Víkurfréttir - 07.01.1988, Side 11
10 Fimmtudagur 7. janúar 1988
- ANNÁLL 1987 -
Um hver áramót setjast menn
gjarnan niður og horfa yfir far-
inn veg, meta stöðuna eins og
sagl er. Við slíkar hugleiðingar
rennur upp fyrir llestum, hvað
við erum lánstim að vera íslend-
ingar og búa í þessu fallega, frið-
sæla og hæfilega afskekkta
landi. I lér hala allir næga vinnu,
nóg að bt>rða og þak yfir höfuð-
ið. Við eigum ekki i ófriði við
nokkra þjóð og Irelsið er hér
meira en víðast þekkist í heim-
inum.
Ef blaðað er i Víkur-fréttum,
þá sést að árið 1987 var okkur
Suðurnesjamönnum alar gott ár
á ilestum sviðum. Þegar helstu
viðburðir ársins eru rifjaðir upp,
verður niðurstaðan sú að hún
minnir helst á dægurþras stórrar
Ijölskyldu, svo sem eftirfarandi
fréttapunktar sýna:
I.
Arið byrjaði með glæsibrag,
þrettándagleði og blysför um
götur bæjarins. Þar var strax
halin leit að ungfrú Suðurnes
1987. Eðvarð Þór var kosinn
íþróttamaður ársins, en sund-
laugargestir í Keflavík kvörtuðu
undan ókurteisi og var mikið
niðri fyrir. Njarðvíkurbær tölvu-
væddist og ný þýsk lína var tekin
upp á brauðum hjá Ragnars-
bakaríi. Menn sáu bíla skreytta
jólaseríum uppi á þökum húsa í
bænum og leiddi það hugann frá
þjólnaðaröldu sem þágekk yfir í
Kellavík. Meðan 7. bekkur
Gerðaskóla dansaði stanslaust
Kátir krakkur í Garðinum, þrátl fyrir sólarhrings dans.
Ljósm;: hbb.
heilan sólarhring, fuku allii
áhorfendabekkirnir við gras-
völlinn þeirra. Hásetahlutur í
Sandgerði var 250 þúsund
krónur í janúar.
II.
Snemma í febrúar hirti
lögreglan handjárn af manni í
Heiðarbyggðinni, þegar hann
hafði handjárnað sig við stúlku í
ákveðinni stellingu, til að fram-
kvæma ákveðnar aðgerðir.
Þegar eldingu laust niður í
Svartsengi kynntu málfreyjur
samtök sín fyrir karlmönnum.
Innleystar ávísanir, flestar frá
árinu 1983, fuku um alla
Ketlavík, en bærinn hamaðist
við að kaupa gömul hús við Að-
algötuna. Njarðvíkingar töpuðu
fyrir Keflvíkingum í körfunni og
Landsbankastjórinn í Sand-
gerði púttaði best í febrúar. Is-
landsvinurinn Fats Domino
söng og spilaði í Stapanum, þó
hótelstríð stæði yfir í Keflavík.
Kona ein þakkaði 5 flugvallar-
lögregluþjónum auðsýnda
aðstoð. Þegar baðhúsið við Bláa
lónið var tekið í notkun varð
snarpur jarðskjálftakippur í
Grindavík, og skýrðust þá mál
slökkvistöðvarinnar á staðnum.
Forsætisráðherrann kom í heim-
sókn í kjördæmið, en Málning-
arþjónusta Oskars gat bætt við
sig verkefnum.
hROSKAHJÁLP A SUBVRNESJUM
1-53-31
Nýtt símanúmer
Símanúmer framkvæmdastjóra Þroska-
hjálparer 1-53-31. Eftirsemáðurverðursíma-
númer endurhæfingarstöðvar og leikfanga-
safns 1-33-30 og dag- og skammtímavistunar
143-33.
- Vinsamlegast bætið númerinu í símaskrá. -
Austfirðingafélag Suðurnesja
Þorrablót og 30 ára
afmælisfagnaður
verður haldinn í Stapa, laugardaginn 16.
janúar. Aðgöngumiðar seldir í Stapa,
fimmtudag kl. 17-19 og laugardag frá kl.
17.
Nefndin
Gleðilegt ár! feá
Jólaskreyting ársins sett upp á húsþak í Keflavík.
Ljósm.: epj.
IV.
í apríl urðu Njarðvíkingar ís-
landsmeistarar í sjötta sinn á sjö
árum. Mikið fjör færðist í fast-
eignasölur og kosningabaráttan
náði hámarki. 14. apríl var
tæknivæddasta flugstöð í heimi
vígð, og skírð eftir Leifi heppna,
að viðstöddum 3000 boðsgest-
um. Þá var áætlað að byggingar-
kostnaður færi jafnvel eitthvað
yfir 2 milljarða. Fjármálaráð-
herrann harðneitaði að fjölga
læknum við spítalann i Kefla-
vík. Lögreglulið Gullbringu-
sýslu sigraði á Islandsmóti lög-
regluliða á Akureyri og var
einnig valið prúðasta liðið á leik-
velli. Upp frá því hafa lögreglu-
og sjúkrabílar notað blá blikk-
andi neyðarljós. Framsóknar-
flokkurinn varð sigurvegari i
Reykjaneskjördæmi í alþingis-
kosningunum 25. apríl. Hann
fékk tvo menn kjörna. Trúnað-
arskýrsla Keflavíkurbæjar var
birt í Víkur-fréttum, þegar full-
víst var talið að allir landsmenn
hefðu lesið hana í Helgarpóst-
V.
í tilefni hátíðarhaldanna 1.
maí tóku Víkur-fréttir viðtöl við
fjölda launþega. Aðeins einn
viðmælandi var ánægður með
launin sín, enda kom fram í
skýrslu frá Ráðgarði, að sam-
dráttur í veiðum og vinnslu í
Keflavík nemur hundruðum
Tölvuvæddasta flugstöð hcims.
Ljósm.: pket.
III.
í mars var fegurðardrottning
Suðurnesja valin, með virðu-
legri athöfn í Stapanum. Hins
vegar varð töluvert hnútukast á
aðalfundi Sorpeyðingarstöðvar-
innar. Þá sannaðist að Suður-
nesjamenn sýna jafnrétti á milli
landshluta lítinn áhuga, samt
var kvikmyndin „Silfur hafs-
ins“ frumsýnd í Félagsbíói. Lög-
reglan hafði ítrekuð afskipti af
loðnuflutningum og fann hest á
Miðnesheiðinni. Hún gaf sér
tima til að ráðast inn í íbúð eina í
Keflavík, vopnuð kúbeinum, og
handtók þar 14 fíkniefnaneyt-
endur í kókainveislu. Lánið lék
við Sandgerðinga urn þetta leyti,
einn 14 ára strákur fékk /2
milljón í happaþrennu, en knatt-
skyrnufélagið Reynir fékk 8 nýja
leikmenn. Fyrsti snjór vetrarins
féll í mars, og enn töpuðu Njarð-
víkingar fyrir Keflvíkingum, nú
nteð 2 vítaskotum í leikslok.
Aflabrögð voru léleg framan af,
en bötnuðu þegar leið á mánuð-
inn.
Ekki dugði það að fá Hófí í Samkaup.
Ljósm.: hbb.
milljóna króna. Ekkert nýttskip
hefur bæst við fiskiskipaflota
Suðurnesjamanna sl. 12 ár. Get-
raunaspekingurinn mætti að
venju á bikarúrslitaleikinn á
Wembley, og Jón Páll sló fyrsta
vindhöggið í Sól-golfmótinu í
Leirunni. Um svipað leyti og
lóðaskoðun fór fram hjá fyrir-
tækjum á svæðinu, hljóp heims-
frægur 88 ára gamall trimmari
um skagann, en Labradorhund-
ur beit 3 börn. Vegna þess að
fullir Grænlendingar hafa verið
meira áberandi á götum Kefla-
víkur í maí, heldur en fullir Is-
lendingar, er talið að unglinga-
gengi bæjarins sé á villigötum.
Sauðburður í héraðinu gekk vel,
voru flestar ær tví- og þrílembd-
ar.
VI.
Bæjarráð Keflavíkur og
Njarðvíkur funduðu um samein-
ingu, meðan risabýflugur hrelltu
íbúana, og heilbrigðisnefiidin
lagðist gegn sorphaugum Grind-
víkinga. lbúar við Norðurvelli
héldu Jónsmessugrillhátíð, sem
tókst með ágætum, en Hafna-
menn höfðu brunaæfingu á
fornminjum.
VII.
Sirkus Arena heimsótti Kefla-
vík og mikil aðsókn var að reið-
námskeiði hestamannafélagsins
Mána. Mörgum þótti miður
þegar elsti bíllinn í flota SBK, 23
ára Scania, var seldur úr
bænum, en sama dag ók vörubíll
á Útvegsbankann. Olíufélagið
hf. auglýsti opnun á 4. bíla-
þvottastöðinni, nú í Keflavík. Er
hér um alsjálfvirka þvottastöð
að ræða, með ljósaborði og þýsk-
um gólfgrindum. Keflavíkur-
bær lét tyrfa yfir alla Heiðar-
byggðina, samtals 30 þúsund
fermetra.
VII.
Sparisjóðurinn opnaði útibú í
Grindavík í ágúst, en þar eru
brauð talin vera ódýrust á land-
inu, samkvæmt skoðanakönn-
un. Bláa lónið hefur verið sólar-
paradís Suðurnesjamanna í allt
sumar, sannkölluð nektarný-
lenda. Beinhákarlinn olli mikl-
um vandræðum á rækjumiðum,
en sjómenn í Keflavík létu það
ekki aftra sér frá þvi að auglýsa
fría soðningu fyrir alla þá sem
búa við aumustu kjörin, sam-
kvæmt skattskránni.
IX.
Vogalaxinn skilaði sérsvo vel
inn til slátrunar, að allar götur í
Vogunum hafa verið malbikað-
ar og 10 sumarbústaðaskrifli
fjarlægð úr hreppnum. Konur
lélu mikið að sér kveða í septem-
ber. Fæðingardeildin hér var
önnur stærsta utan Reykjavíkur
með 30% fleiri fæðingar í ár en á
sama tíma í fyrra. Kona settist í
fyrsta skipti í forsetastól bæjar-
stjórnar Keflavíkur. Önnur
kona tók sérhannað dans-
kennsluhúsnæði i notkun í
Keflavík, og frystihúsaeigendur
sóttust eftir varnarliðskonum í
liskvinnu. Lundaballið var
haldið í Garðinum.
X.
Viðskipti blómstruðu í
október. Þá keypti ein fjölskylda
allt Víkurbæjarhúsið. Oskabarn
Suðurnesja var getið, en það er
almenningsútgerðarfélagið Eld-
ey. Spánskur veitingastaður, E1
Rancho, var opnaður við Tjarn-
argötuna. Dagstjrarnan varseld
til Akureyrar fyrir skreið, en í
Glaumbergi var „Tekið á loft“ á
mikilli tónlistarhátíð sem þar ’
var haldin.
XI.
4-5 þúsund manns komu í af-
mæliskaffi Sparisjóðsins, en
eitthvað var fámennara í 5 ára
afmæli Samkaups. Þegar 70
milljón króna halli kom í ljós á
rekstri sjúkrahússins, sýknaði
aganefnd Blaðamannafélagsins
Víkur-fréttir af kæru stjórnar-
manns þess. Eitt frystihús brann
í Garðinum og Eimskip sveik
gefin loforð unt uppskipun í
Njarðvík, meðan Ellert Eiríks-
son hélt jómfrúarræðu sína á al-
þingi og vildi þjóðaratkvæða-
greiðslu um bjórinn.
XII.
Iþróttabandalag Suðurnesja
varð 40 ára í miklum fagnaði í
golfskálanum 1. des. Axel tókst
svo vel á loft í Glaumbergi að
hann hefur ekki komið niður
aftur. Hann seldi bæði Glóðina
og Langbest, og rekur nú flug-
eldhús. Njarðvíkingar voru með
hæsta sjúkrakostnað á Suður-
nesjum meðan Keílvíkingar éta
mest af lyfjum og unglingar
ganga berserksgang unt götur
bæjarins. Þrátt fyrir þá snjöllu
hugmynd Samkaups, að fá Hófí
til að aðstoða menn við jólainn-
kaupin, fór fjöldi manns til
Glasgow og gerði jólainnkaupin
þar. Það kom á daginn, sem
marga grunaði, að afkoma SBK
hríðversnaði eftir að elsti bí 11 inn •
þeirra var seldur úr bænttm.
Þrátt fyrir þá sorglegu stað-
reynd að orðuveitinganefnd hafi
gleymt Suðurnesjamönnum í ár,
fór jólahald og nýársfagnaður
vel fram. Flugeldasala var
óvenju mikil.
Fimmtudagur 7. janúar 1988
11
■ádáijtá
• - u
LÍKAMSRÆKT
Önnu Leu og
Dömur og errar á öllum aldri. Nú er að drífa
sig i leikfimi. Höfum tíma við allra hæfi.
Námskeiðin hefjast 13. janúar.
KONUR:
• Hressir erobikk-tímar. • Erobikk með
tæki - lóðum. • Sértímar fyrir þær sem
þurfa að missa mörg kíló.
Kennslustaðir: Keflavík, Ytri-Njarðvík,
Innri-Njarðvík.
KARLAR:
Tímar fyrir byrjendur og lengra komna á
þriðjudögum og fimmtudögum í íþrótta-
húsi Keflavíkur.
Dag- og kvöldtímar, og tímar fyrir vakta-
vinnufólk. Sjáumst hress. Innritun í síma
16133.
Anna Lea og Brói
íþróttakennarar
- Auglýsingasíminn er 1-47-17 -