Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.01.1988, Blaðsíða 7

Víkurfréttir - 07.01.1988, Blaðsíða 7
mm juíUt Fimmtudagur 7. janúar 1988 7 Þegar blaðamann bar að garði voru þeir félagar Eyjólfur Hafsteins- son (t.v.) og Ólafur Ingibersson í óðaönn að vinna að breytingum á staðnum. Þó tókst að króa þá af í stutta stund meðan viðtalið og myndin var tekin. Ljósm.: cpj. NÝJA BAKARÍIÐ tók til starfa I dag Bifreiðaeftirlitið: Hundr- uða þúsunda sjóð- þurrð Forstöðumaður bifreiða- eftirlitsins í Keflavík hefur, sem kunnugt er af fréttum, verið leystur frá störfum um stundarsakir vegna sjóð- þurrðar og bókhaldsóreiðu. Hefur forstöðumaðurinn ekki staðið skil á greiðslum sem borist hafa til bifreiða- eftirlitsins. Er hér um að ræða upphæð sem nemur hundruðum þúsunda. Kom í ljós í sumar, er Rík- isendurskoðun kannaði bók- hald stofnunarinnar, að pen- inga vantaði í sjóði embættis- ins í Keflavík. Vegna máls þessa hefur dómsmálaráðu- neytið ákveðið að vísa mál- inu til ríkissaksóknara en er síðast fréttist hafði ekki verið tekin ákvörðun þar á bæ um það hvort málinu yrði vísað til lögreglurannsóknar. Sigurgísli í eldvarna- eftirlitið Alls sóttu átta manns um stöðu eldvarnareftirlits- manns hjá Brunavörnum Suðurnesja. Stjórn BS hefur samþykkt að ráða einn um- sækjandann, Sigurgísla Ket- ilsson, í stöðu þessa. 1 dag tók til starfa nýtt bakarí í Keflavík. Að vísu er hér um að ræða gamalt fyrir- tæki með nýjum eigendum sem breytt hafa húsnæðinu og tekið upp nýja fram- leiðslulínu. Bakaríið nefnist Nýja bakaríið og er þar sem Gunnarsbakarí var áður til húsa. Nýja bakaríið er í eigu samnefnds hlutafélags sem tók við rekstrinum um ára- mótin. Hluthafar eru bakararnir Eyjólfur Haf- steinsson og Olafur Ingibers- son ásamt mökum ogbróður annars þeirra. Eru þeirbáðir útlærðir bakarameistarar, annar frá Gunnarsbakaríi en hinn nú síðast frá Ragnars- bakaríi. Sögðust þeir rnyndu fljót- lega auka framboðið af brauðum og kökum, auk þess sem miklar breytingar yrðu gerðar á framboðinu um helgar í versluninni sjálfri. T.d. myndu þeir hvíla einhverja tegundina aðra vikuna en bjóða aðrar teg- undir í staðinn. Eitthvað skemmtilegt sem yki tilbreyt- inguna. Þá hafa verið gerðar rót- tækar breytingar á búðinni, sem stefnir að því að gera hana hlýlegri, að sögn þeirra félaga, og þægilegri í alla staði. Hið vinsæla parket Kostar 795 kr. 1 Jlii'i í’íí II L TRÉ ^ V geysi- spóna- er komið. aðeins pr. m2. BYGGINGA- VÖRUR Iðavöllum 7 Keflavík Sími14700 NYTT NÁFN GETUR GEFIÐ ÞÉR HAMB ORGARFERÐ Hamborgarferð í hugmyndasamkeppni um nýtt nafn VEITINGA- HÚSIÐ Tjarnargötu 31A, Keflavík - Við leitum eftir nýju nafni! Ef þú ert hugmyndarík(ur) geturðu unnið þér utanlandsferð til Hamborgar með Arnarflugi. Við leitum að nýju nafni á Veitingahúsið Tjarnargötu 31A í Keflavík og óskum eftir hugmyndum frá hugmyndaríku fólki. Láttu hugann reika til okkar (og í fjörið í Hamborg) og komdu með hugmynd að nýju nafni á staðinn til okkar, í síðasta lagi n.k. sunnudag 10. janúar. Já, þetta þarf að gerast fljótt og vel. Verðlaun fyrir bestu hugmyndina er ferð til Hamborgar með Arnarflugi, önnur verðlaun er matur með öllu fyrir fjóra og þriðju verðlaun matur með öllu fyrir tvo.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.