Víkurfréttir - 07.01.1988, Blaðsíða 1
Varnarmálanefnd:
Suðurnesja-
menn
í meiri-
hluta
í fyrsta
skipti
Steingrímur Hermanns-
son, utanríkisráðherra, hefur
skipað tvo Suðurnesjamenn í
varnarmálanefnd utanríkis-
ráðuneytisins, þá Pál
Jónsson sparisjóðsstjóra og
Olaf Björnsson fyrrum bæj-
arfulltrúa. Með tilnefningu
þessara manna hafa Suður-
nesjamenn nú í fyrsta skipti
meirihluta í nefndinni, en
hún er ráðgjafarnefnd fyrir
utanríkisráðuneytið. Tveir
Suðurnesjamenn voru fyrir í
nefndinni, Finnbogi Björns-
son oddviti í Garði og Valtýr
Guðjónsson fyrrum fjár-
málastjóri, sem dettur út.
Aðrir í nefndinni eru
Höskuldur Olafsson banka-
stjóri og Hallgrímur Dal-
berg ráðuneytisstjóri félags-
nrálaráðuneytisins. Þor-
steinn Ingólfsson skrifstofu-
stjóri utanríkisráðuneytisins
veitir nefndinni forstöðu.
Vildi
Islending-
ana burt
Nýr yfirmaður Officera-
klúbbsins á Keflavíkur-
flugvelli hugðist nýlega
breyta vinnutíma starfs-
manna klúbbsins og ráða
kana til starfa í stað Is-
lendinga í hluta af
opnunartímanum. Slík
staða kemur oft upp eftir
yfirmannaskipti hjá Varn-
arliðinu, aðsögnGuðrún-
ar Olafsdóttur, formanns
Verkakvennafélagsins. Var
Islendingunum sagt upp
starfi með þriggja mán-
aða fyrirvara, svo hægt
væri að koma unrræddri
breytir.gu á.
Sagði Guðrún að
haldnir hefðu verið tveir
fundir um málið og væri
nú búið að snúa því til
baka á ný. Félagið hefur
engu að síður óskað eftir
fundi með Varnarmála-
nefnd til að fyrirbyggja
mál sem þetta.
OUUMENGAD
GRUNNVATN
Við áframhaldandi rann-
sóknir á því svæði sem olían
fór niður, ofan við Njarðvík á
dögunum, hefur komið í ljós
að jarðvegurinn hélt ekki olí-
unni og hefur hún því kom-
ist ofan í grunnvatnið og
mengað það. Hafa Njarðvík-
ingar þegar lokað einni bor-
holu í öryggisskyni.
Þó yfirvöld vonist nú til að
straumar liggi þannig að olí-
an berist til sjávar, eru aðilar
þó viðbúnir því versta og
leggjast því allir á eitt til að
bjarga vatnsbólunr Njarð-
víkinga og hugsanlega Kefi-
víkinga, að sögn Magnúsar
H. Guðjónssonar, heilbrigð-
isfulltrúa.
Þær lausnir sem menn sjá
helst í stöðunni er að fiytja
vatnsbólin út fyrir byggðina,
sem að sjálfsögðu er lang-
tímasjónarmið. Nú er fylgst
mjöggaumgæfilega með ferli
olíumengunarinnar en mjög
erfitt erað gera sérgrein fyrir
því hvað nrengunin verði
fijót að komast í borholurn-
ar. Er talið að það geti allt
eins tekið nokkur ár og þá
marga tugi ára að hreinsast
aftur.
NÝJU ÁRI FAGNAÐ
Tívolíbombur urðu mönnum að skaða þegar gamla árið var kvatt. A myndinni er ein slík ný
sprungin, aðeins nokkrum metrum fyrir ofan manninn. Nú er búið að banna þessar áramóta-
bombur. Eins og sjá má munaði ekki miklu að illa færi. En hvað um það, Víkur-fréttir færa
lesendum sínum og Suðurnesjamönnum öllum bestu nýársóskir með von um að nýtt ár færi
þeim gæfu og gengi. Ljósm.: pkct.
Líkur eru nú taldar á að
ekkert verði úr kaupum Eld-
eyjar h.f. á Arnarnesinu ÍS.
Strandaði málið aðallega á
því að Eldeyjarmenn vildu
breyta rækjukvóta skipsins í
þorskkvóta en það gekk
ekki. Að sögn Jóns Norð-
fjörðs, stjórnarformanns,
hefur fyrirtækið gert kaup-
tilboð í þrjú önnur fiskiskip.
Þar af eitt héðan af Suður-
nesjum, Boða GK 24. Erþess
vænst að þessi mál skýrist
fijótlega.
Þá hefur stjórn Eldeyjar
ráðið sér framkvæmdastjóra
og hóf hann störf um ára-
mótin. Hann heitir Bragi
Ragnarsson og er úr Mos-
fellssveit. Er Bragi vélskóla-
menntaður og lærður útgerð-
artæknir. Er ætlun hans að
fiytja hingað suður með vor-
inu.
Bragi Ragnarsson, l'ramkvæmda-
stjóri Eldeýjar hf.
Eldey hf.:
Búið að
gera kaup-
tilboð í
þrjú skip