Væru trú- lega nú um 70 manns sem ættu að vera á slíkri deild, alveg eða að hluta til, en kæmust hvergi að. Aðalgata: Lýsing væntanleg Á síðasta fundi bæjarstjórn- ar Keilavíkur upplýstu þeir Vilhjálmur Ketilsson og Hannes Einarsson að Hita- veita Suðurnesja myndi fljót- lega hefja vinnu við lýsingu á Aðalgötu frá Reykjanesbraut að Iðavöllum. Sagði Hannes að verkefni þetta væri eitt af forgangsverkefnum Hitaveit- unnar. Mikil óánægja hefur verið með vegarspotta þennan og þá m.a. vegna skorts á merkingu og lýsingu. Fótbrotnaði Sparisjóðurinn 80 ára Sparisjóðurinn í Keflavik verður 80 ára n.k. laugardag, 7. nóvember. I tilefni að því verð- ur viðskiptavinum boðið upp á kaffi og kræsingar í öllum af- greiðslum Sparisjóðsins á morgun, föstudag. Sparisjóðurinn er stærsta lánastofnun á Suðurnesjum og Itefur verið um langa tíð. Af- greiðslustaðir á Suðurnesjum eru orðnir fjórir, sá nýjasti opnaði í Grindavík í ágúst sl. Fyrir voru afgreiðslur í Kefla- vík, Njarðvík og Garði. Starfs- menn eru tæplega 80. Elsti starfsmaður stofnunar- innar er Bragi Halldórsson, að- alféhirðir, sem starfað hefur hjá Sparisjóðnum í 32 ár. Hann átti einnig merkisafmæli á þessu ári en þá varð hann75 ára. Við fjöllum nánar um starf- semi Sparisjóðsins í sérstökum blaðauka í Víkur-fréttum í næstu viku. skiptavinum í afmæliskaffi. Ljósm.: pket. Ungur drengur er var að leik á róluvellinum milli Vesturgötu og Vest- urbrautar í Keflavík varð fyrir því slysi að fótbrotna í síðustu viku. Var dreng- • urinn fluttur á Sjúkrahús Keflavíkurlæknishéraðs til læknisaðgerðar. Þetta fer nú bara ekki að vera eðli-legt þarna uppi í flugstöð!!!

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.