Víkurfréttir - 07.01.1988, Side 20
mun
f/titUi
Fimmtudagur 7. janúar 1988
AFGREIÐSLA BLAÐSINS
er að Vallargötu 14, II. hæð. - Sími 14717.
TÉKKAREIKNINGUR
SPURÐU SPARISJÓÐINN
Þórdís Þormóðsdóttir hlaut flest verðlaun fyrir góðan árangur. Brautskráningarhópurinn ásamt skólameistara. Ljósm.: Heimir.
Þórdfs fékk fem verðlaun 49 nemendur brautskráðust frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja
Laugardaginn 19. des- ember fór fram í Ytri-Njarð- víkurkirkju brautskráning 49 nema úr Fjölbrautaskóla Suðurnesja að viðstöddu húsfylli. Athöfnin fór fram með hefðbundnum hætti en kynnir var Rósa Sigurðar- dóttir. Ægir Sigurðsson llutti yfirlit í forföllum aðstoðar- skólameistara um starfsemi haustannarinnar. Auk þess sem hann rakti gang við- byggingarinnar og endur- bóta bóknámshúss og deild- anna við Iðavelli. Þá ílutti Böðvar Jónsson, formaður nemendafélagsins, yfirlit um starfNFS. Hjálmar Arnason, skóla- meistari, afhenti síðan þeim brautskráðu skírteini sín og ávarpaði þá. Síðan tók Gísli Torföson, deildarstjóri, við og afhenti verðlaun fyrir góðan árangur. Hlaut Þórdís Þormóðs- dóttir flest verðlaunin eða alls fern, en hún var við nám í öldungadeild. Önnur verð- laun komu í hlut Guðnýjar Aðalsteinsdóttur, Guðbjarg- ar Jónsdóttur, Ragnheiðar Runólfsdóttur og Kára Hún- fjörð. Að verðlaunaafhendingu lokinni ílutti Guðbjörg Jóns- dóttir kveðjuávarp braut- skráðra og Þórunn Friðriks- dóttir kveðjuávarp kennara. I upphafi athafnarinnar spilaði Víkingasveit Tónlist- arskólans í Keílavík nokkur lög og Sinfóníuhljómsveit sama skóla spilaði í lokin við góðar undirtektir viðstaddra en báðar hljómsveitirnar eru undir stjórn Kjartans Más Kjartanssonar. Kom það síðan í hlut Hjálmars Árnasonar, skóla- meistara, að slíta athöfn þessari.
Fæðingamet á Sjúkrahúsinu
„Séð fram á enn frekari fjölgun á þessu ári“, segir Konráð Lúðvíksson, fæðinga- og kvensjúkdómalæknir
Fyrstu tvö börnin sem læddust á fæðingadeild Sjúkrahúss Keflavíkurlæknishéraðs á þessu ári,
ásamt mæðrum sínum. Ljósm.: hbb.
Síðasta ár varð metár varð-
andi fæðingar á Sjúkrahúsi
Keflavíkurlæknishéraðs. Alls
fæddu 262 konur hér 264'
börn og voru langflestar
þeirra héðan af svæðinu, þó
alltaf sé eitthvað um að
konur utan af landi fæði hér,
þá oftast vegna þess að héðan
eru þær ættaðar.
Þá munu innan við 10%
fæðandi kvenna hér hafa fætt
af einhverjum ástæðum á
fæðingadeildum í Reykjavík.
Kom þetta fram í máli
Konráðs Lúðvíkssonar fæð-
ingalæknis við SK í samtali
við blaðið, en flestar fæðing-
ar áður urðu 1985, en þá
fæddu 224 konur hér á fæð-
ingadeildinni.
Sagði Konráð að áhersla
væri lögð á að gera umhverfi
fæðandi kvenna sem hlýleg-
ast hér á fæðingadeildinni og
að hafa öryggi sem mest í
fyrirrúmi. ,,Með jákvæðri
umfjöllun mætti því hafa
áhrif á fjölskylduímynd fólks
og sporna þar með við þeirri
spá að læðingum fari fækk-
andi og breyta hugarfari
fólks í þessum efnum“.
En hvað um nýhafið ár?
Því svaraði Konráð á eftir-
farandi hátt: „Svo langt sem
við eygjum, sjáum við fram á
enn frekari fjölgun en á ný-
liðnu ári“.
Þessu til viðbótar má geta
þess að fyrsta barn lands-
manna á þessu ári kom í
heiminn á fæðingadeild
Sjúkrahúss Keflavíkurlækn-
ishéraðs. Um var að ræða
stúlkubarn sem fæddist kl.
05.48 á nýársdag og vó 4340
gr, en lengd þess var 55 cm.
Foreldrar þess eru Þóra
Bragadóttir og Hafsteinn
Olafsson í Vogum og áttu
þau tvö börn fyrir. Klukkan
15.23 á nýársdag kom síðan
annar Suðurnesjabúi í heim-
inn, það var stúlkubarn er vó
3740 gr. og var 53 cm á lengd.
Foreldrar þess eru Kristín
Birgisdóttir og Sigurjón
Guðfinnsson í Keflavík, en
þau áttu einnig tvö börn
fyrir.